Feykir - 25.10.2000, Qupperneq 7
36/2000 FEYKIR 7
á þarlendum. Vegakerfið var
frumstætt á þessum árum og
Gemsamir fóru vegleysur og
ófærð. Menn spiluðu sig áfram.
Miklar svaðilfarir og nú til dags
hefðu björgunarsveitir oft verið
kallaðar til. En þær höfðu þá
ekki verið fundnar upp í þeim
skilningi sem nú er. Þá rötuðu
heim af sjálfsdáðum.
A Gemsanum flutti Valli
vörur á milli Króksins og höf-
uðborgarinnar. En hlutverkin
voru fleiri. Oft mun Torfi lækn-
ir hafa leitað til þeirra Valla og
Gemsans þegar ófærð var og
erfið ferð fyrir höndunt. Þær
ferðir gátu dregið í tímann. Og
enn eitt. A þessum ámm var
Kirkjuklaufin í sinni upprunan-
legu ntynd, hafði ekki verið
breikkuð og ekki alltaf mokuð
þótt snjóaði á vetrum þá ekki
síður en nú. En fólk lét sig nú
hafa það að deyja við þessar að-
stæður og þurfti upp á Nafir. Þá
var gripið til Gemsans og frá
þeim tíma lifir þessi setning;
Valli minn heldurðu að þú
skutlir ekki líkinu af honum
pabba upp í garð!
Og núna bergmálar ntinnig.
Valli var góður söngmaður og
hafði yndi af söng. Á fallegu
vorkveldi skömmu fyrir kosn-
ingar 1967 ekur undirritaður á
hvítri Ford Cortina upp
Kirkjuklauf og upp á Nafir og
Móa. I aftursæti sitja þeir mág-
ur bílstjórans og Valli. Og þeir
syngja. Glaðir Skagfirðingar á
ferð við söng og vín. Milli
söngnúmera skiptast þeir á póli-
tískum skotum, annar blár, hinn
rauður. Þetta voru vel hlaðin
skot og föst. Báðir hægir
húmoristar og þurftu ekki mörg
orð til að ná meiningunni. Ekki
einasta voru þeir ósammála í
pólitíkinni heldur notuðu þeir
hvor sinn tónstigann til söngs-
ins. Og að einu söngnúmeri loknu
kom frá Valla: Halldór minn, ég
kann betur við þig í pólitíkinni
en söngnum. Valli hafði fast-
mótuð pólitísk lífsviðhorf. Var
sósíalisti af eldri gerðinni.
Valli átti tvö systkini, Haf-
stein og Guðrúnu. Mjög voru
þau mótuð í sama mót; greind,
myndarleg og skemmtileg í
viðkynningu. Guðrún var yngst
og lifir bræður sína. Með þess-
um orðum ent henni sendar
hlýjar kveðjur austur yfir
Tröllaskagann.
Á gömlum ljósmyndum af
Króknum má sjá lítið hús rétt
sunnan við Bifröst. Ekki langt
frá Sauðánni þar sem hún er að
hjala sig í gegnum bæinn. Það
hús heitir Bægisá en var stækk-
að og er nú Skagfirðingabraut
4. Þar hafa þau búið lengst af
sinn búskap Valgarð og Jak-
obína. Fara þessi nöfn saman í
munni Króksara, Valli og Bína.
Valli var góður fjölskyldufaðir.
Heimilið var honum mest þess
sem hann átti. Það var helgireit-
ur hans ef svo fátæklega má
komast að orði. Við þessi tíma-
mót sendi ég Bínu minni og
bömunum og bamabömunum
samúðarkveðjur mínar en um-
rfram allt annað þakklæti mitt
og ég hef mikið að þakka.
Litróf mannlífsins er alltaf
að breytast. Út um gluggann
minn mun ég ekki lengur sjá
Valla ganga suður götu rétt
uppúr hádegi, einbeittann og á-
kveðinn á göngunni, berhöfð-
aðann, jafnvel í aftökum. Á
þessum gönguferðum hitti Valli
marga að máli. Spurði frétta.
Vissi hvað fólki leið. Vissi hvað
var að gerast. Valli lifði lífinu.
Valli tók síðustu dögum sín-
um af sama æðruleysi sem
hann hafði tekið öðmm dögum
ævi sinnar. Ég veit að honum
var ljóst hvert stefndi. Ég veit
hvaða augum hann leit dauð-
ann. Ég veit að þegar honum
hljómaði það kall sem okkur er
öllum boðið að nema, þá gekk
hann óhræddur sitt hinsta skref
vitandi að hann var í fylgd þess
sem gerir alla hluti nýja.
Jón Ormar.
Tindastóll í undanúrslit í Kjörísbikamum
Tindastólsmenn standa sig
frábærlega vel í deildarbikar-
keppninni og em nú komnir í
undanúrslit eftir góða sigra á
Haukum heima og heiman. Fyrri
leikinn á heimavelli unnu Tinda-
stólsmenn örugglega 94:70 og
þann seinni í Hafnarfirðinum
Okkar innilegustu þakkir fydr auðsýnda
samúð vináttu og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður míns, tengdaföður og afa
Gunnars Gunnarssonar
frá Syðra - Vallholti
Jónína, Hólmar og börn.
88:80. Tindastóll mætir ICR-ing-
um í undanúrslitum í Smáranum
urn aðra helgi.
Stig Tindastóls í fyrri leiknum
skomðu: Shawn Mayers 33,
Kristinn Friðriksson 20, Mikhail
Andropov 13, Láms Dagur Páls-
son 9, Svavar Birgisson 8, Tony
Pomones 7 og Ómar Sigmarsson 4.
