Feykir - 15.03.2000, Side 5
11/2000 FEYKIR 5
Heimiskvöldið
góð skemmtun
Það má segja að söngvertíðin
verði í algleymingi hjá Heim-
ismönnum næstu vikur og
mánuði og mikið að gera hjá
kórnum. Ekki voru allir sem
komust á þrettándaskemmt-
un kórsins í byrjun árs, þar á
meðal ritari þessa pistils, sem
þá var illa fjarri góðu gamni í
Reykjavík, og missti því af
ýmsu m.a. þegar gestur
kvöldsins Geir Haarde sögn
Volguna. Og það bar því á-
gætlega í veði að fara á Heim-
iskvöldið sl. laugardagskvöld
í Miðgarði.
Salurinn í Miðgarði var
þéttskipaður og fólk hlýddi af
áhuga og ánægju á söngskrá
kórsins sem Stefán Gíslason
stjómandi og helstu „ráðgjaf-
ar" hans við stjóm kórsins hafa
valið. Það hlýtur að vera
vandasamt fyrir kór eins og
Heimi að halda uppi fjölbreytni
í lagavali, útsetningum og
ýmsu er lítur að söngskránni.
En þessum hlutum er greini-
lega gefinn góður gaumur.
Nokkru nýjabmmi bregður
þama fyrir, t.d. stórgóðri laga-
syrpu sem Stefán söngstjóri
hefur sett saman og útsett. Tals-
verðar breytingar voru að
þessu sinni varðandi einsöng-
inn, en bræðumir frá Áftagerði
fengu frí að miklu leyti þetta
kvöld enda staðið í ströngu að
undanfömu. En Sigfús skilaði
að sjálfsögðu laginu um kvöld-
klukkumar frábærlega, enda
lag sem er sniðið að hans rödd.
Þá var gaman að heyra nýja
rödd með kómum, Kristján
Valgarðsson, synga þekkt óp-
erulag með kórnum. Nauta-
banasönginn úr Carmen.
Jón Gíslason í Miðhúsum fór
á kostum í pistli sínum og
eftirhermum.
Skagfirskur dýrð-
lingur 800 ára
Föstudaginn 3. mars sl. vom
nákvæmlega 800 ár liðin frá því
að Jón Helgi Ögmundsson
Hólabiskup var gerður að dýrð-
lingi, en það mun hafa gerst
jrennan mánaðardag árið 1200,
samkvæmt heimildum, m..a
Sögu Jóns helga og Grændlandi
í miðaldaritum, eftir dr. Ólaf
Halldórsson. Jón helgi mun
vera eini dýrðlingurinn hér á
jsessu svæði, og væntanlega í
Hólastifti öllu, enn sem komið
er að minnsta kosti. Sagt hefur
verið um Jón Ögmundsson
biskup að hann hafi sungið svo
fallega við vígslu sína til bisk-
ups, að konur hafi fallið í yfirlið.
Þótt seinni tíma söngvarar skag-
firskir hafi sungið vel, liefur
ekki verið svo djúpt tekið í árina
við að lýsa söng |x'irra. Þá þyk-
ir Jón helgi með eindæmum
orðheppinn maður, en hann
sagði t.d. um fóstra sinn Isleif
Gissurarson, annan biskup í
Skálholti, „þá kemur mér hann í
hug þegar ég heyri góðs manns
getið.”
Jón Ögmundsson fæddist
1052 og lést 1121. Hann var
biskup á Hólum frá 1106 til
dauðadags. I bókinni „Grænd-
land í miðaldarituin segir dr.
ÓlafurHalldórsson m.a.: „í sög-
unni segir að að á þriðja ári frá
því að bein Jóns vom þvegin,
voru þau tekin upp og heilagur
dómurinn settur á þann stað í
kirkjunni sem honum hafði ver-
ið fyrir búinn. Þetta gerðist 3.
mars árið 1200. Þann vetur er
sagt að voru hríðar miklar og
veður köld og horfði til hallæris
um allt ísland.
