Feykir


Feykir - 01.11.2000, Side 3

Feykir - 01.11.2000, Side 3
37/2000 FEYKIR 3 DECOY sokkabuxnakynning laugardaginn 4. nóv. frá kl.11 - 15. 20% kynningarafsláttur. Simpsons kexið fæst hjá okkur! ....frábært kex í flottri dós ..verð aðeins kr. 398 Börnin í Árvist í enskutíma með kennara sínum Kristb jörgu Kenip. Námskeið fyrir bömin í Árvist Skólavistunin Árvist á Sauðárkróki hefur nú hafið sitt annað starfsár og að sögn Gunnhildur Harðardóttir, for- stöðumanns hefur starfsemin gengið mjög vel. Aðsókn hefur verið meiri en reiknað hafði verið með í upphafi og er ljóst að full þörf er á þessari þjón- ustu. Starfsemin hefur einnig verið að taka á sig fasta mynd. í haust er sú nýbreytni að boðið er upp á^ýmiss námskeið fyrir bömin á Árvist. Nú standa yfir enskunámskeið en foreldr- ar hafa sýnt því mikinn áhuga að bömin fái að kynnast ensku og fullt er á öll enskunám- skeiðin. Einnig em námskeið í íþróttum, myndmennt og saumum og er eftirspumin ekki síðri þar, því þar er einnig full- skipað. Námskeiðin em í sex skipti og kenna kennarar Ár- skóla á þeim. Stefnt er að því að bjóða upp á þessi námskeið á vordögum og jafnvel að auka fjölbreytnina. Að sögn Gunnhildar er nauðsynlegt að bjóða bömum upp á námskeið og afþreyingu sem er af öðmm toga en lík- amsáreynslu. Sjálfsagt er að þjálfa einnig andlegt atgervi í tómstundum. Fjöldi bama sem nú njóta þjónustu Árvistar em 60 og starfsmenn em þrír auk forstöðumanns. Nytjalist úr náttúruimi í Safnahúsinu Laugardaginn 4. nóvember opnar “ HANDVERK OG HÖNNUN sýninguna „Nytja- list úr náttúmnni” í Safnahús- inu á Sauðárkróki. Sýningin á Sauðárkróki er styrkt af menningar- íþrótta- og æskulýðsnefnd Skagafjarðar. Markmið sýningarinnar er að sýna það besta af nytjalist sam- tímans. Hlutimir eru allir sér- hannaðir fyrir þessa sýningu og hafa ekki verið sýndir áður. Lögð er áhersla á að sam- tvinna góða hönnun. hugvit og gott handverk. Þema sýningar- innar er vatn. Sýningin er fram- lag „Handverks og hönnunar” til dagskrár Reykjavíkur menn- ingarborgar Evrópu árið 2000. Við opnunina í Ráðhúsi Reykjavíkur vom veitt þrenn verðlaun og þau hlutu eftirfar- andi einstaklingar: A) Besta hönnun á nytjahlut, Helga Kristín Unnarsdóttir, „í klaka- böndum," tvöföld skál. B. Besta hugmynd . Phil- ippe Ricart, „Vatnsberar” úr flóka. C.Áhugaverðustu efnis- tökin, Georg Hollanders, „Vatnskassinn”, gullastokkur úr rekaviði. Þátttakendur í sýningunni em: Anna Sigríður Hróðmars- dóttir, Arndís Jóhannsdóttir, Bergþóra Guðnadóttir, Brita Kristina Berglund, Brynja Baldursdóttir. Dýrfínna Torfa- dóttir. Elísabet Ásberg, Georg Hollanders, Guðbjörg Kr. Ingv- arsdóttir, Guðrún Indriðadóttir, Helga Kristín Unnarsdóttir. Hrönn Vilhelmsdóttir, Jónas Bragi Jónasson, Lára Gunnars- dóttir, Ólöf Matthíasdóttir, Lydia Jósafatsdóttir, Margrét Adolfsdóttir og Leo Santos- Shaw, Margrét Guðnadóttir, Margrét Jónsdóttir, Philippe Ricart, Pia Rakel Sverrisdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Signý Ormarsdóttir, Sigríður Anna Sigurðardóttir og Þor- björg Valdimarsdóttir. Sýningin er opin alla daga ffá 14.00 til 18.00og stendurtil 12. nóvember. Sýningin er styrkt af Reykjavík menningar- borg Evrópu árið 2000. Nfbreytni hjá stúdentsefnum Styrktu Blóðbankann Stúdentsefni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra bmgðu út af vananum að þessu sinni í árlegu maraþoni skólans, sem er á- heitatengt og haldið til fjáröflun- ar fyrir ferðasjóðinn. „f ár á- kváðum við að fara í fara í sam- starf við Blóðbankann og gera eitthvað gagnlegt og skemmti- legt. Samkvæmt fréttum undan- farinna vikna hefur ríkt hálfgert neyðarástand í Blóðbankanum vegna skorts á blóði”, sagði Ein- ar Björgvin Eiðsson forsvars- maður útskriftarhópsins, en rúmlega 50 stúdentsefni fóra suður f lok síðustu viku til að gefa blóð og vinna með Blóð- þankanum. Það var líflegt í Blóðbankan- um á föstudaginn meðan Fásar- ar voru að gefa blóðið. Eftir að hafa kynnst starfsemi bankans og fræðst hélt hópurinn síðan niður á Laugaveg í lögreglu- fylgd þar sem dreift var bæk- lingum meðal fólks þar sem starfsemi Blóðbankans var kynnt og seinni part dagsins var einnig farið í Kringluna í sama tilefni. Þá fóm fulltrúar úr hópi stúdentsefnanna í Fjölbrauta- skólaskólana í Gaðarbæ og Breiðholti og fluttu erindi. „Erindið fjallaði lítilega um starfsemi Blóðbankans, af hverju menn ættu að gerast blóðgjafar og hvaða kvaðir því fylgdu. Margir em dauðhræddir við að gefa glóð og mikla það fyrir sér. Við ætlum að reyna að draga úr þessari hræðslu og fá fleiri í lið með okkur”, sagði Einar Björgvin. Blóðbankinn þarf á hverjum degi 70 blóðgjafa einungis til að geta staðið undir eðlilegri starf- semi sjúkrahúsanna. Sveinn Guðmundsson yfirlæknir segir að Blóðbankinn þuifi einmitt á því að halda að fá ungt fólk inn sem blóðgjafa. Hlutfall eldra fólks fari vaxandi og þar með aukist þörfin fyrir blóð, en jafn- framt fækkaði þeim sem gætu gerst blóðgjafar, en jreir þuifa að vera á aldrinum 18-60 ára. Af þessum sökum hefur Blóðbank- inn unnið að kynningu á starf- semi sinni m.a. með heimsókn- um í framhalds- og háskóla. "lW%) fimmtudag og föstudag Medan birgdir endast Svínahnakkasneiðar 598.- kg. Hvítkál 99,- kg. Blaðlaukur 1 69,- kg. Kíwi 1 99.- kg. Prinsbitar 1 58,- Æðibitar 1 58,- Er þér kalt? Nýkomið: úlpur, vettlingar og húfur í miklu úrvali. Snjóbuxur margar gerðir verðfrá 2.790.-. Fimmtudaginn 2. nóv. hefst glæsilegt sængurfatatilboð Verð frá 998

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.