Feykir - 19.07.2000, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 25/2000
„Fórum ekki út í þetta til að verða rík“
segja Steina og Sorin sem ætla að reka Kaffi Krók næstu fimm árin
„Það er draumur okkar beggja að eignast eigið hótel og vonandi
kemur að því einhvem tíma. Ég er búin að vinna á hótelum eigin-
lega frá því ég byrjaði að vinna, 15 ára gömul, og það finnst mörg-
um það skrýtið hvemig það hittist þannig á að ég og Sorin kynnt-
umst, hann frá Rúmeníu og ég frá Islandi, en við kynntumst í Nor-
egi þar sem við störfuðum bæði á hóteli sumarið 1998”, segir Steina
Margrét Finnsdóttir 22 ára Sauðkrækingur, en hún tók nýlega við
rekstri Kaffi Króks á Sauðárkróki ásamt unnusta sínum Sorin Laz-
ar. Sorin er tónlistarmaður og er hann búinn að starfa sem slíkur hjá
Hilton-hótelakeðjunni um allan heim, m.a. í Japan, Kína og Noregi,
auk þess sem hann var í nokkum tíma að spila á veitingastöðum í
Grænlandi. „Sauðárkrókur er góður staður og hér býr indælt fólk.
Ég vil frekar vera hérna en í Reykjavík, en það er mikill munur á
þessum stöðum og milljóna borginni Búkarest sem ég er frá”, segir
Sorin.
Steina Margrét og Sorin hafa ýmislegt á prjónunum varðandi rekstur
Kaffi Króks.
Steina segir að það hafi komið
skyndilega upp að þau tóku við Kaffi
Krók, en í rauninni hafi það verið eini
möguleikinn fyrir þau til að geta verið
áfram á Sauðárkróki. Sorin átti erfitt
með að fá fasta vinnu á Króknum og
það varð til þess að hann réð sig til að
spila á veitingastað í Grændlandi í allt
sumar og fram á haust. „Tveim vikum
áður en hann fór út rákumst við á aug-
lýsinguna um að Kaffi Krókur væri til
leigu. Við fórum því til Maríu Bjarkar
og það varð úr að við skelltum okkur
í þetta. Sorin fór svo út og náði strax
að stytta þennan samning úr sex mán-
uðum í þrjá og síðan niður í einn mán-
uð þannig að við gátum byrjað hér sam-
arí’.
Aðspurð segir Steina að þau hafi
tekið kaffihúsið á leigu til 5 ára og Sor-
in segir að það þýði ekkert að fara í
þetta í styttri tíma til að ná að skapa
staðnum stíl. En er þetta ekki mikið bí-
ræfni að fara út í þennan rekstur eins
mikil samkeppni og er milli veitinga-
staðanna í Gamla bænum á Króknum?
„Mér finnst ekki hægt að tala urn
samkeppni þannig lagað á milli þess-
ara staða, þetta eru svo ólíkir staðir.
Olafshús er ágætur matsölustaður, þar
sem þú getur fengið allt frá súpu og
upp í stórsteik. Við erum kaffihús með
léttar veitingar og þægilegan bar á
kvöldin og Royal er gott danshús.
Við fómm svo sem ekki út í þetta til
þess að verða rík, en við höfum hug á
að breyta Kaffi Krók og gera hann að
ennþá meira aðlagandi stað. Leggum
mikið kapp á góða þjónustu og að
gestunum líði vel. Ég held að bær eins
og Sauðárkrókur þurfi á góðu kaffi-
húsi að halda, þar sem fólk getur kom-
ið og spjallað á kvöldin. Okkar móttó
er að Skagfirðingar séu ánægðir með
þennan stað og fari héðan ánægðir eins
og aðrir gestir okkar”.
Rómantísk augnablik
Steina segir að talsvert hafi verið
um ferðafólk að undanförnu og þau
fengið skemnitilegar heimsóknir fólks
frá ýmsum löndum. Til dæmis hafi
komið par um daginn þar sem stúlkan
var hálf sænsk og hálf íslensk og svo
skemmtilega hittist á að faðir hennar
bjó einu sinni á Sauðárkróki og vann
þá í byggingarvörudeild KS þar sem
Kaffi Krókur er einmitt til húsa. Þetta
unga par var að fara að opinbera trú-
lofun sína og beið eftir því að foreldr-
ar hennar kæmu hingað til að sam-
fagna. Opinberunin fór fram við út-
sýnisskífuna á Nöfunum.
„Þegar þau sögðu okkur frá þessu,
þá kom auðvitað ekkert annað til
greina en við helltum í kampavínsglös
þannig að þau gætu skálað fyrir þessu
saman. Og þau voru svo glöð og
spennt að það komu tár í augun. Þetta
var mjög fallegt og skemmtilegt.
Annars er þetta búið að ganga mjög
vel frá því við byrjuðum 1. júní. A 17.
júm var t.d. dansað héma uppi hjá okk-
ur og ég man nú bara ekki eftir því að
hafi verið dansað í þessum litla sal
áður. En við ætlum að vera með dans-
leiki annað slagið, vorum t.d. með
Gyldruna um daginn og verðum með
tónleika með Jagúar á sunnudags-
kvöldið. Svo er Sorin að spila héma
annað slagið og meira að segja stund-
um þegar stemmnigin er sérstök þó
það hafi ekki verið auglýst fyrir fram.”
Það hafa sjálfsagt sumir veitt því at-
hygli að stundum er Sorin og félagi
hans Ellert Jóhannsson að spila á
staðnum hinumegin við götuna, Olafs-
húsi, afhverju það Sorin?
„Það er vegna þess að Öli í Ólafs-
húsi er besti vinur minn. Hann var sá
fyrsti sem vildi fá mig til að spila og
eftir það hef ég verið fenginn til að
spila á Hótel Akureyri, Olafsfirði, og
fleiri staðir sem vilja fá mig til að
spila”.
Drykkja Grænlendinga ekki ýkt
Eins og fyrr segir hefur Sorin spil-
að í Grænlandi og eftir að hann og
Steina kynntust unnu þau þar bæði í
sex mánuði. Steina segir að það sé
ekki orðum ýkt að Grænlendingar
drekki mikið, og fylliríið á Islending-
um sé alveg bamaskapur miðað við
það.
„Yfirleitt var komið svo mikið í
kassann um miðnættið á laugardags-
kvöldum að þá þurfti að tæma pening-
ana úr honum til að hægt væri að selja
meira. Og þeir tímdu ekki að hafa bar-
inn lokaðan eitt kvöld. því þá vom þeir
að tapa hálfri milljón í veltu, bara á
virkum degi”, segir Steina.
Sorin segir að Nuuk, þar sem þau
vom, sé að mörgu leyti snyrtilegur bær
og þar séu margir huggulegir veitinga-
staðir, en líka óskaplegar sóðabúllur,
þar sem þökin séu hriplek á vetuma og
teppin þykk af margra daga bjórsulli.
Þetta séu dimmir og dmngalegir stað-
ir sem Grænlendingamir sæki í og
þeim finnist þetta vera þeirra staðir.
Fínu staðimir séu fyrir Danina. Þama
endurspeglist kannski minnimáttar-
kenndin hjá Grænlendingum gagnvart.
yfirboðumm sínum í Danaveldi.