Feykir - 07.06.2000, Page 5
21/2000 FEYKIR 5
„Munið í glens og glaumi“
Nýútkominn geisladiskur með lögum Ögmundar Svavarssonar
Ögmundur Svavarsson að störfum í Mjólkursamlaginu.
Ögmundur Svavarsson,
sem lengst ævi starfaði í
Mjólkursamlagi Skagfirðinga,
var mjög tónelskur maður. Ög-
mundur fékkst mikið við spil
og söng og var meðal þeirra
sem tóku virkan þátt í Dægur-
lagakeppni Kvenfélags Sauð-
árkróks á vordögum keppninn-
ar á sjötta áratugnum, átti þá í
tvígang sigurlag keppninnar.
Ögmundur lést á liðnu hausti
og til minningar um hann hef-
ur fjölskyldan nú gefið út
geisladisk með lögum hans.
„Munið í glensi og glaumi” er
yfirskrift disksins, en það er ti-
tillagið, samið um 1950 og er
eitt elsta lag Ögmundar sem
varðveist hefur. Það var upp-
haflega flutt við endurvígslu
félagsheimilisins Bifrastar á
Sauðárkróki árið 1952 við
texta Guðrúnar Gísladóttur.
Guðbrandur Þorkell Guð-
brandsson samstarfsmaður Ög-
mundar hjá kaupfélaginu skrif-
ar ávarp til hlustenda í textabók
geisladisksins, þar segir m.a.:
„Þegar Ögmundur var að
alast upp áttu böm alþýðufólks
sjaldnast kost á tónlistamámi
en hann nýtti sér það sem í
boði var auk sjálfsnáms og
náði ungur tökum á hljóðfæra-
leik. Snemma hóf hann að
leika fyrir dansi og á Sauðár-
króki var stofnuð ein af fyrstu
fullskipuðu danshljómsveitun-
um á landsbyggðinni, H.G.
kvintettinn. og var Ögmundur
einn hljómsveitarmanna. Auk
þess tók hann þátt í kórstarfi,
sem löngum hefur verið blóm-
legt í Skagafirði, og söng hann
m.a. í Kirkjukór Sauðárkróks
um áratugaskeið.
Karlakór hafði starfað á
Sauðárkróki fyrr á öldinni, en
starfsemi hans legið niðri um
hríð. Um 1960 tóku nokkrir
áhugamenn um kórsöng á
Sauðárkróki sig saman um að
endurreisa kórinn og leituðu til
Ögmundar um að leiða kór-
starfið og stjóma honum. Af
þessu varð, og stjórnaði Ög-
mundur karlakómum í 6 eða 7
ár samfleytt. Um 1970 var
stofnuð lúðrasveit á Sauðár-
króki og leiddi Ögmundur þá
sveit fyrstu skrefin.
Tónlistin skipaði því alla tíð
stóran sess í lífi Ögmundar og
leitaði hann iðulega inn í henn-
ar heim þegar tóm gafst. Það
fór því ekki hjá því að við þau
fækifæri yrðu til lög og einnig
textar, en því miður hefur fæst
af því varðveist. Síðustu árin
var Ögmundur þó farinn að
taka saman lagasmíðar sínar að
hvatningu vina og fjölskyldu
og huga að varðveislu þeina,
en honum entist ekki aldur til
að ljúka því verki. Að honum
gengnum ákvað fjölskyldan
því að heiðra minningu hans
með því að ljúka því verki og
árangur þess birtist hér á þess-
um geisladiski.
Sú kynslóð, sem nú er um
það bil að ljúka sínu dagsverki,
átti sér marga drauma og sér
suma þeirra rætast í afkomend-
um sínum. Það er mikilvægt
fyrir þessa sömu afkomendur,
að þeir sýni foreldmm sínum,
ömmum og öfum virðingu sína
og þökk fyrir það þjóðfélag,
sem þeim tókst að byggja upp
þeim til handa og þau lífskjör,
sem þau njóta. Það er þó ekki
síður mikilvægt, að sýna rækt-
arsemi með því að halda til
haga þeim verkum huga og
handa, sem þessari kynslóð
tókst að skapa í stolnum stund-
um frá amstri hins daglega lífs
og baráttunnar um brauðið.”
