Feykir - 25.10.2000, Page 5
36/2000 FEYKIR 5
Hefur ferðast einn um
ísland í þrjá mánuði
Áhuginn á landinu kviknaði þegar hann sá
myndina um Nonna og Manna í sjónvarpinu
Benno Plugger 22 ára Austurríkismaður á ferð um Fljótin á öðrum degi
vetrar, með Barðshyrnuna í baksýn.
Það var eins og rekast á síðbúinn far-
fugl þegar ungur ferðalangur varð á
vegi blaðamanns Feykis til móts við
Barðslaug í Fljótum sl. sunnudag. A
öðrum degi vetrar var þama maður á
ferð á tveimur jafnfljótum með bakpok-
ann sinn og tjaldið á herðunum. Þetta
reyndist vera 22 ára Austurríkismaður
og hann er búinn að vera á ferðalagi á
og við hringveginn síðan í lok júlí, þeg-
ar hann byrjaði ferðalag sitt út frá
Reykjavík og hélt suður og austur um.
Hann hefur tvær vikur til að klára hring-
inn, á pantað flugfar heim viku af nóv-
ember.
„Þú heldur líklega að ég sé kolvit-
laus, en þegar ég var drengur sá ég í
sjónvarpinu myndina um Nonna og
Manna og hreyfst mjög af myndinni og
náttúrunni sem brá þar fyrir. Þá ákvað
ég að þegar ég yrði stór færi ég til ís-
lands og ferðaðist um þetta fallega land.
Ég lét verða að því í sumar og sé ekki
eftir því. Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegur tími og náttúran hér er
stórkostleg. Hérna býr líka mjög vin-
samlegt fólk, ég hef kynnst því á ferð
minni”, sagði Benno Plugger og tók
upp myndavél úr pússi sínu og myndaði
heita hverinn þarna við veginn hjá
Langhúsum.
„Ég kom til Siglufjarðar í gær og
langaði að skoða Sfldarminjasafnið en
það var lokað. Ég er lflca nokkuð seinn
á ferðinni. Siglufjörður er mjög fallegur
bær, en þar er lfldega kalt og dimmt yfir
veturinn”, sagði Benno og blaðamanni
skildist að hann hefði tjaldað einhvers
staðar inn við Hól. Þennan daginn lá
leið hans síðan í Varmahlíð. Hann gekk
inn að jarðgöngunum og fékk bflfar
þaðan að Ketilási og var því búinn að
ganga drjúgan spotta þegar blaðamaður
Éeykis hitti hann og meðan við spjöll-
uðum saman fóm nokkrir bflai- framhjá
sem Benno hefði sjálfsagt getað fengið
far með. Það var því réttast að snúa við
og keyra honum aðeins áleiðis, að
gatnamótunum fyrir neðan Ysta-Mó.
„Já það er vingjamlegt fólk héma á Is-
landi”, sagði Benno þegar hann kvaddi
og það var ekki hægt annað en dást að
þessum unga kjarkmikla manni sem
eins síns liðs hefur ferðast um landið á
tveimur jafnfljótum og „puttanum”
með tjaldið sitt og bakpokann í rúma
þrjá mánuði og það þegar komið er
fram á vetur. Sem betur fer fékk hann
mjög gott sumar til að ferðast og hann
var líka búinn að verða sér út um ís-
lenska lopapeysu áður en haustið gekk
í garð.
vVEGAGERÐINj
Jarðgöng milli Siglu-
íjarðar og Ólafsfjarðar
Tillaga að matsáætlun
Vegagerðin auglýsir hér með kynningu á
tillögu að matsáætlun íýrir jarðgöng milli
Sigluíjarðar og Ólafsíjarðar urn Tröllaskaga á
veraldarvefnum, samkvæmt reglugerð
671/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Tillögu að matsáætlun er hægt að skoða á
eftirfarandi heimasíðu: http://www.trollaskagi.is
www. trollaskagi. net.
Almenningur getur gert athugasemdir við
áætlunina og er athugasemdafrestur í 2 vikur,
eða til 10. nóvember. Athugasemdir er hægt
að setja á heimasíðuna eða senda til
Vegagerðarinnar á Akureyri.
Auglýsing í Feyki
ber árangur
Rafræn skráning hlutabréfa
SteinuUarverksmiðjunnar hf
Mánudaginn 22. jttnúar 2001 verða hlutabréf Steinullarverksmiðjunnar lif.tekin
til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. Frá þeirn tírna ógildast
ltlutabréf félagsins sem eru útgefin í pappírsfomii í samræmi við heimild í ákvæði
til bráðabirgða nr.II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréía,
sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, nm breytingar á ýmsum lögurn vegna tilkomu rafrænn;tr
eignaskráningar á verðbréfum, og reglugerð nr. 397/2000, urn rafræna
eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á
því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í lilutaskár Steinullarverksmiðjumiar lif.
að staðreyna skráninguna með fýrirspurn til skrifstofu Steinullarverksiniðjumiar
lif. að Skarðseyri 5, Sauðárkróki, lýrir nefndan dag. Ennfremur er skorað á þá sem
eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra lilutabréfa, s.s. veðréttindi, að korna þeint
á framfæri við fullgilda reikningsstofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða
verðbréfíiiýrirtæki).
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun, sem hefur
gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands lif., að hafe urnsjón með
eignarhluta sínum í félaginu. Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta
bréfleiðis.
Stjórn Steinullarverksmiðjunnar hf.