Feykir


Feykir - 01.03.2000, Blaðsíða 4

Feykir - 01.03.2000, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 9/.2000 „Hér er hægt að gera marga góða hluti“ segir Þorsteinn Sæmundsson forstöðu- maður Náttúrustofu Norðurlands vestra Þorsteinn Sæmundsson á tröppum Gamla Barnaskólans, þar sem Náttúrustofan verður til húsa, en búið er að endurgera húsið í sem næst sitt upprunalega horf. „Þetta verður mjög spennandi verkefni, en ég geri mér grein fyrir því að það mun taka nokkurn tíma að byggja upp og skipuleggja starfsemina. Hef ég trú á að hér sé hægt að gera marga góða hluti og verkefnin eru næg”, segir Þorsteinn Sæ- mundsson forstöðumaður Nátt- úrustofu Norðurlands vestra sem nýtekinn er til starfa á Sauðár- króki. Náttúrustofan er til húsa í Gamla Barnaskólanum gegnt kirkjunni við Aðalgötuna, sem búið er að endurgera í sitt upp- runalaga horf. Þorsteinn er doktor í ísaldarjarðfræði og útskrifaðist hann frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 1995. Lokaverk- efnið í doktorsnámi Þorsteins fjallaði um hörfun jökla og sjávarstöðubreyt- ingar í lok síðustu ísaldar í dölum Vopnafjarðar. Hann hefur auk þess tek- ið þátt í ýmsum verkefnum sem tengj- ast þeim umhverfisbreytingum sem urðu í lok ísaldar. Hann tók meðal ann- ars þátt í sænsk-íslenskum leiðangri árið 1990 út á Skaga, nánar tiltekið að Torfadalsvatni á vestanverðum Skagan- um. Þessum leiðangri var stjórnað af doktor Ólafi Ingólfssyni sem starfar nú við Háskólann í Gautaborg, sem vann á þeim tíma við Háskólann í Lundi. Til- gangur leiðangursins var að taka borkjama úr setlögum sem hafa hlaðist upp á botni Torfadalsvatns, á vestan- verðum Skaganum, frá lokum ísaldar- innar og fram til dagsins í dag. Þor- steinn Sæmundsson segir að þessi leið- angur hafi skilað góðum árangri og nýst vel til frekari rannsókna, meðal annars hafi sænskur nemandi við Háskólann í Lundi byggt lokaritgerð sfna á rann- sóknum sem unnar voru í kjölfar niður- staðna þessarar rannsóknar. Þorsteinn á von á þessum sænska kollega sínum í heimsókn á Náttúrustofuna áður en langt um líður. Að auki hefur Þorsteinn tekið þátt í leiðangri til Svalbarða og mun hann vonandi greina okkur frá þessum verk- efnum í framtíðinni. Frá því að Þor- steinn lauk námi hefur hann unnið á Veðurstofu Islands við vöktun og rann- sóknir á snjóflóðum og skriðuföllum. Þorsteinn segir að meðal þeirra verk- efna sem unnið verði að á Náttúrustofu Norðurlands vestra verði einmitt að kortlegga Skagafjörð og svæði í grenndinni, varðandi sjávarstöðu- og umhverfisbreytingar sem áttu sér stað í lok ísaldar. Þegar fáfróður blaðamaður spurði hvemig í ósköpunum væri hægt að framkvæma slíka hluti, þá benti Þor- steinn út um gluggann á Nafimar. “- Þama em skýr dæmi um breytingu á sjávarstöðu frá ísöld”, sagði hann. Náttúruvísindin færð nær fólkinu Þorsteinn segist vonast til þess að til- koma Náttúmstofunnar verði til þess að unnt verði að færa náttúmvísindin nær fólkinu og í því markmiði er meðal annars stefnt að því að halda fræðslu- fundi reglulega og fá til þeirra lyrirles- ara um hin ýmsu efni náttúruvísind- anna. „Ætlunin er að á stofunni verði að finna ýmiss gögn um náttúmfar Skaga- fjarðar og nærliggjandi svæða. Það er því mjög æskilegt að allir þeir sem búa yfir einhverri vitnesku um náttúmfar þess, eða gögnum og fróðleik ýmsum, snúi sér til okkar. Það verður hlutverk okkar sem hér störfum að vera upplýs- ingamiðlar og hingað getur almenning- ur snúið sér engu síður en vísinda- menn.” Hvaða aðilar em það hér á svæðinu sem þú kemur til með að hafa mest samstarf við? „Ég mun væntanlega hafa gott sam- starf við Hóla þar sem unnið er mikið og gott starf. Einnig vonast ég eftir góðu samstarfi við söfnin á svæðinu og menntastofnanir. Rannsóknarstarf Náttúmstofa Norðurlands vestra mun þó að gmnni til byggjast á jarðfræði, alla veg til að byrja með og ræður þar mestu um reynsla mín og menntun”, segir Þorsteinn. Fimmta Náttúrustofan Náttúmstofa Norðurlands vestra er sú fimmta sem tekur til starfa. Sú fýrsta var sett á laggimar á Norðfirði fyrir Austurland 1995 og síðan hafa komið Náttúmstofur í Vestmanneyjum fyrir Suðurland, í Stykkishólmi fyrir Vestur- land, í Bolungarvík fyrir Vestfirði og brátt verður opnuð Náttúmstofa í Sand- gerði fyrir Reykjanes. Setur Náttúm- fræðistofnunar em síðan starfrækt í Reykjavík og á Akureyri. Það er ríkið og Sveitarfélagið Skagafjörður sem standa að rekstri Náttúmstofunnartil að byrja með. Stefnt er að því að ráða fleiri starfsmenn með tíð og tíma, en starfs- menn á Náttúmstofum í landinu em ffá einum upp í þrjá á hverjum stað. í reglugerð um Náttúmstofu Norð- urlands vestra segir m.a. um hlutverk stofnunarinnar: Að stunda vísindalegar rannsóknir á náttúm Norðurlands vestra. Að safna gögnum og varðveita heimildir um náttúmfar og stuðla að al- mennum náttúmrannsóknum og skal einkum lögð áhersla á Norðurland vestra og sérstöðu náttúmfars á þeim slóðum. Að stuðla að æskilegri landnýtingu, náttúmvemd og fræðslu um umhverfis- mál bæði fyrir almenning, fyrirtæki og í skólum á Norðurlandi vestra. Skal í þessu sambandi hafa náið samstarf við starfsmenn annaiTa stofnana sem vinna að sömu málum. Að veita fræðslu um náttúmffæði og aðstoða við gerð náttúmsýninga á Norðurlandi vestra. Að veita sveitarfélögum á Norður- landi vestra umbeðna aðstoð og ráðgjöf á verksviði stofunnar, m.a. vegna vemdar og nýtingar náttúmlegra auð- linda. skipulagsmála og mats á um- hverfisáhrifum framkvæmda, enda, komi greiðsla fyrir. Nú er toppbaráttan í algleymingi Tindastóll - Þór Sunnudagskvöld kl. 20 Komið og sjálð skemmtilegan nágrannaslag og hvetjið Tindastól til sigurs

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.