Lög við hin ýmsu tækifæri
í textabókinni segir einnig
frá lögunum. Um „Fyrsta vor-
blóm” segir að hinn merki
kennimaður sr. Helgi Konráðs-
son, sem þjónaði Sauðárkróks-
söfnuði um áratuga skeið, orti
þetta ljóð eftir að Tóta á Stöð-
inni færði honum fyrstu blóm
vorsins að lokinni messu á
sumardaginn fyrsta, en þetta
var siður hennar árum saman.
Um lagið „Glerhallarvík” seg-
ir. Glerhallarvík er austan und-
irTindastóli norðanverðum og
er þekkt fyrir fagra steina, sem
þar finnast. Friðrik Hansen
kennari og skáld á Sauðár-
króki, orti þetta fallega ljóð um
þennan stað og Ögmundur
hreifst af því og varð það
kveikjan að laginu.
Meðal laga á disknum eru
tvö laga Ögmundar sem urðu í
fyrsta sæti í Dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks á
sjötta áratungum. Rokkdansar-
inn og Týróldans eldri borgara.
Það er að sjálfsögðu Geir-
mundur Valtýsson sem syngur
„Rokkdansarann” og Álfta-
gerðisbræður syngja lagið „Til
Skagafjarðar”. Bræðumir Sig-
fús og Pétur Péturssynir syngja
flest laganna, en Pétur er
einmitt tengdasonur Ögmund-
ar. Þá syngur einnig ung og
efnileg söngkona frá Hofsósi,
Sólveig Fjólmundsdóttir.
Diskurinn er langmestu
leyti skagfirsk framleiðsla og
m.a er hönnun umslags og
textabókar gerð af Ögmundi
Amarsyni dóttursyni Ögmund-
ar Eyþórs Svarssonar. Hljóð-
færaleikur er í góðum höndum:
Geirmundur Valtýsson, Hilmar
Sverrisson, Hlynur Guð-
mundsson, Hugrún Sif Hall-
grímsdóttir, Stefán Gíslason og
Steinar Gunnarsson. Upptökur
og hljóðblöndun fóm fram í
úar-mars 2000.
„Munið í glens og glaumi”
fæst í Skagfirðingabúð, Ábæ
og Versluninni Hegra á Sauð-
árkróki. Lesendur Feykis, utan
héraðs, sem áhuga hafa að
eignast diskinn er velkomið að
hafa samband á ritstjórnina í
síma 453 5757.
Aukakílóin burt! Ný öflug vara!
Náðu varanlegum árangri í eitt skiptið fyrir öll. Ég missti 7 kg.
á fimm vikum. Síðasta sending seldist upp. Persónuleg ráðgjöf
og stuðningur. Hringdu strax. Helma & Halldór sími 557
4402 og 587 1471. grima@centrum.is
H.S. Stúdiói á Sauðárkróki jan-
^ÍANDS
Vilt þú verða
trésmiður?
Frá og með næsta hausti verður starfrækt við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki
Grunndeild tréiðna
Allir áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við okkur á skrifstoftt
skólans eða í síma 453 6400.
Skólameistari.
R
Skagafjörður
Til umsjónarmanna
beitarhólfa og ræktunar-
landa á Sauðárkróki
Sveitarstjórn Skagaíjarðar hefur ákveðið að segja upp öllum
munnlegum samningum sem gerðir hafa verið um afnot
beitarhólfa og ræktunarlanda á Sauðárkróki.
Miðast uppsögnin við 1. júní árið 2000 og falla allir slíkir
samningar úr gildi 31. niaí árið 2001.
Sauðárkróki 1. júní 2000.
Sveitarstjóri.