Feykir - 04.10.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Tilraunaboranir að
hefjast austan Héraðsvatna
Trésmiðjan Borg byggir
hæð ofan á verkstæðishúsið
Trésmiðjan Borg á Sauðár-
króki er þessa dagana að
byrja á stórframkvæmdum,
að byggja ofan á verkstæðis-
húsið að Borgarmýri 1. A-
forrnað er að nýja hæðin verði
komin undir þak fyrir ára-
mót, en hún er um 800 fer-
metar að stærð. Að sögn Guð-
mundar Guðmundssonar
framkvæmdastjóra Borgar
verður þarna funda- og skrif-
stofuhúsnæði og er ætlunin að
það verði selt.
Guðmundur sagði að það
hefði lengi staðið til að byggja
ofan á húsið. Aðspurður vildi
hann ekkert segja um hvort á-
kveðinn aðili hafi sýnt húsnæð-
inu mikinn áhuga, þar sem að
engar undirskriftir lægju fyrir
og vildi ekki tjá sig um það
frekar. Heimildir Feykis segja
það hinsvegar að frímúrara-
stúkan í bænum ætli að kaupa,
en hinsvegar sé ljóst að þarna
verði einnig til ráðstöfunar
skrifstofuhúsnæði f rúmlega
helming rýmisins, en skrif-
stofuhúsnæði kemur til með að
vanta sárlega á Króknum á
næstu mánuðum, sérstaklega
þegar Byggðastofnun flytur
starfsemi sína íbæinn.
Trésmiðjan Borg er
langstærsti byggingarverktak-
inn í Skagafirði. Borgin hefur
nýlokið við að koma nýbygg-
ingu Arskóla undir þak og þar
er nú að hefjast innivinna.
Borgin er þó þekktust fyrir
mjög vandaða innréttingar-
smíði og hefur verið að fram-
leiða inn á markaðinn á höfuð-
borgarsvæðinu í áratugi. Síð-
ustu fimm árin hefur fyrirtækið
verið með verslun í Armúla í
Reykjavík, sem reyndar mun
flytja í nýtt húsnæði nú í lok
mánaðarins. Hjá Trésmiðjunni
Borg starfa um 40 manns.
Metsókn á Laufskálum
Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki var helgina mjög
róleg og þurfti hún nánast eng-
in afskipti að hafa vegna Lauf-
skálaréttar og dansleikja þeirri
samkomu tengdri í héraðinu.
Þótt oft hafi verið margt í Lauf-
skálarétt hefur þó trúlega aldrei
verið jafnmargt og nú og er þar
tekið mið af bílafjöldanum,
sem að þessu sinni náði óvenju-
langt meðfram veginum og að
auki voru fleiri fólksflutninga-
bílar nú en jafnan áður.
Björn Mikaelsson yfirlög-
regluþjónn sagði að menn á-
ætluðu að vel á þriðja þúsund
manns hafi komið í Laufskála-
rétt að þessu sinni. Samkoman
fór mjög vel fram í hinu besta
veðri. Dansleikir um kvöldið
fóru einnig hið besta fram.
Mikill mannfjöldi var á dans-
leiknum í Miðgarði eins og
jafnan, en stóðréttardansleikur-
inn með Hljómsveit Geiniiund-
ar er þar með fjölmennari dans-
leikjum ársins. Þá safnaðist fólk
einnig saman á Hótelinu í
Varmahlíð og í Höfðaborg á
Hofsósi var einnig haldinn
stóðréttardansleikur eins og
tíðkast hefur undanfarin ár.
Tilraunaboranir eftir heitu
vatni eru að hefjast í austan-
verðum Skagafirði. Þessa dag-
ana er verið að staðsetja borinn
frammi í Deildardal nokkru
franian við Háleggsstaði, en
einnig er ákveðið að liola við
Bræðraá, sem boruð var í
fyrrahaust verði dýpkuð úr
rúmum tvöhundruð metrum í
fimmhundruð metra. Það er
Hitaveita Skagafjarðar sem
stendur fyrir þessum borun-
um.
Að sögn Páls Pálssonar hita-
veitustjóra er ómögulegt að
segja til um hvort þama sé hægt
að reikna með virkjanlegri bor-
holu, en síðast áttu tilraunabor-
anir sér stað á þessu svæði á
liðnu hausti. Þá var til að mynda
einnig boruð hola við Háleggs-
staði og nú er boruð önnur þar
framan við til glöggvunar á legu
vatnsæða og sprugna á svæðinu.
Páll segir að jarðfræðingar vilji
meina að heitt vatns sé að finna
á þessu svæði, en þetta sé spum-
ing um hitastigið og í framhald-
inu þá hvort um nýtanlegan
varma sé að ræða. Það er eink-
um holan við Bræðraá í Kol-
beinsdal sem bundnar eru vonir
við.
Þessar tilraunaboranir eru
styrktar úr sjóði sem iðnaðar-
ráðuneytið ráðstafar og tengjast
köldum svæðum og nemur
styrkurinn um helmingi kostnað-
ar, en hann var við boranimar á
liðnu hausti um sjö milljónir
króna.
Það er bor frá Ræktunarsam-
bandi Flóa- og Skeiða sem not-
aður er og var sá síðast við bor-
anir á Reykjum í Hrútafirði.
Starfsmannagengið kemur hins-
vegar úr Héðinsfirðinum þar
sem nýlokið er við að kanna
berglög vegna væntanlegra jarð-
gangna.
Skúli Bragason, Gísli Kristjánsson og Guðmundur Gíslason að
undirbúa uppslátt á hæðinni yfir Borginni, sem kemur til með
að bæta úr brýnni þörf á skrifstofuhúsnæði í bænum.
—|0fcH£tt! ch|DI— SfMf 1bílaverksfæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 JÆ.MJL M * sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargafa lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA JfcBílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Réttingar ^ Sprautun