Eftir að fólk fór að trúa á
helgi Þorláks byskups Þórhalls-
sonar, og einkum eftir að heilag-
ur dómur hans var tekinn upp
1198, hafa áheit af landinu öllu
tekið að berast til Skálholts.
Norðlendingar hafa fljótlega
séð, að þeir yrðu að koma sér
upp dýrðlingi til þess að staður-
inn á Hólum gæti einnig notið
áheita.”
I riti Ólafs Halldórssonar er
þó vikið að því að ekki hafi ver-
ið algjör eining í fyrstu um
dýrðlingstign til handa Jóni Ög-
mundssyni og fleiri Hólabisk-
upar þar verið nefndir til sögu,
sérstaklega Bjöm Gilsson, en
bein hans vom einnig tekin upp.
Stefán stjórnandi tekur hægri vænginn til kostanna.
Og enn er dýptin og bak-
grunnurinn að aukast hjá
Heimi. Jón St. Gíslason í Mið-
húsum hefur löngum eflt und-
irleikinn með harmonikkuspili
sínu, en nú er líka kominn til
skjalanna Guðmundur Ragn-
arsson fyrrum rithmagítarleik-
ari með poppsveitinni Hrím frá
Siglufirði, og skapar gítarleik-
ur hans skemmtilegan brag og
nýbreytni við lögin, þar sem
gítarinn hefur verið settur inn.
*
Ymislegt til Iista
lagt í „fríríkinu”
Þá er ógetið skemmtiatriða
utan söngskrár. Þeir léku sam-
an skemmtilega á píanó og
trompet, Thomas Higgerson og
Sveinn Sigurbjömsson. Og
þegar Jón St. Gíslason alt-
múligmaður í Miðhúsum byrj-
aði pistil sinn kom fljótlega í
ljós að jjeim er ýmislegt til lista
lagt í „fríríkinu”. Jón flutti
mjög skemmtilegan pistil, með
lýsingum á nánustu ættmenn-
um sínum, nágrönnum og
sveitungum, sjóferðasögu
kórsins til Færeyja og ýmsu
fleiru, t.d. hvemig menn bera
sig misjafnlega í heyskap að
sumrinu. Þessu öllu fylgdu síð-
an eftirhermur og það var engu
líkar en þeir birtust þama ljós-
lifandi á sviðinu Konráð Gísla-
son frá Frostastöðum, Gunnar
frá Vallholti, Eysteinn í Vall-
hólma, Þorleifur á Þorleifsstöð-
um og fleiri.
Rúsínan í pylsuendanum
var síðan þegar konur Heimis-
manna brugðu sér á svið og
sungu nokkur lög í „stórkór”
Heimis, m.a. gamla slagarann
„Havanna gfla”. Pétur Péturs-
son kynnir sagði að nú væri
líklega síðasta vígið fallið, þeir
hefðu svo sem vitað það Heim-
ismenn að konur sínar gætu
sungið og haft hátt, en „punkt-
urinrí’ væri kannski sá að það
færi svo mikil orka hjá þeim í
sönginn að rómurinn mundi
eitthvað lækka heimafyrir.
Þær koniu til Sigurðar Kr. á Blönduósi í Trj'ggingarmiðstöðina á öskudaginn: Snædís, Sara,
Lilja, Sandra, Ása, Árdís og Jenný.
Urslitakeppnin í körfubolta
8-liða úrslit karla Epson-deild (tvo sigra þarf til að komast áfram)
Tindastóll - KR Fimmtudaginn 16. mars kl. 20 í Síkinu
andlitsmálun í anddyri íþróttahússins uppi kl. 18
Laugardaginn 18. mars kl. 16 KR-hús
Ef kemur til aukaleiks þá verður hann mánudaginn 20. mars kl. 20 í Síkinu.
4-liða úrslit kvenna 1. deild (tvo sigra þarf til að komast í úrslit)
Tindastóll - KR
Föstudag 17. mars kl. 20 KR-hús
Sunnudag 19. mars kl. 20 Síkið
Ef kemur til aukaleiks verður hann þriðjudaginn 22. mars kl. 20 í KR-húsi.
Missið ekki af þessari körfuboltaveislu! UMFT.