Feykir - 12.06.2002, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
„Uppbygging á verkefnum
á Akureyri alvarleg ógnun“
segir Jón Bjamason þingmaður um málefni Byggðastofnunar
Nýkjörin sveitarstjórn Skagafjarðar fyrir fyrsta fundinn á
tröppum Gamla barnaskólanum sl. mánudag.
Fyrsti fundurinn
„Hvort að innheimukerfi
Byggðastofnunar flyst í
Sparisjóð Bolungarvíkur er
smámál, þó eðlilegast væri að
byggja alla starfsemina upp
á einum stað. Stærsta málið
er að verið er að byggja upp
ný svið, bæði fjárfestingarvið
og nýsköpunarsvið á Akur-
eyri, sjálfstæðar deildir í
samstarfl við Háskólann á
Akureyri, sem veitt verður til
milljarði á næstu þremur
árum. Það er ljóst að þarna
er verið að byggja upp fram-
tíðarverksvið stofnunnar,
sem ætti vitaskuld að byggj-
ast upp á Sauðárkróki. Þessi
stofnun er ekki til að dreifa
henni með þessum hætti.
Þessi uppbygging á verkefn-
um Byggðastofnunar á Ak-
ureyri er alvarleg ógnun við
framtíðarstöðu stofnunar-
innar á Sauðárkróki“, segir
Jón Bjarnason alþingis-
maður.
Jón segir einnig alvarlegt
að Byggðastofnun hefur allan
tíma þessar ríkisstjómar, verið
lítt starfshæf vegna deilna
meðal einstaklinga innan
æðstu stofhana Framsóknar-
flokksins. „Þjónusta stofnunar-
innar út um landið hefúr beðið
hnekki út af þessum innantök-
um flokksins”, segir Jón
Bjamason alþingismaður en
hann hefur eins og margir fleiri
áhyggjur af þeirri stöðu sem
Byggðastofhun er í og virðist
ekki vera að leysast. Byggða-
stofnun er nánast í herkví
vegna deilna forráðamenna.
Sem kunnugt er hafa átt sér
stað hatrammar deilur milli
Kristins H. Gunnarssonar
stjómarformanns Byggða-
stofnunar og Theodórs Agnars
Bjamasonar forstjóra stofnun-
arinnar. Valgerður Sverrisdótt-
ir iðnaðarráðherra og yfirmað-
ur Byggðastofnunar hefur
blandast inn í þessar deilur, upp
á síðkastið á sérkennilegan hátt
finnst mörgum, en í bréfj í síð-
ustu viku setur hún fram nokk-
ar athugasemdir við störf for-
stjórans. Guðjón Guðmunds-
son varaformaður Byggðstofn-
unar tjáir sig um málið í Morg-
unblaðinu á sunnudag, þar sem
hann segir: „Ég tel að Theodór
hafi unnið af dugnaði og sam-
viskusemi fyrir þessa stofnun
við erfiðar aðstæður. Stofnun-
in var flutt norður á Sauðár-
krók og ráða þurfti nær allt
starfsfólkið upp á nýtt. Mér
finnst hann hafa gert þetta vel
og hef ekki haft neitt út á hans
störf að setja. Ég hef átt mjög
gott samstarf við Theodór og
treysti honum fullkomlega til
þeirra verka sem hann var ráð-
inn til”, segir Guðjón.
Sveitarstjórn ályktar
Fulltrúar í sveitarstjóm
Skagafjarðar em famir að
ókyrrast vegna Byggðastofn-
unarmálsins og sendu oddvitar
flokkanna frá sér svohljóðandi
ályktun um helgina: „Sveitar-
stjóm Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar skorar á ríkisstjóm ís-
lands að standa við fyrirheit
sem gefin voru við flutning
Byggðastofnunar til Sauðár-
króks um eflingu stofnunarinn-
ar til sóknar í byggðamálum.
Sveitarstjórn lýsir jafhframt
furðu sinni á þeirri umræðu
sem átt hefur sér stað varðandi
málefni Byggðastofnunar og
hafnar öllum áformum um
flutning einstakra rekstrarþátta
hennar frá Sauðárkróki, enda
er það skilningur sveitarstjóm-
ar að engin endanleg ákvörðun
hafi verið tekin um slíkan
flutning, innan stjómar
Byggðastofhunar.
Miklu varðar að flutningur
ríkisstofnana af höíuðborgar-
svæðinu út á land takist vel,
bæði fyrir viðkomandi stofnun
og það sveitarfélag sem hún
flyst til. Til að Byggðastofnun
geti sinnt hlutverki sínu er
nauðsynlegt að styrkja hana
faglega sem eina heild. Hug-
myndir um flutning starfsemi
Byggðastofnunar frá Sauðár-
króki em andstæðar hagsmun-
um landsbyggðarinnar og
ganga þvert á stefnu sveitar-
stjómar Skagafjarðar um efl-
ingu atvinnulífs í héraði. Sveit-
arstjóm Sveitarfélagsins
Skagafjarðar lýsir yfir fullu
trausti við starfsfólk Byggða-
stofnunar á Sauðárkróki og tel-
ur að ágreiningsmál varðandi
stofhunina verði ekki leyst á
farsælan hátt án samstarfs og
samvinnu við starfsfólk henn-
ar.”
Fyrsti fundur nýkjörinnar
sveitarstjómar Skagafjarðar var
haldinn að Aðalgötu 2, Gamla
bamaskólahúsinu, sl. mánudag.
Aðalefhi fundarins var kjör í
nefndir og ráð bæjarins, sem og
að ganga frá ráðningu Ársæls
Guðmundssonar sem sveitar-
stjóra. Eins og komið hefur ffarn
verður Gísli Gunnarsson af D-
lista bæði forseti sveitarstjómar
og fonnaður byggðaráðs. Fyrsti
varaforseti verður Bjami Jóns-
son frá U-lista og annar varafor-
seti Gunnar Bragi Sveinsson af
b-lista. Þessir tveir em einnig
aðalmenn í byggðaráði ásamt
Gísla.
Nokkurt þref varð á fundin-
um á mánudag í ffamhaldi af því
að fulltrúar meirihfutans lögðust
gegn því að Snorri Styrkársson
fulltrúi Skagafjarðarlistans fái að
sitja fundi byggðaráðs, án at-
kvæðisréttar en með málffelsi og
tillögurétti, en heimild er til
þessa síðan á dögum bæjar-
stjómar Sauðárkróks, að minni-
hlutaflokkar fái með þessum
hætti að fylgjast með málum í
byggðaráði.
Sú breyting hefur verið gerð
á nefndaskipan hjá sveitarfélag-
inu Skagafírði, að fækkað hefur
verið í nefhdum, nú sitja þrír
menn í þeim.
—KTeH£ÍH chiDI— ^ /liriibílaverksfæði*°o..
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ t M m M sími: 453 5141 v
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:4S36140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA JfcBílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA C Réttingar ^ Sprautun