Feykir - 27.09.2000, Page 5
32/2000 FEYKIR 5
„Góð þjónusta ástæðan fyrir
því að bændur koma með
sitt sláturfé til okkar“
segir Sigurður Jóhannesson framkvæmdastjóri SAH
„Við teljum okkur veita
bændum góða þjónstu og það er
vafalaust ástæðan fyrir því að
þeir kjósa að koma með sína
dilka og slátra hjá okkur. I dag er
ekki sjálfgefið að bóndi sem
alltaf hefur slátrað á tilteknu slát-
urhúsi geri það án þess að ganga
úr skugga um hvar honum býðst
besta þjónustan og bestu kjörin.
Bændur eru að reka sitt fyrirtæki
eins og aðrir og veitir ekki af að
fá sem mest fyrir sína fram-
leiðslu. Eg hef trú á því að það sé
framtíðin að bændur flytji sitt fé
á milli héraða til slátmnar. Sam-
göngur hafa batnað það mikið
og yfirleitt hafa þessir flutningar
gengið vel”, segir Sigurður Jó-
hannesson framkvæmdastjóri
Sölufélags Austur-Húnvetninga
á Blönduósi, en félagið hefur
verið nokkuð í fréttum í haust
vegna mikillar aukningar í dilka-
Pálmi Jónsson fyrrum þingmaður og ráðherra og bóndi á Akri var að framvísa sláturfé ásamt
dóttur sinni Jóhönnu og bónda hennar Gunnari Kristjánssyni á Akri. Með þeim er dýralækn-
irinn Jón Pétursson, sem sækja þurfti austur á Egilsstaði, þar sem hann var dýralæknir í rúm
40 ár. Jón segir Blönduós draumstað og sláturhús SAH gotL „Hér er matvælafræðingur, men-
ntaður sláturhússtjóri og framkvæmdastjóri sem stjómar fyrirtækinu.
Sigurður Jóhannesson framkvæmdastjóri SAH.
slátrun og bæði Eyfirðingar og
Þingeyingar korna þangað með
dilka til slátmnar.
Sigurður bendir á að í sjálfu
sér, sé það fjarri lagi að furða sig
á einhverjum vegalengdum í
þessu sambandi, það muni t.d. á-
kaflega litlu íyrir bónda úr Hörg-
árdal í Eyjafirði, hvort hann flytji
dilkana vestur á Blönduós eða
austur á Húsavík, eftir að slátmn
var hætt hjá KEA á Akureyri.
Hjá SAH er nýlega endur-
bætt og mjög fullkomið slátur-
hús. Þetta er fjórða haustið sem
slátrað er með nýju sláturlínunni
og yfir daginn er slátrað 16-1700
dilkum. I haust stefnir í að slátr-
að verði um 50 þúsund fjár og er
það mikil aukning frá liðnu
hausti, en þá var slátrað 38.500.
Sigurður segir að aukningin sé
aðallega úr Eyjafirðinum og
Þingeyjarsýslunni, en einnig
komi talsvert magn úr Skaga-
firðinum eins og í fyrra.
Sigurður segir mikla sam-
keppni um sláturféð og SAH
borgar það verð fyrir kjötið sem
bændur fóm fram á í haust. Sig-
urður segir það verð raunhæft og
SAH sé ekki að borga þar neitt
yfirverð, enda sé ekki til neitt
sem heiti yfirverð, aðeins mis-
munandi verð.
- En er þetta ekki í raun lítið
bil sem sláturleyfishafinn hefur
upp á að hlaupa, það sem bónd-
inn fær fyrir kjötið og það sem
smásöluaðilinn er tilbúinn að
greiða fyrir kjötið, kvötvinnsl-
umar og verslanimar?
„Já það má segja það að þetta
bil er ekki stórt. En við skoðum
heildardæmið og teljum okkur
geta staðið ágætlega við þær
skuldbindingar sem við höfum
gert. Eg held að enginn geti sagt
annað en við höfum staðið við
okkar og þannig þarf það að
vera”, sagði Sigurður.
Auk sláturhússins rekur SAH
kjötvinnslu og er nteð starfsemi
allt árið. Nú í aðalsláturtíðinni er
einnig folaldaslátrun, enda
þónokkur markaður fyrir
foldaldakjöt um þessar mundir.
