Feykir - 19.07.2000, Síða 8
19. júlí 2000, 25. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Hlutafélagið Eyjaskip gerir út
Hraðskeytt skip til
skemmtisiglinga
Hraðskeytt skip til skemmti-
siglinga hefur verið keypt til
Skagafjarðar og kom það í
hendur nýrra eigenda um síð-
ustu mánaðamót, en um kaupin
var stofnað hlutafélagið Eyja-
skip ehf. Skipið heitir Straumey
en hét áður Hafrún og var þá
gert út frá Stykkishólmi. Bátur-
inn tekur allt að 62 farþega í
siglingu.
Það eru Sigurður Friðriks-
son, sem rekur ferðaþjónustuna
á Bkkaflöt skammt frá Varma-
hlíð, og Þorgrímur Ómar Una-
son á Hofsósi, sem em aðaleig-
endur Eyjaskipa og mun Ómar
sjá um daglegan rekstur skips-
ins. Ómar segir að meiningin sé
að stunda skemmtisiglingar urn
Skagafjörð, umhverfis Drang-
ey, vestur og norður fyrir
Málmey og að Þórðarhöfða.
Ómar, sem hefur boðið upp á
slíkar ferðir á litium bád í nokk-
ur ár, segir að mikil eftirspum sé
eftir siglingum um Skagafjörð-
inn, enda hafi ferðamanna-
straumur þangað aukist til
muna síðustu ár og fólk stoppi
nú lengur en áður. Hann segir
að kaupin á bátnum hafi komið
snögglega til og því séu þeir fé-
lagar í raun að byrja að kynna
nýja afþreyingarmöguleika.
Að sögn Ómars er þægileg-
ur hraði á Straumey 18 mílur á
klukkustund og því komi vel til
greina að fara lengri ferðir á
bátnum, nefnir hann t.d. út með
Ströndum, til Héðinsfjarðar og
jafnvel til Grímseyjar, allt eftir
vilja viðskiptavina.
ÖÞ.
Eins og sjá má er mikið og gott rými fyrir farþega í Straumey.
Ómar Unason skipstjóri og annar tveggja aðaleigenda í far-
þegasal skipsins.
Trúlega hafa þessar ungu og snotru peysufatakonur á Hofsósi skemmt sér vel á Hofsós 2000.
Brottfluttir Hofsósingar
fjölmenntu á átthagamótið
Mikill mannfjöldi var saman-
kominn á Hofsósi um helgina,
þar sem haldin var hátíðin
Hofsós 2000. Fólk með rætur
til Hofsós flyktist í þorpið,
heiiu fjölskyldurnar komu
saman, og strax á föstudags-
kvöld var orðið fullt út úr dyr-
um í kaffihúsinu Sólvík og
Sigtúni, en opið var á báðum
stöðum. Veðrið var Iíka yndælt
þetta kvöld eins og um helg-
ina, þó svo að nokkuð hressi-
legar hitaskúrir hafi gert á
Iaugardeginum. A laugar-
dagskvöld var síðan húsfyllir í
Höfðaborg á dansleik með
Hljómsveit Geirmundar.
„Þetta var ákaflega vel
heppnað og fólk mjög ánægt.
Þetta fór vel af stað á föstudags-
kvöldið og þá þegar mikið líf í
þorpinu. Minna varð úr veiðinni
á laugardaginn út af úrkominni
enda mikið vatn komið í ána, en
það gerði ekkert til. Fólk spjall-
aði saman í tjöldunum og það
var tekið til við leiki og mikið að
gerast á íþróttavellinum, þar sem
fram fór heilmikill fótboltaleik-
ur. Við grilluðum síðan við
Höfðaborg um kvöldið og svo
var farið á ballið, eða spjallað
saman fram eftir nóttu”, sagði
Björgvin Guðmundsson aðalfor-
sprakkinn fyrir hátíðinni.
Björgvin segist ekki þora að
giska á hvað margt hefði verið í
þorpinu um helgina, en um 400
manns hefði verið á ballinu og
fjöldi tjaldvagnanna mikill auk
þess sem erfitt hafi reynst að fá
gistingu á Hofósi þessa helgi,
Þegar Hofsósingar voru að
ganga til rekkju að lokinni átt-
haga-hátíð sinni aðfaranótt
sunnudagsins sást til þriggja
pilta þar sem þeir voru að
dunda sér við að fjarlægja garð-
styttur úr görðum í þorpinu.
Lögreglunni á Sauðárkróki var
gert viðvart og voru piltamir
gómaðir á leið sinni til Sauðár-
króks. Reyndust þeir auk
þrátt fyrir að þar sé þónokkuð
framboð á góðri gistingu hjá
ferðaþjónustunni.
„Eg get heldur ekkert sagt
um það hvenær næsta Hofsóshá-
tíð verður haldin og óvfst hvort
ég stend fyrir henni. Það eru
fimm ár síðan við komum síðast
saman og mér finnst hæfilegt að
láta þann tíma líða á milli”, sagði
Björgvin.
tveggja stórra garðstyttna hafa í
fórum sínum áfengisflöskur
sem þeir hnupluðu af tjaldstæð-
inu og eitthvað smádót voru
þeir líka með sem lögreglan tók
í sína vörslu. Drengjunum var
sleppt að lokinni yfirheyrslu
enda málið upplýst. Að öðru
leyti var um rólega helgi að
ræða hjá lögreglunni í Skaga-
firði.
Stálu styttum úr
görðum á Hofsósi
...bílar, tryggtagar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYHJABS
SUÐURGÖTU 1 SÍMI 453 5950