Feykir - 27.09.2000, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 32/2000
Hagyrðingaþáttur 302
Heilir og sælir lesendur góðir.
Einhverju sinni mun Isleifur Gísla-
son á Sauðárkróki hafa boðið Halla
Hjálmars heim til að þiggja hressingu.
Mun Haraldur þá hafa ort svo.
ísleifur ég þakka þér
þennan litla sopa.
En áttu kannski eins og er
annan stærri dropa.
Önnur vísa kemur hér sem ég held
endilega að sé einnig eftir Halla.
Fyrir eyrum ómar suð
erfið lífsins brekka.
Almáttugur góður guð
gef mér nú að drekka.
Þorbjöm Kristinsson á Akureyri
mun hafa verið vistmaður á dvalar-
heimilinu Hlíð er hann oiti svo.
Vel mér fellur vistin hér
varla skell til muna.
í hárri elli eigna mér
eina kellinguna.
Eitt sinn er sýnt var í sjónvarpi frá
þinglausnum á Alþingi orti Guðmund-
ur H. Halldórsson á Húsavík.
Nú er þinghaldið gengið um garð
glaðir menn fara heim að svo búnu.
Að endingu loksins af því varð
að Albert kyssti Sigríði Dúnu.
Nokkru síðar þegar Davíð og Jón
Baldvin réðu ríkjum í landsstjórninni
varð Guðmundi að orði.
Davíð og Baldvin ég bregðast ei vil
og búsifjum þeirra með rósemd við
tökum.
En fortíðarandinn hann væri ekki til
ef verið hefðu þeir blettir í lökum.
Eftir að Guðmundur fór að eldast
mun hann hafa ort þessa.
Fækkar skrefum falla tjöld
fyrr þó skjöldinn bæri.
Bráðum geymir gröfin köld
glötuð tækifæri.
Einhvem tfma lærði ég eftirfarandi
morgunbæn sem ég held örugglega að
sé eftir Starra í Garði.
Voldugi faðir líkna þú líkama og sál
ljá mínu blinda auga þinn ffábæra kíki.
Gef oss í dag vort daglega gjaldþrota-
mál
dýrð sé þér mammon, að eilífu varir
þitt ríki.
Ein kemur hér í viðbót þingeyskrar
ættar, og mun Jón Þorsteinsson á Am-
arvatni hafa gert hana eftir ósk frá kon-
um.
Til þess sem er minnimáttar
mannkærleikans þel ég ber.
Það er einkum þegar náttar
að þetta vakir fyrir mér.
Einar Árnason í Landamótaseli í
Ljósavatnshreppi mun hafa ort svo til
konu sinnar.
Ást mín hefur aldrei kunnað
að eigra þar og hér.
Konu hef ég aldrei unnað
annarri en þér.
Kannski er ekki alveg eins mikil al-
vara í þessari kunnu vísu Stefáns
Sveinssonar.
Gekk ég ungur grýttan veg
af glöpum þungum vola.
En Önnu íTungu elska ég
eins og lungun þola.
Friðrik Hansen veltir fyrir sér svip-
uðum hlutum, en hefur trúlega aðra
konu í huga.
Hoifði ég á hárið greitt
háls og fagurt enni.
Ég verð ekki orðinn neitt
ef ég gleymi henni.
Þá er gaman að rifja upp þessa
kunnu vísu Sveinbjöms Beinteinsson-
ar.
Þó í vetur verði kalt
vil ég engu kvíða.
Hjá þér finnst mér árið allt
eilíf sumarblíða.
Ef ég man rétt mun eftirfarandi frá-
sögn komin frá Hjörleifi Jónssyni frá
Gilsbakka.
Meyjan sig á ballið bjó
byrjaði dans í salnum.
Augljóst var hún að sér dró
unga sveina í dalnum.
Það vom mestu ósköp af
ávöxtum á borðum,
eins og þeim sem Eva gaf
unnustanum forðum.
Sá magnaði limmsmiður Jóhann S.
Hannesson mun eitt sinn hafa ort svo.
Það er hörmung hvað heitt er í Líma
í húsonum sést varla skfma
því flest er án glugga
til að fá einhvem skugga
og menn fara ekki út nema í síma.
Það er vont að fá fréttir í Varsjá,
að vísu sést Moskva í fjarsjá
en þar hafa ekki enn
fundist heilvita menn
sem hægt væri að leita sér svars hjá.
Talsvert hefur gengið á þegar Karl
Kristjánsson alþingismaður orti svo.
Illverka til er allra bragða neitt
yfirgangs og svika magnast kraftur.
Mannskepnunni miða virðist greitt
frá mennskunni til villidýrsins aftur.
