Feykir - 03.10.2001, Side 7
33/2001 FEYKIR 7
Þorvaður Cuðniundsson flytur erindi sitt á þingi SSNV á Stað í Hrútafirði.
Húnaflóa, síld á Siglufirði, eða
hvað? j stefnumótunarvinnu
takast menn á við þessa þætti
og skilgreina svo hver með
sjálfum sér hvaða þættir það em
í þeirra umhverfi sem vert er að
leggja áherslu á. Um leið velt-
um við fyrir okkur hverjir séu
helstu vaxtabroddar svæðisins í
ferðamennskunni.
Nefna má t.d hestaferðir,
gönguferðir, raft-ferðir, stóðrétt-
ir, selaskoðun, náttúmskoðun,
siglingar um firði og flóa á
sviði afþreyingartengdrar ferða-
þjónustu. Fjölmörg fyrirtæki á
Norðurlandi vestra starfa á einn
eða annan hátt á þessu sviði af-
þreyingar, en því miður verð ég
að segja að það sem háir upp-
byggingu þeirra er smæð þeirra
og skortur á fagmennsku. Stíga
þarf skrefið til fulls þannig að
fyrirtækin verði að alvöru fyrir-
tækjum sem staðið geta að
markaðsstarfi og undir eðlilegri
uppbyggingu. A þessu sviði
sem í öðrum geirum atvinnu-
lífsins þurfa menn að horfa
ffam á veginn, vinna saman og
gera áætlanir um framþróun
fyrirtækja og uppbyggingu í
takt við það umhverfi sem það
er sprottið úr.
Hvað með kántríbæinn?
A sviði menningartengdrar
ferðaþjónustu, sem hefur verið
mikið til umfjöllunar upp á
síðkastið, þá tel ég að við getum
spilað sterkan sóknarleik. Við
höfúm alla burði til að bera af á
þessu sviði. Hérem sögustaðir
fjölmargir og kunnir, söfn af
mörgum gerðurn með mismun-
andi áherslum og em Vestur-
farasetrið og Síldarminjasafhið
dæmi um verkefni sem hafa
gengið upp og náð að skapa
viðkomandi stað sérstöðu. En
em fleiri í deiglunni? Hvað með
kántríbæinn Skagaströnd sem
státar af stærstu útihátíð ársins?
Söguslóð Skagfirðinga er gott
verkefni sem kemur sögu þeirra
og lifnaðarháttum fyrri tírna á
framfæri. Það verkefni er auð-
velt að mínu mati að tengja við
kjördæmið allt. Við sjáum í
draumsýn væntanlegt Grettis-
verkefni Vestur-Húnvetninga
teygja anga sína þangað sem
slóðir hetjunnar Grettis lágu.
Og nú er lokið við verkefni sem
styrkt var af Evrópusamband-
inu og bar nafnið Gaide 2000.
Þar liggja heimildir í gagna-
banka sem nýtast munu vel við
uppbyggingu menningar-
tengdrar ferðaþjónustu á Norð-
urlandi vestra.
Miklir möguleikar
Við státum líka af skóla sem
leggur áherslu á ferðaþjónustu í
dreifbýli og með Hólaskóla
sem miðstöð menntunar á sviði
ferðaþjónustu eigum við tæki-
færi á að auka menntun þeirra
sem standa i ferðaþjónustu og
mun það skila sé í auknum
gæðum og víðsýni þeirra. Fjar-
nám í ferðaþjónustu við Hóla-
skóla er fagnaðarefni allra
þeirra sem starfa að ferðaþjón-
ustu um allt land sem og samn-
ingur milli Hólaskóla og sam-
gönguráðuneytisins.
Það er skoðun mín að við
eigum sóknarfæri í öðrum geir-
um ferðaþjónustunnar, eins og
heilsutengdri ferðaþjónustu, þar
sem við getum notað heita vatn-
ið og nokkuð milt veðurfar og
húsnæöi er víða til sem hentar
vel til slíkrar starfsemi. Hvata-
ferðir, óvissuferðir, vetrarferða-
mennska og græn ferða-
mennska eru hlutir sem við eig-
um mikla möguleika í haldist
okkur vel á.