I seinni leiknum á Ásvöllum
var Mayers sem fyrr besti maður
Tindastóls og eins og í fyrri leikj-
um lék Láms Dagur vel ásamt
Axeli Kárasyni, sem gerði sérlít-
ið fyrir og skoraði tíu síðustu stig
Tindastóls. Stig Tindastóls í
leiknum skomðu: Mayers 30,
Axel Kárason 12, Láms Dagur
Pálsson 11, Svavar Birgisson 10,
Kristinn Friðriksson 8, Tony
Pomones 8, Mikhail Andropov 7
og Ómar Sigmarsson 2.
Næsti leikur Tindastóls í Ep-
son-deildinni verður í Keflavík
annaðkvöld. Verður það án efa
erfiður leikur.
ATVINNA
Fiskiðjaii Skagfirði?igur
laiidviimslati á Sauðárkróki
óskar eftirfólki til starfa.
FISKIÐJAN SKAGFIRÐINGUR
Upplýsmgar gefur yfirverkstjóri
Tótnas Árdal á staðnum
eða í sínia 4SS 4411
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu 31” dekk negld á sex
gata felgum, lítið notuð, Pajero
árg. ‘85 með bilaða vél, 2-300
heyrúllur og nokkur falleg folöld,
faðir Spölur frá Hafsteinsstöðum.
Upplýsingar gefur Þorgrímur í
sífna 4524411 ákvöldin.
Til sölu Nissan Terrano,
nýskráður 12.10. ‘98, disel,
sjálfskiptur. Upplýsingar gefur
Jóhann í síma 453 5141 og Ánti
í síma453 6229 e. kl. 17.
Til sölu Ford FT 100
nýskráður 16.1. ‘95, disel, vsk,-
bfll. Tvöfalt hús - pallbfll.
Upplýsingar gefúr Jóhann í síma
453 5141.
Til sölu Toyota Corolla XL
árg. ‘92 sjsk. Fallegur og góður
bfll, vel með fainn, ekinn aðeins
85.000 km. Staðgr.verð 350.000.
Upplýsingar ísíma 453 5729
eða 552 4275.
Húsnæði!
Þriggja herbergja íbúð í
Sjálfsbjargarhúsinu er til leigu
strax. Upplýsingar gefur Þóra
Kristjánsdóttir í síma 453 5405.
BYGGÐASTOFNUN
Forstjóri Byggðastofnunar
Iðnaðarráðuneytið auglýsir hér með starf forstjóra
Byggðastofnunar laust til umsóknar. Byggðastofnun
starfar samkvæmt lögum nr. 106/1999 og er hlutverk
stofnunarinnar að vinna að eflingu byggðar og
atvinnulífs á landsbyggðinni. Helstu verkefni
Byggðastofnunar eru undirbúningur, skipulag og
fjármögnun verkefna á sviði atvinnuuppbyggingar og
nýsköpunar á landsbyggðinni. Jafnframt er á vegum
stofnunarinnar rekin lánastarfsemi. Verkefni
stofnunarinnar er ennfremur að vinna að gagnasöfnun
og gera rannsóknir um þróun byggðar í kuidinu.
Verkefni forstjóra Byggðastofnunar er að stjórna
daglegum rekstri stofnunarinnar,gera tillögur til stjórnar
urn starfsskipulag, rekstrar- og starfsáætlun, lántökur og
heildarútlán, reglur um lánakjör og áherslur í starfsemi
stofnunarinnar. Þá annast forstjóri ráðningu starfsfólks
ásamt öðrum þeirn verkefnum sem stjóm felur honum á
hverjum tíma.
Æskilegt er að viðkomandi hafi háskólapróf, búi yfir
góðri starfsreynslu og hafi haldgóða þekking á íslensku
atvinnulífi. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á
nýsköpun og atvinnuþróun á landsbyggðinni, hefur til að
bera fmmkvæði og metnað til að skila ánmgri í starfi.
Þann 1. maí árið 2001 verður starfsemi
Byggðastofnunar flutt á Sauðárkrók. Bærinn hefur verið
í ömm vexti undanfarin ár og búa þar nú uni 2.600
manns. Þar er fjölþætt atvinnulíf sem byggir á mörgum
atvinnugreinum.Afar vel er staðið að allri samfélags- og
heilbrigðisþjónustu í Skagafirði sem gerir sveitarfélagið
að sérlega aðlaðandi kosti fyrir íjölskyldufólk. íþrótta- og
félagslíf er blómlegt og þar er gott framboð á afþreyingu
ýmis konar. Auk 4 leikskóla, 5 gmnnskóla og
tónlistarskóla er Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
staðsettur á Sauðárkróki og Bændaskóli á Hólum. Þá
liggur Skagaijörður vel við samgöngum.
Iðnaðarráðherra skipar í starf forstjóra að fenginni
tillögu stjórnar. Starfið verður veitt frá og með 1. janúar
2001. Það kemur í hlut nýs forstjóra að taka þátt í
endurskipulagningu og stefnumótun stofnunarinnar.
Latmakjör em samkvæmt úrskurði Kjaranefnclar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu berast iðnaðarráðuneytinu.Arnarhvoli, 150
Reykjavík, fyrir 15. nóvember n.k. Umsóknir þar sem
óskað er nafnleyndar, koma ekki til greina. Konur jafnt
sem karlar em hvattar til að sækja um starfið.
Iðnaðarráðuneytið 20. október 2000.