Feykir - 15.03.2000, Qupperneq 2
2 FEYKIR 11/2000
„Tilfinningar til keppninnar
eru samt ekki blendnar"
segir Kári Marísson sem á börn í báðum liðum
mótherja Tindastóls í úrslitakeppninni í körfuboltanum
„Jú þetta er mjög óvenjuleg
staða sem ég er í, en tilfmning-
amar til keppninnar erti simt
engan veginn blendnar. I .g er
Heilbrigðisstofnun'm
Sauðárkróki
Útboð
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki óskar eftir
tilboðum í lóðafrágang við endurhæfingarhús
stofnunarinnar.
Helstu magntölur eru:
grófjöfnun 1000 m",
malbik 570 m2,
hellulögn 270 m2,
snjóbræðsla 360 m2
þökulögn 1100 m2.
Útboðsgögn verða seld hjá Stoð ehf. verkfræðistofu
að Aðalgötu 21 Sauðárkróki, frá og með þriðju-
deginum 21. mars nk. gegn 2.500 kr. gjaldi.
Frestur til að skila tilboðum er til kl. 11,00
þriðjud. 11. apríl nk. Verklok eru áætluð 1. ágúst 2000.
F.h. Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri.
Skagafjörður
fbúðir til sölu
Félagsmálanefnd Skagafjarðar
auglýsir til sölu tvær 3ja herbergja
íbúðir - Jöklatún 12 ogjöklatún 1 i -
á Sauðárkróki.
íbúðirnar eru í fjögurra íbúða
raðhúsi og eru 90.4 fermetrar að
stærð. Verð:Tilboð.
Allar nánari upplýsingar gefur
skrifstofustjóri aðalskrifstofu
Skagafjarðar, Faxatorgi 1, sírni
4553000.
Félagsmálanefnd Skagafjarðar
Tindastólsmaður og vona að mitt
félag vinni, en hins vegar vil ég
líka að mínum bömum gangi vel
með sínum liðum. Og það er alls
ekki svo að einhver spenna hafí
myndast milli okkar. Við tölum
saman nær því daglega um
körfuboltann og spáum og spek-
úlerum í hlutunum”, segir Kári
Marísson gamli landsliðsmaður-
inn í körfubolta og núverandi
framkvæmdastjóri Tindastóls.
Hann er í þeirri sérkennilegu
stöðu að eiga börn í bæði karla-
og kvennaliði KR sem mætir
Tindastóli í úrslitakeppni íslands-
mótsins í körfubolta sem hefst
núna í vikunni. Amar Kárason í
karlaliðinu sem nýbyrjaður er að
spila eftir veikindi í vetur og
Kristín Jónsdóttir, stjúpdóttir
Kára, er einn besti leikmaður
KR-liðsins.
Aðspurður um möguleika
Tindastóls í úrslitakeppninni seg-
ir Kári að þeir séu allir hjá
körlunum, og stelpumar eigi
einnig sína möguleika, en þar
þurfi kannski meira að stóla á
heppnina.
KR-ingar hafa verið að styrkj-
ast að undanfömu. BaldurOlafs-
son stór og stæðilegur miðherji,
sem verið hefur við nám í
Bandaríkjunum kemur til liðs við
Kári Marísson á skrifstofu Tindastóls, í sérkennilegri að-
stöðu þegar úrslitakeppnin er að byrja.
sitt félag í leikjunum á móti
Tindastóli og Amar Kára hefur
verið að spila 10-12 mínútur í
þrem síðustu leikjum og virðist
vera að koma sterkur inn.
„Þetta verður mikil spenna og
spuming um karakterinn og
dagsformið þegar komið er í úr-
slitakeppnina, sem er ekkert lík
neinni annarri keppni. Ég held
samt að Tindastóll hafi þetta og
vinni 2:0. Leikurinn núna á
fimmtudagskvöldið héma heima
skiptir mjög miklu máli um það
hvort liðið ætlar sér léttari eða
erfiðari leiðina, en það er allt til í
þessu.
Þetta verður í sjöunda skiptið
í vetur sem ég stjóma kvennaliði
Tindastóls á móti KR með Krist-
ínu dóttur mína í broddi fylking-
ar og það hefur alltaf verið jafn-
gaman. KR-liðið er geysisterkt
og maður verður að líta á hlutina
frá fræðilegu hliðinni. Það sem
Tindastóll þarf miðað við stöðu
liðanna í deildinni er að eiga al-
gjöran toppleik og vera heppinn
að auki. Ég spái því að stelpum-
ar vinni seinni leikinn héma á
Króknum á sunnudagskvöldið
og það komi til oddaleiks”, segir
Kári Marísson og virðist hvergi
banginn fyrir úrlistakeppnina, en
greinilega fullur tilhlökkunar.
Góð frammistaða
gegn Keflavík
Stelpumar stóðu sig ágætlega
gegn Keflvíkingum í tveim leikj-
um á Króknum um helgina. Þær
töpuðu fyrri leiknum 44:71 og
þeim seinni 56:64, eftir að hafa
verið yfir mest allan síðari hálf-
leikinn. Stig Tindastóls skoraðu í
fyrri leiknum Jill Wilson 19,
Birna Eiríksdóttir 19 og Dúfa
Dröfn Asbjömsdóttir 6.1 seinni
leiknum gerði Wilson 21 stig,
Birna 19 og Halldóra Andrés-
dóttir 12 stig.
ísaðar gellur á Siglufirði
Leikfélag Siglufjarðar, sem ekki
hefur starfað í nokkur ár, var endur-
vakið síðastliðið sumar með upp-
setningu þáttar um æfi og störf sr.
Bjarna Þorsteinssonar, „í þessari
byggð”. í byrjun þessa árs hélt fé-
lagið síðan leiklistamámskeið og í
framhaldi af því var hafist handa við
uppsetningu leikritsins „ísaðargell-
ur” eftir F. Harrison, hvort tveggja
undir stjóm Guðjóns Sigvaldasonar.
Leikritið er skrifað í Hull á Englandi
en tjallar á léttan og skemmtilegan
liátt um það hvemig breskar stúlkur
upplifa íslenskt dreifbýli.
Með hlutverk í leikritinu fara
Linda María Ásgeirsdóttir, Sólveig
Halla Kjartansdóttir, Sigríður Jó-
liannesdóttir, Sigurður Hlöðversson
og V. Ingi Hauksson.„Isuðu gellum-
ar" vora frumsýndar í Nýja Bíói sl.
löstudag en þegar era ráðgerðar
a.m.k. tvær sýningar til viðbótar.
L'ormaður Leikfélags Siglufjarðar er
Brynja Svavarsdóttir.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauöárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Mj ndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Nctfang:
fc> kir (? krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Frcttai itari: Örn Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.