Feykir - 27.09.2000, Blaðsíða 7
32/2000 FEYKIR 7
Björn Halldórsson
bóndi Ketu
F. 29. nóv. 1943 D. 5- sept. 2000
t
Með nokkrum orðum langar
mig að minnast móðurbróður
míns, Bjössa í Ketu. Langur
mánuður er liðinn, þrautagöngu
er lokið, eftir skyndileg veikindi.
Lífið er svo hverfult, sýnir okk-
ur stöðugt að engin vissa er fyr-
ir, hve lengi við fáum að njóta
samvista við þá sem okkur eru
kærir.
Bjössi og Hrefna kona hans
bjuggu allan sinn búskap í Ketu
á Skaga. Þar ólu þau þrjú mann-
vænleg böm, stunduðu sauðfjár-
búskap ásamt því að nytja hlunn-
indi jarðarinnar sem eru mikil.
Bjössi var bóndi af lífi og sál.
Dugnaður og þrautseygja voru
honum eðlislæg. Hann var ein-
staklega hagsýnn, útsjónarsamur
og hafði góðar afurðir af sinu
búi. Það var Bjössa mikil gleði
að bömin þeina öll höfðu gaman
af búskapnum og hafa alla tíð
unnið með foreldrum sínum við
búið.
Bjössi gerði ekki víðreist um
ævina, hans vettvangur var
heima í Ketu. Undi hann þar hag
sfnum vel og fór helst ekki af bæ
í erindisleysu. Hann hafði gaman
af að ferðast um landið sitt og
vom það helst ferðimar sem
systkini hans og fjölskylda fóm í
yfírleitt einu sinni á ári. Em það
dýrmætar perlur í sjóði minning-
anna, hjá þessu fólki, þegar þau
bmgðu á leik við bömin, sungu
og dönsuðu, umfram allt vom
saman á gleðistundum. Bjössi
bar ekki tilfmningar sínar á torg
og var ekki að fárast yfir hlutun-
um. heldur vann sín verk af yfir-
vegun og dugnaði. Hann var
hæglátur maður, en staðfastur,
glettinn og gamansamur og tal-
aði aldrei illa um nokkum mann.
Honum þótti mjög vænt um
fólkið sitt þó han hefði ekki um
það mörg orð, það var ekki hans
stíll.
Bjössi ólst upp á Halldórs-
stöðum, miklu söngheimili, í
stómm systkinahópi. Hafði hann
mjög gaman af söng og dansi.
Sem krakki á ég minningar frá
ferðum með mömmu og pabba í
Ketu, í réttir, rúning og jámingar.
Ætíð var mikill samgangur milli
foreldra minna og fjölskyldunn-
ar í Ketu. Pabbi fór með Bjössa í
göngur mjög oft og réttarferðir
foreldra minna vom eins fastur
liðurogjólin.
A Skaganum er mjög sérstakt
samfélag, sem sjaldgæft er í dag.
Þar skiftir hver einstaklingur
gríðarlega miklu máli. Því til
skýringar nefni ég að fyrir
nokkmm ámm réðust menn þar í
það stórvirki að byggja félags-
heimili. Þar sannaðist máltækið
að vilji er allt sem þarf. Fólkið
tók höndum saman, lagði á sig
mikla vinnu og með samstilltu á-
taki tókst þeim ætlunarverkið. í
þessu starfi lét heimilisfólkið í
Ketu sitt ekki eftir liggja. Þessi
litla harðbýla sveit, þar sem
menn eru ætíð tilbúnir að rétta
nágrannanum hjálparhönd, hefur
mikið misst. Hún hefur misst
traustan hlekk, vin, sem ætíð gat
fundið tíma til að aðstoða þá sem
þurftu á því að halda og aldrei
þurfti að efast um efndir á hans
loforðum.
Snemma í sumar sendi ég
Bjössa smá hlut, sem ég vissi að
nýttist honum vel. Stuttu seinna
hringdi hann í mig til að þakka
þetta smáræði sem honum hafði
greinlega þótt vænt um. Þetta at-
vik minnti mig á að það em ekki
stóru gjafirnar sem skifta máli
heldur hugurinn sem fylgir.
Á undanfömum ámm höfum
við ekki hist oft utan gleði og
sorgarstunda í fjölskyldunni. Síð-
ast komum við saman þegar
Solla systir og Gunni giftu sig
17. júní í sumar. Það var yndis-
legur dagur og var Bjössi þar
glaður og hress. Það er sú rnynd
sem ég vil geyma af honum í
huga mér.