Ferðamálasamtök Norður-
lands vestra vinna nú að gerð
samnings við vefsmið og er ætl-
unin að koma á heilstæðum
kynningarvef um kjördæmið á
nokkmm tungumálum, þar sem
lögð er áhersla á þá samegin-
legu þætti sem þykja einkenna
svæðið um leið og ferðaþjón-
ustuaðilum verður boðið að
eiga síðu eða tengingu við vef-
inn. Samkvæmt könnun Ferða-
málaráðs þá nýta um 30-40%
gesta sér netið til að fá upplýs-
ingar um ísland eftir að ákvörð-
un hefúr verið tekin um ferð til
landsins. Þessi tala hefúr hækk-
að og vex enn og leit að upplýs-
ingum á veraldarvefúum kemur
rétt á eftir upplýsingum úr bæk-
lingum og ferðahandbókum.
Sífellt fleiri gestir bóka beint í
gegnum netið og skipuleggja
ferðina með hjálp tækninnar.
Ég legg áherslu á að „netið” er
eingöngu eitt af verkfæmm
markaðssetningarinnar. Fjöl-
margir aðrir kostir bjóðast sem
einnig verða nýttir sem hingað
til. Það má segja að með þess-
um vef ferðamálasamtakanna
sé kominn sameginlegur miðill
sem ferðaþjónustuaðilar geta
nýtt sér í sínu markaðskerfi.
En á hvaða hátt getur SSNV
komið að uppbyggingu ferða-
þjónustunnar á Norðurlandi
vestra?
SSNV getur t.d. staðið að
gerð stefnumótunar í ferðamál-
um ásamt Ferðamálasamtökun-
um, Iðnþróunarfélaginu og
menntastofnunum. Einnig
finnst mér að SSNV mætti
koma á sameginlegum verkefn-
um á sviði ferðaþjónustunnar
sem ná að sameina krafta fólks
allsstaðar í kjördæminu, verk-
efni sem skapa svæðinu sýni-
lega sérstöðu, sem það sárlega
vantar. Stoðstofnanir gætu ver-
ið FSNY Hólaskóli og Invest
auk ferðamálafúlltrúa svæð-
anna.
Smáauglýsingar
Vmislegt!
Til sölu þvottavél, Kandy P
8,6. Verð kr. 7000. Upplýs-
ingar gefúr B. Har. í síma 453
5124.
Þrír border collie hvolpar,
tveggja og hálfs mánaða, fást
gefins. Uppl. í síma 451 2806.
Húsnæði til leigu!
Ibúð til leigu í nágrenni
Sauðárkróks, tveggja herb-
ergja, eldhús og bað. Upp-
lýsingar í síma 453 6665.
Þriggja herbergja íbúð til
leigu - nálægt skóla. Leigist
fljótlega. Upplýsingar í sima
453 6497 eða 849 6697.
Til leigu smáíbúð fyrir
einstakling eða nægjusamt par
í Hlíðarhverfi Sauðárkróki.
Sérinngangur, laus nú þegar.
Upplýsingar í símum 453
5632 og 899 5632.
Áskrifendur góðir!
Munið eftir bankagíróinu
fyrir áskrifargjöldunum
Sími Feykis er 453 5757
Aðalfundur Félags
Þroskahjálpar í Skagafirði
og Húnavatnssýslum
verður haldinn í Hótel Varmahlíð
miðvikudagskvöldið 3. október kl. 20,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Nýtt Herbalife!
Komin ný hraðvirkari grenningarlína ásamt gömlu
góðu. Prófaðu líka súkkulaðið og nýja bragðteið. Haföu
samband og kynntu þér vöruna. Guðný sími 896 3110.
Þú verður ekki straumlaus með
Data-rafgeymi í bílnum
OLÍS - umboðið
Verslun Haraldar Júlíussonar
Heilbrigðisstofnunin
Sauóárkróki
Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku
á stofnuninni í október:
1/10-5/10
8/10- 12/10
15/10- 19/10
Hrafnkell Óskarsson
Vilhjálmur Andrésson
Sigurður Albertsson
22/10 - 26/10 Júlíus Gestsson
29/10-2/11
Skurðlæknir
Kvensjúkdómalæknir
Skurðlæknir
Bæklunarlæknir
Olafur R. Ingimarsson Skurðlæknir
Tímapantanir í síma 455 4000.