Feykir - 25.10.2000, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Fiskiðjan Skagfífðingur
Góð rekstrarafkoma á síðasta
ári þrátt fyrir erfið skilyrði
Hagnaður af reglulegri starf-
semi hjá Fiskiðjunni Skagfirð-
ingi á síðasta rekstrarári, var
heldur meiri en árið á undan,
eða 218 milljónir í stað 185
milljóna, þrátt fyrir að meiri
hækkun yrði á rekstrargjöld-
um en tekjum milli ára. Þá
lækkuðu fjármagnsgjöld tals-
vert á árinu og skuldir fyrir-
tækisins einnig, auk þess sem
eigið fé jókst. Veltufé frá
rekstri er 535 milljónir eða
22,2% af veltu.
Rekstrarár FISK er kvótaárið
og ársreikningur liggur nú fyrir.
Þar eru helstu tölur þær að
rekstrartekjur síðasta árs voru
2.403 milljónir og jukust um
0,17% milli ára. Meiri aukning
varð á rekstrargjöldum úr 1703 í
1777 milljónir eða 4,35%.
Hagnaður án afskrifa og fjár-
magnskostnaðar var 626 millj-
ónir eða um 10% lægri en árið
áður. Afskriftir voru eilítið meiri
eða 317 milljónir og reiknaðir
skattar fimm milljónir í stað
tveggja árið á undan.
Eignir aukast lítilega milli
Stefnt að ráðningu
forvarnarfulltríia
Stefnt er að því að ráða for-
vamarfulltrúa í Skagafirði er
vinni með unglingum á svæð-
inu, að fræðslu gegn vímuefn-
um og stuðli að heilbrigðri
skemmtun þeirra. Málið hefur
verið í undirbúningi í nokkurn
tíma í samvinnu nokkurra aðila
sem ætla að standa undir kostn-
aði við starfíð og unnið er að því
að fá fleiri aðila til samstarfs.
Það em Fjölbrautaskóli
Norðurlands vestra, Rauði
Krossinn, embætti sýslumanns,
Sauðárkrókskirkja og Sveitarfé-
lagið Skagafjörður sem að lík-
indum munu standa undir kostn-
aði við starf forvamarfulltrúa og
gert er ráð fyrir að skrifstofa
hans verði í Vökulshúsinu við
Skagfirðingabrautina sem Rauði
krossinn festi nýlega kaup á.
Sem kunnugt er setti sýslu-
maður fram ákveðnar skoðanir
um málefni unglinga og félags-
heimila í surnar og svipað leyti
viðraði Bjöm Mikaelsson yfir-
lögregluþjónn einnig svipaðar
hugmyndir. Það að sérstakir
dansleikir verði haldnir fyrir
unglinga 18 ára og yngri, þar
sem auðveldara yrði að fylgjast
með þvf að áfengi og vímuefni
yrðu ekki höfð um hönd. í þessu
sambandi hefur verið rætt um að
koma á fót miðstöð fyrir ung-
linga og var jretta mál m.a. rætt í
menningar- íþrótta- og æslu-
lýðsnefnd á liðnum vetri.
Aformað er að eitt af fyrstu
verkefnum væntanlegs forvam-
arfulltrúa verði að vinna að
stofnun unglingamiðstöðvar.
Ómar Bragi Stefánsson menn-
ingar- íþrótta- og æskulýðsfull-
trúi segirað lítið sé af jressu máli
að frétta í augnablikinu, en verið
sé að vinna í málinu.
Góðar vonir um árangur borana
í austanverðum Skagafirði
Góðar vonir standa til að nýtanlegur jarð-
varmi iinnist í Hrollleifsdal skammt fyrir
innan Bræðraá. Þar var í gær langt komið að
bora 600 metra niður og búist er við að borun-
um muni Ijúka í dag eða á morgun. Þegar
holan var mæld í síðustu viku á 430 metrum
var vatnið um 70 gráðu heitt, en vatnsrennsl-
ið hefur ekki verið mælt ennþá. Það ræður
nokkru um hvort holan verður virkjanleg, til
þess þarf hún að gefa einhverja tugi sek-
úndulítra.
Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa- og
Skeiða hafa að undanfömu borað nokkrar til-
raunaholur í austanverðum Skagafirði og er þessi
hola við Bræðraá talin gefa mestar vonir, en
einnig eru talverðar líkur á þvf að meira verði
borað við Kýrholt, en þar var hætt í tæpum 300
metmm. Þá var komið mikið af vatni en það var
ekki nægjanlega heitt.
Hiti vatnsins í borholunni við Bræðraá hefur
vaxið jafnt og þétt frá 200 metra dýpi. Til stóð að
mæla holuna í gær, en þar sem brotnaði úr bor-
krúnunni og borunum seinkaði af þeim sökum,
varð ekki af því. En það ætti að skýrast á næstu
dögum hvort að möguleiki verður á því að leggja
hitaveitu á heimili í fyrrum Hofshreppi.
Eins og komið hcfur fram í Feyki er það Hita-
veita Skagafjarðar sem stendur fyrir þessum bor-
unum með styrk frá iðnaðarráðuneytinu vegna
kaldra svæða.
ára, en veltufjármunir talsvert
eða úr 660 milljónum í 724
milljónir. Þá lækka skuldir sam-
tals um 123 milljónir og voru
nettóskuldir FISK í árslok 1130
miUjónir.
Jón Eðvald Friðriksson fram-
kvæmdastjóri FISK segir menn
þokkalega sátta miðað við það
að ýmsar ytri aðstæður hefðu
verið óhagstæðar á síðasta
kvóta- og rekstrarári. Olíukostn-
aður t.d. hækkað um 60 milljón-
ir, úr 80 milljónum í 140 milljón-
ir. Afurðir eru seldar í evrunni og
seig gengi hennar nokkuð á
síðasta ári. Þá gengu rækjuveið-
ar fremur treglega og hráefnis-
verð var í hærri kantinum.
Einnig voru þorskveiðarnar
tregar frá vormánuðum og meiri
tilkostnaður við öflun hráefnis
fyrir vinnsluna af þeim sökum.
Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa- og Skeiða við boranir
frammi í Hrollleifsdal í gær með bomum Trölla, þeir Svein-
bjöm Jóhannsson og Valdimar Gunnarsson.
—Kjeh^if! ehiDI— JJÍFTbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519,'fax 453 6019 Æ..sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA 0 Réttingar # Sprautun