Verður þá best að fá að lokum þessa
einföldu staðreynd sem Júlíus Jónsson
mun eitt sinn hafa sett fram.
Þú hefur alltaf unnið mér
illt í flestum greinum.
Minna gott að þakka en þér
þarf ég ekki neinum.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Leikir Tindastóls í Epson-
deildinni í körfubolta
Veturinn 2000-2001 (Allir leikir klukkan 20).
1. Fimmtudagur 28. september....Tindastóll - IJMFN
2. Sunnudagur 1. október.........UMFG -Tindastóll
3. Fimmtudagur 12. október.......Tindastóll - Valur
4. Sunnudagur 15. október..........Tindastóll - ÍR
5. Fimmtudagur 26. október.........ÍBK - Tindastóll
6. Fimmtudagur 2. nóvember......Tindastóll - Hamar
7. Sunnudagur 5. nóvember...........Þór - Tindastóll
8. Þriðjudagur 14. nóvember.....Tindastóll - UMFS
9. Sunnudagur 3. desember...........KFÍ - Tindastóll
10. Fimmtudagur 7. desember....Tindastóll - Haukar
11. Fimmtudagur 14. desember........KR -Tindastóll
12. Fimmtudagur 4. janúar........UMFN - Tindastóll
13. Fimmtudagur 11. janúar......Tindastóll - UMFG
14. Þriðjudagur 16. janúar........Valur - Tindastóll
15. Fimmtudagur 1. febrúar...........ÍR - Tindastóll
16. Fimmtudagur 8. febrúar........Tindastóll - ÍBK
17. Sunnudagur 11. febrúar.......Hamar - Tindastóll
18. Fimmtudagur 22. febrúar.......Tindastóll - Þór
19. Sunnudagur 25. febrúar........UMFS- Tindastóll
20. Fimmtudagur 1. mars............Tindastóll - KFÍ
21. Sunnudagur4. mars............Haukar - Tindastóll
22. Fimmtudagur 8. mars............Tindastóll - KR
Úrvalsdeildin í körfubolta
Njarðvíkingar í heim-
sókn í fyrsta leiknum
Alvaran í körfuboltanum byrjar ann-
að kvöld, en þá fer fram fyrsta umferð-
in í úrvalsdeildinni, sem heitir eins og
síðasta vetur, Epson-deild. Það eru
Njarðvíkingar sem mæta í þessa fyrstu
rimmu og kvöldskemmtun í Síkinu, en
væntanlega eiga áhorfendur eftir að
eiga þar margar skemmtilegar og
spennandi stundir í vetur.
Ljóst er að í mjög tvísýnan leik
stefnir annað kvöld og eftir æfingaleikj-
um að dæma í haust má reikna með að
Tindastólsmenn þuifi að taka á öllu sínu
ef þeir ætla sér að hafa eitthvað í Njarð-
víkinga að segja, sem ávallt eru með
sterkt lið, en þar em nú við stjómvölinn
félagarnir Teitur Örlygsson og Friðrik
Ragnarsson.
Valur Ingimundarson þjálfari Tinda-
stóls hefur að undanfömu unnið að því
að púslaTindastólsliðinu saman, en það
er mikið breytt frá liðnum vetri. Tinda-
stóll hefur á undanfömum dögum leik-
ið tvo æfingarleiki á Króknum og þar
hefur komið í ljós að einhvem tíma
mun taka að slípa liðið saman þannig að
það fari að spila yfirvegaðan leik.
Tindastólsmenn léku illa gegn Skalla-
grími en unnu samt. í leik á móti Þórs-
umm sl. föstudagskvöld byrjuðu Tinda-
stólsmenn illa og vom mun slakari að-
ilinn fyrri hlutann og vom 17 stig undir
í leikhléi. Það var síðan allt annað lið
sem kom inn á völlinn og nú sýndi það
hvað í því býr og sigraði örugglega
96:80.
Svo er að sjá sem Tindastólsliðið sé
í þokkalegu úthaldi og þeir Svavar, Lár-
us og Kristinn voru að leika vel ásamt
Mayers. Rússinn kom ekki nægjanlega
vel út í leiknum, en Grykkinn lifnaði er
á leið. Gaman verður að fylgjast með
nýliðunum í liðinu í vetur, Axeli Kára-
syni og Matthíasi Rúnarssyni og einnig
er gamli maðurinn Kári Marísson að
æfa með liðinu og verður til taks í vet-
ur, en hann lék meðal annars um árabil
með Njarðvíkingunum á sínum lands-
liðsámm.
M iimM) (gmiáÍMmMiii^mnKgæMíEi