Feykir - 02.08.2000, Qupperneq 3
26/2000 FEYKIR 3
Söguarfínum haldið til haga á Revnistað
Bæjardyraport Þóru endurgert
Gengið úr kirkju í hinu mesta blíðskaparveðri.
ÚTSALAN
hefst
fimmtudaginn
1. ágúsl
Við athöfn í Reynistaðar-
kirkju sunnudaginn 23. júlí var
fagnað endurgerð bæjardyra-
ports Þóru, en undanfarin miss-
eri hefur verið unnið að endur-
bótum á gamla bæjardyrahús-
inu á Reynistað. Það er eitt af
örfáum stafhúsum frá 18. öld
sem enn stendurog það heilleg-
asta. Það var þáverandi eigandi
Reynistaðar, Þóra Bjömsdóttir
biskupsekkja, sem lét endur-
byggja bæinn á ámnum 1758-
’63 eftir að eldri bærinn brann.
Eftir henni hefur Hörður
Agústsson arkitekt nefnt húsið
Bæjardyraport Þóm.
„Það er alltaf gaman þegar
vel er gert og ennþá frekar þeg-
ar allir em á eitt sáttir. Þetta hús
er falleg umgjörð um magnaða
og merka sögu staðarins”, sagði
Sigríður Sigurðardóttir for-
stöðumaður Byggðasafnsins í
Glaumbæ við athöfnina í
Reynistaðakirkju en Byggða-
safnið og Þjóðminjasafnið
stóðu að lagfæringu hússins og
nutu þar m.a. styrks frá mennta-
málaráðuneytinu.
Bjöm Bjamason mennta-
málaráðherra var viðstaddur at-
höfnina, en hann var á sínum
tíma sumarstrákur á Reynistað.
Bjöm sagði þetta verkefni eitt
skemmtilegasta embættisverk
sem hann hefði unnið, ekki síst
fyrir tengsl sfn við Reynistað.
Menntamálaráðherra vék að
þeiiri sögu sem Skagafjörður
geymdi og þar kæmi Reyni-
staður ekki síst við sögu. Hann
þakkaði Reynistaðamönnum
fyrir að varðveita þennan arf.
Bjöm vék að sumardvöl sinni á
Reynistað og kvaðst eiga dýr-
mætar minningar. Það hefðu
verið forréttindi að kynnast
þama tveimur tímum og t.d.
væm ógleymanlegir túrarnir í
hestakerrunni.
Séra Gísli Gunnarsson for-
seti sveitarstjómar Skagafjarðar
hafði umsjón með athöfninni í
kirkjunni, kirkjukórinn söng við
undirleik Stefáns R. Gíslasonar
og þær systur Berglind og Sara
Katrín léku á blásturshljóðfæri.
Þá flutti Hjalti Pálsson ritstjóri
Byggðasögu Skagafjarðar ítar-
legt erindi um sögu Reynistað-
ar allt fram á þennan dag.
Sigurður Jónsson bóndi á
Reynistað tók við blómvendi
sem þakklætisvotti frá sveitar-
stjórn Skagafjarðar en Reyni-
staðabændur varðveittu stafhús-
ið með þvf að færa það í heilu
lagi fram á hlað og byggðu þar
yfir það. Það var Bragi Skúla-
son hjáTrésmiðjunni Borg sem
hafði umsjón með tréverki við
framkvæmdina en Helgi Sig-
urðsson sá um torf- og grjót-
hleðslur.
Fyrir dyrum gamla bæjardyrahússins: Sigríður Sigurðardóttir
safnvörður í Glaumbæ, Sigurður Jónsson bóndi á Reynistað,
honum á vinstri hönd eru síðan eiginkona dómsmálaráðherra
og ráðherrann sjálfur Bjöm Bjamason.
Messa á Ábæ á
sunnudaginn
Hin árlega messa í Ábæjar-
kirkju í Austurdal fer fram nk.
sunnudag 6. ágúst og hefst kl.
14. SéraÓlafur Þór Hallgríms-
son sóknarprestur á Mælifelli
prédikar og þjónar fyrir altari.
Einsöng og tvísöng syngja
Kristján Valgarðsson og Sigríð-
ur E. Snorradóttir. Organisti er
Bjami Valtýr Guðjónsson.
Að venju verður boðið til
kaffidrykkju að messu lokinni
heima á Merkigili og eru það
systkini Helga heitins Jónsson-
ar sem bjóða til þess eins og
þau hafa gert síðustu fjögur árin
frá því Helgi lést.
Næsta blað Feykis
kemur út 23. ágúst.