Feykir - 22.03.2000, Blaðsíða 8
22. mars 2000,12. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Íslendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
jslands
í forystu tíl framtfðar
Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353 .
Þessar voru í rokna stuði á konukvöldinu hjá stúdentsefnum FNV á Royal á laugardags-
kvöldið: Siva Þomióðsdóttir, Ragndís Hilmarsdóttir, Ema María Jensdóttir, Ema Rós Haf-
steinsdóttir, Hrafnhildur Viðarsdóttir, Bryndís Þórisdóttir, Guðrún B jömsdóttir og Sigurlaug
Rún Brynleifsdóttir. Meira um konukvöldið á 5. síðu blaðsins.
Bvggðir við Húnaflóa
Vilja fá bætur vegna
hruns rækjustofhsins
Bæjar- og sveitarstjórar við
Húnaflóa hafa beint þeim ein-
dregnu tilmælum til sjávarút-
vegsráðherra að hann ákvarði
nú þegar auknar bætur til
innfjarðarrækjubáta við fló-
ann, en eftir mælingar Haf-
rannsóknarstofnunar í liðnum
mánuði er ljóst að ekki verða
leyfðar veiðar úr stofninum á
yíirstandandi fiskveiðiári.
„Ekki þarf að fjölyrða um á-
hrif hruns innfjarðarrækjustofns-
ins í Húnaflóa fyrir umræddar
sjávarbyggðir og því vonast
undrritaðir til að útgerðir sem
hafa haft leyfi til innfjarðar-
rækjuveiða á flóanum fái fulla
leiðréttingu”, segir í bréfi sveitar-
stjóranna til ráðherrans.
Erindið er sett fram með vís-
an til fundar sem forráðamenn
sveitarfélaganna við Húnaflóa
áttu með ráðherranum 30. sept-
ember sl. Jafnframt er vísað til
reglugerðar nr. 519/1999 um sér-
staka úthlutun til innfjarðar-
rækjubáta sem sett var að undan-
gengnum viðræðum fulltrúa
sveitarfélaga og útgerðarmanna
við hæstvirtan þáverandi sjávar-
útvegsráðherra fyrir um ári.
Héraðsdómur Norðurlands vcstra í máli SR-mjöls gegn FISK
Sýknar FISK af öllum kröfiim
Áætlanir Hafnarstjórnar Skagafjarðar
Miklar framkvæmdir
við Norðurgarðinn
Hafnarstjóm Skagafjarðar
samþykkti á fundi sínum á dög-
unum tillögur til Siglingamála-
stofnunar vegna hafnaáætlunar
2001-2004. Hafnarstjóm leggur
til að á þessum tíma verði ráðist
í verulegar frantkvæmdir við
Norðurgarð Sauðárkrókshafnar,
auk þess sem dýpkað verði við
hafnir og bryggjur á Hofsósi og
í Haganesvík.
Hafnarstjóm leggur til að á
næsta ári verði varið 76 milljón-
um í Norðurgarðinn. Fremsti
hluti garðsins verði endur-
byggður og stálþilið lengt um 60
metra og verði þvi alls 130
metra. Á árinu 2002 verði lokið
við fragang stálþilsins á Norður-
garði og gengið frá lögnum, lýs-
ingu og þekja steypt, en hún er
alls 2200 fermetrar. Áætlað er
að þetta verk kosti um 26 millj-
ónirkróna. Þá verði einnig unn-
ið að dýpkun snúningssvæða og
innsiglingu og er áætlað að það
muni kosta 29,4 milljónir.
Á árinu 2003 er á dagskrá
lenging sandfangara urn 30
metra og er ætlað að kostnaður
við þá framkvæmd verði 12
milljónir. Samkvæmt tillögum
hafnarstjómar yrði á árinu 2004
síðan unnið að tengibraut milli
Sauðurhafnar og Norðurhafnar
og er áætlað að það rnuni kosta
um 3 milljónir króna. Á því
sama ári verði einnig sett grjót-
vöm á vesturkant í smábáta-
höfn.