Elsku Hrefna, Gunnsteinn og
fjölskylda, Dóra og Siggi, þið
stóðuð eins og klettar við hlið
hans og linuðu þrautir hans til
hinstu stundar. Ykkar missir er
mikill. Skarð Bjöms bónda í
Ketu verður vandfyllt. Megi góð-
ur Guð vísa ykkur veginn og
veita ykkur styrk í sorginni á
komandi tímum.
Ég vil votta öldruðum
tengdaforeldrum Bjössa og
skyldfólki mína dýpstu samúð.
Elsku Bjössi, leiðir skilja að
sinni. Ég veit að þú hefur fengið
hlýjar móttökur hinum megin.
Hafðu bestu þakkir fyrir allar
góðu stundimar.
Guðrún Halldóra Þorvaldsd.
Vatni.
Björgvínjónsson +
F. 28. ágúst 1929 D. 17. sept. 2000
Fáein kveðjuorð til látins
vinar og kórfélaga um langt
skeið Björgvins Jónssonar frá
Ási í Hegranesi.
Við flutning til Sauðárkróks
gekk hann þegar til liðs við
kirkjukórinn og með sinni
björtu tenórrödd söng hann
með okkur hartnær í hálfa öld.
Hann var um skeið andlit
kórsins bæði inn á við og út á
við, með þeirri háttvísi sem eft-
ir var tekið og hafði óskorað
traust kórfélaga í starfi. Óhætt
er að fullyrða að aldrei þótti
honum of mikið að gert hjá
kómum, því áhuginn var ó-
skiptur og segja rná eldmóður-
inn óskiptur í öllu sem kómum
viðkom.
Metnaður hans fyrir hönd
kórsins var mikill og einlægur,
samt var heilsu hans þannig
háttað að oft hefur starfið reynt
nteira á hjá honum en flestum
öðrum, þó urðum við þess
aldrei vör að það drægi kjark úr
honum, fyrr en þá síðustu árin.
Aðalhvatamaður var hann
þegar kirkjukvöldunum í Sælu-
viku var hleypt af stokkunum
og óhætt að segja að með því
framtaki bættist alveg ný grein
í starfssvið Kirkjukórsins og
einnig í menningarlíf Sauðár-
króks.
Þó Björgvin Jónsson hafi
búið á Sauðárkróki öll sín
manndómsár var hann alltaf
kenndur við Ás í Hegranesi,
lýsir það á einlægan hátt festu
hans og trygglyndi, aldrei
skyldi hann breyta því sem rétt
var og villa á sér heimildir í
nokkm tilliti.
Hann komjafnan til dyranna
eins og hann var klæddur og á
sama máta viljum við kveðja
hann með einlægri virðingu og
þökk fyrir samsönginn í nærri
hálfa öld.
Um leið og kórfélagar þakka
þeim hjónum vináttu og rausn
við ófá tækifæri, vottum við
fjölskyldunni okkar dýpstu
samúð.
Þó ekki væri lífið alltaf létt,
og lagið ómstrítt stundum, eins
pg gengur.
I þínum söng var sérhver nóta
rétt,
með söknuði við kveðjum -
heiðursdrengur.
(H.J.)
Kirkjukór Sauðárkróks.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu nýlegt homskrifborð
og hilla. Verð kr. 13.000. Upplýs-
ingar í síma 453 8134 eða 867
9650 hjá Heiðu e. kl. 19.
Húsnæði!
íbúð óskast til leigu á
Sauðárkróki. Reyklaust par
með eitt barn og annað á
leiðinni bráðvantar íbúð um
næstu mánaðamót. Upplýsing-
ar í síma 453 7915 og 869
6251.
Þriggja herbergja íbúð í
Sjálfsbjargarhúsinu er til leigu
frá og með næstu mánaða-
mótum. UpplýsingargeítirÞóra
Kristjánsdóttir í síma 453 5405.
Gott einbýlishús í nágrenni
Sauðárkróks til leigu. Upplýs-
ingar í síma 453 5558.
Tapað -fundið!
Tapast hafa gleraugu.
Skilvís finnandi hafi samband
við Ásu í síma 453 5230.
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eftir
seðlinum með áskriftargjaldinu.
Athugið! Athugið! Athugið!
Viltu léttast hratt og örugglega en borða ennþá
uppáhaldsmatinn þinn?
Misstu 1 kg. á viku! FRÍ SÝNISHORN!
Hringdu núna ísíma 552 4513
Vörufhitningar
Sauðárkrókur - Skagíiíjörðm*
Daglegar ferðir
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningum Héðinsgötu 2
Sími 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.
Stóðréttar-
dansleikur
Höfðaborg Hofsósi
laugardaginn 30. september
kl. 11 - 3.
Heiðursmenn og
Kolbrún leika fyrir
dansi.
Svaði Neisti