Feykir - 03.10.2001, Qupperneq 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
3. október 2001,33. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJORBOK
Vinsælasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
íslands
_______í forystu til framtfðar ' •
Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353
Starfsfólk Leiðbeiningamiðstöðvarinnar: Efri röð frá vinstri: Vésteinn Vésteinsson, Árni Gunn-
arsson, Fjóla Viktorsdóttir, Gígja Sigurðardóttir og Stefanía Birna Jónsdóttir. Neðri röð: Eyþór
Einarsson, Kristján Eymundsson og Eiríkur Loftsson. Á myndina vantar Brynju Ingimundard.
Leiðbeiningamiðstöðin tekin
Ný brú á Svartá
við Steinárbæina
Nú fyrir helgina hófúst fram-
kvæmdir við byggingu nýrrar
brúar á Svartá við Steinárbæina
í Svartárdal. Gamla járnbrúin,
sem er rúmlega 100 ára gömul
og búin er að þjóna sínu hlut-
verki í dalnum síðan 1963, var
þá fjarlægð. Þessa dagana er
verið að undirúa að setja stál-
bitabrú með timbui'gólfi í henn-
ar stað. Áformað er að þvi verki
verði lokið fyrir veturinn, en það
er Steypustöð Blönduóss sem
hefúr umsjón með verkinu.
Katrin Grímsdóttir húsfreyja
á Steiná segir að gamla brúin
hafi verið orðin bam síns tíma
fyrir talsverðu og ekki þjónað
þeirri umferð sem er heim til
þeirra þriggja fjölskyldna sem
búa á Steiná. Brúin hafi verið
þröng og þannig t.d. skólabíllinn
ekki komist heim, einungis einn
fóðurbílstjóri hafi orðið treyst
sér yfir hana, og mjólkurbíllinn
ekki eftir að skipt var um bíl á
síðasta ári, sem var alvarlegasta
málið. Þá hafi þurft að selflytja
áburðinn heim á bæina þar sem
flutningsbílamir komust ekki
yfir brúna. Nýja brúin verður
því gífúrleg samgöngubót.
Gamla brúin, sem er rúmir
36 metrar að lengd, var áður en
hún var flutt fram í Svartárdal-
inn, yfir Blöndu niður við
Blönduós og byggð 1897. Kom-
ið hefúr til tals að brúin verði
notuð sem göngubrú af fráveitu-
mannvirkunum norðan Blöndu
milli bæjarhlutanna, en ekkert
verið ákveðið í þeim efnum.
til starfa í Gömlu Gránu
Hvammstangi
Bygging íþróttahúss
að fara af stað að nýju
Nú um mánaðamótin hóf
göngu sína nýtt fyrirtæki á Sauð-
árkróki sem tekur við þeini starf-
semi sem Búnaðarsamband
Skagafjarðar annaðist áður. Leið-
beiningamiðstöðin ehf. heitir það
og er með bækistöð í Gömlu
Gránu, kaupfélagshúsinu í
Gamla bænum, sem hefúr fengið
verulega andlytslyflingu bæði
innra sem ytra, og er þar ágætis
skrifstofúrými. Nýja félagið sem
stoínað hefúr verið um leiðbein-
ingaþjónustuna er að 40% í eigu
Búnaðarsambandsins sem leggur
til bifreiðir og innanstokksmuni,
40% í eigu Kaupfélags Skagfirð-
inga og að minnsta kosti 20% í
eigu bænda. Hlutafé er fimm
milljónir króna.
Eins og greint hefúr verið frá
í Feyki var kosið um þessa leið á
síðasta vori þegar sýnt var að
ekki yrði hjá því komist að koma
starfseminni í annað rekstrarform
vegna rekstrarerfiðleika Búnað-
arsambandsins. Hlaut hún yfir-
gnæfandi stuðning bænda. Ef á-
hugi bænda reynist umfram 20%
á eignaraðild í félaginu, mun
hlutur hinna beggja lækka að
sama skapi, en um beint peninga-
framlag er að ræða ffá KS auk
þess sem félagið leggur til ffia
húsaleigu í Gránu fyrsta árið og
síðan mjög hóflega leigu úr því,
eða um 500 krónur á fermetra
miðað við verðlag í dag.
Að sögn Áma Gunnarssonar
framkvæmdastjóra Leiðbein-
ingamiðstöðvarinnar var öllum
starfsmönnum Búnaðarsam-
bandsins gefinn kostur á starfi.