Við höfnina á Hofsósi er á
árinu 2001 stefnt að dýpkun við
Suðurgarð, lengingu Þvergarðs
og lengingu viðlegu á Suður-
garði. Á árinu 2002 verði Norð-
urgarður styrktur. Við biyggjuna
í Haganesvík er áætlað að dýpk-
un fari fram á næsta ári og árinu
2003. Kostnaður í hvert skipti er
áætlaður 300 þúsund.
Héraðsdómur Norðurlands
vestra sýknar Fiskiðjuna Skag-
firðing af öllum kröfum SR-
mjöls. Dómur var kveðinn upp
sl. mánudag, en SR-mjöl krafð-
ist ógildingar á kaupsamningi
sem gerður var síðla árs 1998
og fjallaði um kaup fyrirtækis-
ins á fiskveiðileyfi og úrelding-
arrétti Skagfirðings SK-4.
Kröfur sínar byggði SR-mjöl á
breytingum á lögum um stjóm
fiskveiða er urðu í kjölfar svo-
nefnds Valdimarsdóms, en
hann leiddi í ljós að öllum væri
heimilt að fá svonenfnd fisk-
veiðileyfi og þau leyfi vom því
orðin verðlaus við þessa laga-
breytingu.
Fiskiðjan hafði fengið helm-
ing samningsins greiddan, 60
milljónir króna, hinar 60 millj-
ónimar áttu að koma til greiðslu
1. mars á síðasta ári, en SR vildi
fá þá greiðslu niðurfellda og
endurgreitt það sem búið var að
greiða í samningnum.
í niðurstöðu héraðsdóms
segir m.a. að báðum aðilum hafi
mátt vera ljóst að um áhættu-
söm viðskipti væri um að ræða
og að alltaf hafi mátt búast við
að ytri aðstæður. sem gætu haft
áhrif á verðmæti þessi, breyttust
verulega. „Það er því mat dóms-
ins að þrátt fyrir ófyrirséða
kúvendingu á lögum um stjóm
fiskveiða verði hvor aðili um sig
að bera þá áhættu sem var til
staðar í viðskiptum þeirra. Aðil-
ar máls þessa em báðir stór fyr-
irtæki í sjávarútvegi á íslandi og
var staða þeirra við samnings-
gerðina því jöfn þannig að á
hvorugan hallaði. Báðum aðil-
um var kunnugt um að lög um
stjóm fiskveiða hafa tekið breyt-
ingum frá því þau vom fyrst sett
árið 1983. Hins vegar má fallast
á nteð stefnanda að sennilega
hafi enginn séð fyrir þær miklu
breytingar sem raunin varð á.
Þó má benda á að á þeim tíma
sem samningurinn var gerður,
var búið að flytja hið marg-
nefnda mál (Valdmarsmál,
innsk. Feykir) fyrir Hæstarétti.
Ætla verður að stefndi hefði
þurft að sætta sig við að verð-
mætin hefðu margfaldast í verði
strax að lokinni samningsgerð-
inni af óvæntum ástæðum. Jafn-
framt heldur stefndi því réttilega
fram að ósanngjamt sé í hans
garð að fé ekki greitt fyrir hluta
af þeim verðmætum sem hér
var samið um. Hann hafi greitt
fyrir þau til þriðja aðila og verði
því fyrir tjóni ef samningurinn
verði felldur úr gildi vegna að-
stæðna sem sfðar kontu til”.
Þama í lokin vitna Fiskiðju-
menntilþesserþeirkeyptu úr-
eldingarrétt þegar Skagfirðingur
SK-4 var keyptur og eldra skip
með sama nafni selt. Gert er áð
fyrir því að forráðamenn SR-
mjöls áfrii málinu til Hæstarettar.
TOYOTA
- tákn um gæði
...bílar, tiyggngar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYBJABS
8UÐDRGÖTO 1 SÍMI 4S3 B960
Kodak Pictures
KODAlffiiXPRESS
<g>
TRYCCINCA-
MIÐSTÖÐIN HF.
-þegdrmestáreynir!