„Það verður að nýta þá markaðs-
möguleika sem fyrir hendi em”,
segir Sigurður, en hjá SAH þarf
einnig að nýta stund og stund
kvölds og morgna í stórgripa- og
svínaslátmn, þannig að starfsfólk
SAH hefur ærinn starfa um þess-
ar mundir.
Tímar í Íþróttahiísi á Saudárkróki 2000 2001 (tekur gildi 2. okt.)
KL. MÁNUDAGUR ÞRIÐJUDAGUR MIÐVIKUDAGUR FIMMTUDAGUR FÖSTUDAGUR — KL. LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR
1 0800-0840 ÁRSK FNV/FNV/ ÁRSK ÁRSK 0900-0950 9.FL.
2 0840-0920 ÁRSK FNV/FNV/ ÁRSK ÁRSK 0950-1040 FRJÁLSAR 9.FL.
3 0940-1020 ÁRSK FNV/FNV/ ÁRSK FNV/FNV/ ÁRSK ■ 1040-1130 FRJÁLSAR 9.FL.
4 1020-1100 ÁRSK FNV/FNV/ ÁRSK FNV/FNV/ ÁRSK ' 1130-1220 M.FL.KA. 7.FL./DR.FL./U.FL
5 1110-1150 ÁRSK ÁRSK/FNV/FNV ÁRSK FNV/FNV/ ÁRSK 1220-1310 M.FL.KA. 7.FL./DR.FL./U.FL
6 1150-1230 KEN/HNIT/HNIT ÁRSK/FNV/FNV ÁRSK FNV/FNV/KEN ÁRSK/HNIT/HNIT ' 1310-1400 U.FL. FÓTB.4.KA
7 1230-1310 KEN/HNIT/HNIT /KEN ÁRSK/HNIT/HNIT 1400-1450 U.FL. FÓTB.3.KA
a 1310-1350 FNV/FNV/FNV FNV/FNV/ FNV/FNV/ FNV/FNV/ ÁRSK ý 1450-1540 10-11/ST.FL FÓTB.M.KV/3.KV
a 1400-1440 FNV/FNV/FNV FNV/FNV/ FNV/FNV/ FNV/FNV/ ÁRSK : 1540-1630 10-11/ST.FL FÓTB.M.KA
10 1440-1520 ÍÞR. 5-6 FNV/FNV/ FNV/FNV/ FNV/FNV/ lÞR.5-6 1630-1720 DR.FL. NEISTI
n 1530-1610 ÍÞR. 5-6 FNV/FNV/ FNV/FNV/FRJÁLS FNV/FNV/ ÍÞR.5-6 1720-1810 FRJÁLSAR NEISTI
I2 1610-1650 ÍÞR.1-2 / 7.FL FÓ.4KA/IÞR 5-6 FNV/FNV/FRJÁLS (ÞR.3-4 / 7.FL ÍÞR.1-2 ' 1810-1900 FRJÁLSAR
Li 1700-1750 ÍÞR.3-4 / 7.FL STFL./10-11 FNV/FNV/FRJÁLS (ÞR. 5-6 ÍÞR.3-4
14 1750-1840 FRJÁLSAR STFL./10-11 FRJÁLSAR IÞR. 1-2 FÓTB.3.KV.
LL 1840-1930 GRÓ/ FRJÁLSAR MFL.KA MFL.KA MFL.KA FÓTB.3.KA
16 1930-2020 GRÓ/ FRJÁLSAR MFL.KA MFL.KA MFL.KA FÓTB.M.KV.
r7 2020-2110 KRÆ/10-11/ U.FL. DRFL/9.FL/U.FL MO/KRÆ/DR.FL DR.FL/ST.FL/9.FL FÓTB.2.KA. :
18 2110-2200 KRÆ /MOL/ U.FL. DRFL/9.FL/U.FL KRÆ/UPP/ST.FL DR.FL/U.FL/10-11. FÓTB.2.KA/M.KA
19 2200-2250 UPP/FNV/FNV FNV HMNK FNV FÓTB.M.KA.