Verður starfsemi með svipuðu
sniði og áður, en einnig bætist við
landsverkefúi „tölvuvæðing
sveitanna” og væntanlega fleiri
verkefhi er koma til með að efla
starfsemina og treysta rekstrar-
gmndvöllinn til ffamtíðar. Leið-
beiningamiðstöðin mun annast
gerð námsefúis fyrir töluverkefn-
ið og skipuleggja hvar kennslan
fer ffam, en kennt verður út um
allt land.
Eiríkur Loffsson jarðræktar-
ráðunautur verður faglegur ráðu-
nautur hjá LM, en stjómarfor-
maður er Jóhann Már Jóhanns-
son í Keflavík. Aðrir í stjóm em
Þórarinn Leifsson Keldudal,
Rögnvaldur Olafsson Flugumýr-
arhvammi, Agnar Gunnarsson
Miklabæ og Ámi Gunnarsson.
Sverrir Magnússon í Effa- Ási
stjómarformaður Búnaðarsam-
bands Skagafjarðar er ánægður
nteð hvemig úr hefúr ræst með
leiðbeiningastarfsemina. „Eg tel
að bændur sem stunda búskap
hér í héraði og hafa notið leið-
beiningaþjónustu, muni sjá sér
hag í því að styðja hana áffam til
góðra verka, m.a. með því að
eiga þama hlut. Þetta er eitt með
öðm leið til að skagfirskir bænd-
ur sýni það að í héraðinu sé
stundaður öflugur landbúnaður.
Kannski hugsa líka einhveijir
bændur þannig að það sé styrkur
af því að þeir ráði sjálfir yfir
þessari þjónustu í stað þess að
henni sé stjómað t.d. ffá Hvann-
eyri eða Akureyri”, segir Sverrir,
sem er bjartsýnn á að leiðbein-
ingaþjónustan verði áffam stað-
sett í Skagafirði og unnt verði að
efla hana ffekar. Nýtt símanúmer
í Gránu hjá LM er 455 7100.
Þessa dagana eru að hefjast
að nýju ffamkvæmdir við bygg-
ingu íþróttahúss á Hvamms-
tanga, en náðst hefúr samkomu-
lag við arkitekta sundlaugarinn-
ar Ormarr Guðmundsson og
Ömólf Hall sem hótuðu lög-
banni á íþróttahúsbygginguna,
sökum þess að arkitektamir
töldu að það hús sem verktak-
amir Tveir smiðir völdu, hentaði
ekki útliti sundlaugarinnar sem
íþrótthúsið byggist við. Niður-
staðan var sú að Tveir smiðir
breyttu um hús og verður byggt
hús með rislega þaki eins og
sundlaugin, í stað þess bogalaga
húss sem uppmnalegur verk-
samningur gerði ráð fyrir.
Gengið var ffá samkomulagi
þessu varðandi og lausir endar
hnýttir í Reykjavík sl. mánudag.
Þegar Feykir hafði samband við
Guðmund Hauk Sigurðsson
oddvita Húnaþings vestra sagð-
ist hann vera ánægður með að
þetta mál væri leyst og fram-
kvæmdir gætu haldið áffam.
Guðmundur sagði ljóst að vem-
legar breytingar yrðu á afhend-
ingartíma, en hann átti að vera
nú í nóvember en verður trúlega
ekki fyrr en undir vorið. Þá er
sýnt að einhver kostnaðarauki
hlýst af þessu, þar sent að sá
kostnaður sem lagt hefúr verið í
vegna fyrri samnings verður vart
endurkræfúr og einnig er reikn-
að með að kostnaðarsamara
verði fyrir verktakann að reisa
húsið að vetrinum en að sumr-
inu. Það er því ljóst að nýtt í-
þróttahús á Hvammstanga mun
ekki nýtast við kennslu í skóln-
um á þessum vetri eins og fast-
lega var reiknað með þegar
byggingin var boðin út á síðasta
ári.
...bílar, tiyg^ngar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tómarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYNJARS
SUÐTJBGÖTU 1 SfM! 453 6950
BÍLASALAN /
FORNOjS
BORGARFLÖT 2 • 550 SAUÐÁRKRÓKUR
SiMI 453 5200 • FAX 453 6201 • KT. 670600-2540 • VSK nr. 67609
Sími
453 5200