Feykir


Feykir - 25.10.2000, Blaðsíða 3

Feykir - 25.10.2000, Blaðsíða 3
36/2000 FEYKIR 3 Ekki óhappalaust á „slysalausum“ degi lögreglunnar Þeir voru á fyrri vaktinni sl. föstudag: Björn Steinn Sveinsson t.h. „sá góði“ og Steinar Gunnarsson „hinn vondi“. Þrátt fyrir góða viðleitni tókst lögreglunni á Sauðár- króki ekki að ná slysalausum dagi sl. föstudag þegar staðið var fyrir átaki í þessa veru um allt Norðurland. Þrjú óhöpp urðu þennan dag, en að vísu engin slys á fólki. Tvö óhapp- anna voru á Sauðárkróksbraut, á Langholtinu. Það fyrra um morguninn skammt frá Stóru- Gröf þar sem stórt grjót skaust frá vörubtl á fólksbifreið og brotnaði rúðan í bílnum. Seinna óhappið var við Braut- arholt um miðjan daginn þar sem unnið var að reiðvegagerð. Dráttarvél með tengivagni var ekið út af veginum og í þann mund kom fólksbíll í sömu akstursstefnu og rakst framendi hans undir tengivagninn, þannig að talsverðar skemmdir hlutust af. Þá var ekið á kind við Dalsárbrú um kvöldmatar- leytið og drapst kindin. Hjá lögreglunni á Blönduósi mun hafa verið óhappalaus dagur. Húnvetningar og gestir þeirra höfðu heppnina með sér. Blaðamanni Feykis var boðið í ökuferð með fyrri vatk- inni á föstudaginn. Þeim Bimi Steini Sveinssyni og Steinari Gunnarssyni. Það var svo sem ekki við neinum stórtíðindum að búast á vaktinni íyrir blaða- manninn, en hún var þó við- burðarríkari en hann ætlaði. Lögreglumennimir voru að sinna þessum hefðbundnu verkum. Gá að beltanotkun, ástandi ökutækja, hvort öku- maður væri ekki með ökuskír- teinið í lagi og fylgjast með ökuhraðanum, svo eitthvað sé nefnt. Eftirlitið byrjaði á Skagfirð- ingabrautinni og þar voru nokkrir ökumenn stöðvaðir. Öll rjúpnaveiði er stranglega bönnuð í landi Eiríksstaða og Valabjarga nema með leyfi land- eigenda. SlkíÐlydlSííItíÍKElll Skíðastaða Laxárdal er bönnuð óviðkomandi. Landeigendur. Þar á meðal ung stúlka sem hafði gleymt ökuskírteininu heima. Það var ekki við það komandi að Feykismaðurinn fengi að taka mynd af stúlkunni. „Nei, nei mamma má ekki sjá mynd af mér í Feyki”, sagði stúlkan og allt í lagi með það. Ökumaður stökk burtu Um þetta leyti eru tveir ná- ungar á litlum fólksbíl stövaðir við götubrúnina hinum megin og blaðamaður sá þann kost vænstan að láta sig hverfa inn í lögreglubílinn. Allt í einu heyr- ist hávaði, ökumaður bflsins stekkur úr úr bflnum, skellir á eftir sér hurðinni og lætur for- mælingamar dynja á lögregl- unni um leið og hann hleypur burtu af vettvangi. Eitthvað var honum uppsigað við verði lag- anna og neitaði að hafa örygg- isbeltið spennt. Það var Steinar sem átti orðaskiptin við mann- inn og þetta var orðið nokkuð sérkennilegt ástand þar sem fé- lagi mannsins sem eftir var í bflnum var greinilega dmkkinn og ekki í ástandi til að koma bflnum af vettvangi. Hann veitti líka félaga sínum mór- alskan stuðning þegar Steinar ætlaði að ræða við hann frekar og það var greinilegt að nú var Steinar orðinn vondi maðurinn. Það var því Bjöm Steinn sem brá sér í hlutverk góða manns- ins og varð við beiðni manns- ins um að keyra honum heim. Reyndar þurfti hann að koma við á leiðinni og fá sér tóbak á sjoppunni og auðvitað veitti lögreglan á Sauðárkróki þá þjónustu. Maðurinn var búinn að skipta um ham þegar heim á hlað var komið með vodka- flöskuna og tóbakað, og bað lögreguna endilega að svipast um eftir félaga sínum, sér þætti verra ef hann dæi á hlaupum. Þar sem þeir Bjöms Steinn og Steinar vom á leið í Varma- hlíð og fram á þjóðveg í eftirlit var boðum komið á stöðina um manninn sem hvarf að vett- vangi. Farið í „Fríríkið“ Umferðin um Sauðárkróks- brautina var ekki mikil þennan dag, reyndar mjög lítil og greinilegt að sumarumferðin er að baki. Það var ekinn einn hringur í Varmahlíð, fátt fólk þar á ferli um miðjan daginn og lítil umferð. Það var haldið inn í „Fríríkið” og ekið fram Blönduhlíðina. Lögreglan gaf nokkrum ökumönnum bend- ingu um að lækka hraðann og við Miklabæ var einn ökumað- ur stöðvaður á 112 km hraða. Sá viðurkenndi brot sitt um- svifalaust. Alls vom þeir 12 ökumennimir þennan dag sem teknir vom fyrir ofhraðan akst- ur. A leiðinni til baka á Krók- inn var síðan komið að óhapp- inu við Brautarholt, en þar sem ökumenn höfðu fjarlægt tæki sín af vettvangi vom þeir látnir fylla út skýrslublað um óhapp- ið. Þeir Bjöm Steinn og Steinar segja að yfirleitt taki fólk þessu eftirliti mjög vel, þó að alltaf séu til einhverjar undantekn- ingar og til sé fólk sem mögli út af öllum sköpuðum hlutum. Hún heyri þó til undantekninga uppákoman á Skagfirðinga- brautinni sem lýst var hér að framan í pistlinum. MARKAÐSREIKNINGUR BUNAÐARBANKAN S Hefurðu kynnt þér kosti markaðsreiknings Búnaðarbankans? Lágmarksinnistæða er 500 þúsund. Hvert innlegg er bundið í 10 daga. Innistæða ber vexti í samræmi við upphæð innistæðu á hverjum tíma. Af 0,5 milljónum 10,55% Af 1,5 milljónum 10,80% Af 3,0 milljónum 11,05% Af 20 milljónum og yfir 11,30% MARKAÐSREIKNINGUR trvggir þér góða vexti. BUNAÐARBANKI ISLANDS HF ÚTIBÚIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.