Feykir - 31.05.2000, Side 8
31. maí 2000,20. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Sti ómarformaöur Byggðastofaunar
Hagkvæmast að flytja
stofnunina á Krókinn
„Ég hef trú á því að Byggða-
stofnun verði flutt út á landi í það
umhverfi sem henni er ætlað að
starfa í. I mínum huga er það al-
veg borðleggjandi að hagkvæm-
ast er að flytja stofnunina á
Sauðárkrók þar sem þriðjungur
starfseminnar er fyrir”, segir
Kristinn H. Gunnarsson alþing-
ismaður stjómarfonnaður
Byggðastofnunar, en hann lagði
fram tillögu á síðasta stjómar-
fundi að aðalbækistöðvar
Byggðastofnunar yrðu fluttar frá
Reykjavík til Sauðárkróks. Af-
greiðslu var frestað en það virð-
ist liggja í loftinu að stjómarsam-
þykkt verði gerð í þessa vem fyrr
en seinna. Valgerður Sverrisdótt-
ir ráðherra byggðamála hefur
tekið þessum áformum vel, en
ráðherrann hyggst beita sér fyrir
úttekt á flutningi stofnana út á
land, til að mynda er um þessar
mundir unnið að hagkvæmnisút-
tekt á flutningi Rarik til Akureyrar.
Kristinn sagði í samtali við
Feyki að sótt yrði á um að starf-
semi Byggðastofnunar yrði efld
frá því sem nú er. Fimmtán
starfsmenn em í aðalbækistöðv-
unum í Reykjavík og sjö á Þró-
unarsviðinu á Sauðárkróki.
Hugsanlega mundi fækka um
eitt staif við enduskipulagninu
og flutning til Sauðárkróks, en
þeim gæti fjölgað við það að í bí-
gerð væri endurmat á skyldri
starfsemi hjá hinum ýmsustofn-
unum og sjóðum, svipað og gert
var r byggða- og atvinnumálum í
Noregi fyrir nokkrum árum, en
þá vom skyld störf í ýmsum
stofnunum færð til byggðamála-
stofnunar og sjóðir sameinaðir.
Samkvæmt þeini umfjöllun
sem átt hefur stað í stjóm
Byggðastofnunar um flutning
stofnunarinnar út á land, er rætt
um að hann eigi sér stað innan
árs frá því samþykkt liggur fyrir.
KJÖRBÓK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
islands
í forystu til framtíðar
Utibuið a Sauðárkrókí - S: 453 5353
Frá afliendingu nýja slökkvibflsins sl. töstudag í Slökkvistöðinni á Sauðárkróki.
Nýr slökkvibíll á Hofsós
Brunavamir Skagafjaiðar hafa fengið nýjan
tank- og dælubíl sem staðsettur verður á Hofsósi
og kemur þar í stað tveggja gamalla bíla frá ‘62 og
‘64. Bíllinn var formlega afhentur fyrir síðustu
helgi.
Bíllinn er Bens 1625 með aldrifi, uppgerður
frá Noregi með nýjum slökkvibúnaði frá Rosen-
bauer slökkvibílaverksmiðjunni og hingað var
hann keyptur í gegnum umboðsaðilann Ólaf
Gíslason í Reykjavík. Áður var Bensinn mjólkur-
bíll í norsku dölunum.
Að sögn Óskars Óskarssonar slökkviliðsstjóra
bætir nýi bíllinn mjög aðstöðu til slökkvistarfa
austan Héraðsvatna. Bíllinn sé ntun þægilegri í
notkun en tveir gömlu bflamir og að auki fast að
því jafn kraftmikill og þeir báðir til samans.
Talsverðar framkvæmdir í Húnaþingi vestra
llndirbúin bygging íbúða aldraða
Skrifstofa jafnréttis-
mála til Sauðárkróks
Á vegum sveitarfélagsins Húnaþings vestra
eru talverðar byggingarframkvæmdir í und-
irbúningi og að undanförnu hefur verið unn-
ið að stækkun leikskólarýmis og endurbótum
á sundlauginni. I bígerð er að byggja sex íbúð-
ir fyrir aldraða við Nestún á Hvammstanga
og er áætlað að þær tengist þeim íbúðum og
þjónustuaðstöðu sem fyrir er.
Nýr leikskóli var tekinn í noktun á Hvamms-
tanga fyrir nokkmm árum. Hluti hússins var þá
ófrágengin en við það að farið var að taka yngri
börn inn á leikskólann, allt frá eins árs aldri,
skorti rými svo sem hvfldaraðstöðu fyrir bömin.
Þessa dagana er þessum framkvæmdum að ljúka
en til þeirra var varið 2,5 milljónum króna.
Þá miðar vel endurbótum og breytingum á
sundlaugarhúsinu. Skipt var um dúk á laugarker-
inu og heitum pottum. Þá er unnið að breyting-
um innanhúss, þar sem fýrir á að koma þrekað-
stöðu, þannig að Húnvetningar eiga í auknum
mæli að geta stundað heilsuræktsína í sundlaug-
arhúsinu. Þessar framkvæmdir við sundlaugina
kosta rúmar sex milljónir króna.
Að sögn Brynjólfs Gfslasonar sveitarstjóra
vinnur arkitekt að hönnun sex íbúða fyrir aldr-
aða, en lán eru fyrirliggjandi fyrir þessarari
byggingu. Áætlað er að verktaki á Hvamms-
tanga byggi húsin, en til þessara framkvæmda
em til ráðstöfunar 50 milljónir króna, og standa
vonir til að unnt verði að hanna og byggja hús
fyrir þá fjárhæð.
Á fundi ríkisstjómar í gærmorgun var kynnt erindi frá Páli
Péurssyni félagsmálaráðherra þess efnis að skrifstofa jafnrétt-
ismála yrði flutt frá Reykjavík út á land. Útvarpið greindi frá
því í gær að mikil andstaða væri við flutning stofnunarinnar
meðal starfsfólks og það ætlaði allt að hætta störfum ef af flutn-
ingnum yrði.
Feykir hefur fregnað að samþykkt liggi fyrir um að áætlað
sé að flytja skrifstofuna til Sauðárkróks, en starfsmaður frá
stofnuninni hefur starfað á Blönduósi um árabil og þjónað kjör-
dæminu. Á skrifstofu jafnréttismála í Reykjavík em fimm sér-
fræðingsstörfs.
Með nýjum lögum breytist nafn skrifstofunnar í haust, en þá
er flutningurinn áætlaður, mun hún þá heita jafnréttisskrifstofa.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra sagði í útvarpsviðtali í gær
að hann vonaðist til að það starfsfólk sem unnið hefði á skrif-
stofu jafnréttismála í Reykjavík mundi sækja um störf á jafn-
réttisstofu.
...bflaj, tiyggmgaj,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavana...
BÓKABÚÐ
BRYNcJABS
STJÐURQÖTU 1 SlMI 463 6960
T
KODAKTbCPRESS - %*J
__________gædaframköllun