Feykir - 12.06.2002, Side 2
2 FEYKIR 21/2002
Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkuleikari frá Mýrarkoti
ásamt Sveini Sigurbjörnssyni skólastjóra Tónlistarskóla
Skagafjarðar t.h. og Richard Simm sem sat í dómnefnd.
Efnilegur einleikari
keppni var 31. maí, undanúrslit
1. júní og úrslitakeppnin síðan
sunnudaginn 2. júní. Eins og
áður segir sigraði Jón Þorsteinn
ReynissonTónlistarskóla Skaga-
fjarðar, er spilaði á harmonikku,
önnur varð Unnur Bima Bjöms-
dóttir fiðluleikari Tónlistarskóla
Akureyrar og þriðja Þuríður
Ingvarsdóttir einnig fiðluleikari
Tónlistarskóla Akureyrar. Dóm-
neftid skipuðu: Richard Simm,
Lilja Hjaltadóttir og Roar Kvam.
Og haföi sá síðastnefndi yfirurn-
sjón með keppninni fyrir hönd
Menor.
Búnaðarbankinn á Akureyri
lagði fram verðlaunafé til
þriggja efstu, sem skiptust, 50
þúsund, 30 og 20. Stúlkumar
léku síðan á glæsilegri afmælis-
hátíð Menor á Laugarborg í
Eyjafirði sl. sunnudag, en þar
var fagnað 20 ára afmæli sam-
takanna. Jón Þorsteinn var hins-
vegar löglega forfallaður þar sem
hann var fenndur þennan dag.
Fjórtán ára harmonikkuleik-
ari, Jón Þorsteinn Reynisson ffá
Mýrarkoti í Skagafirði, sigraði í
einleikarakeppni sem Menor
gekkst fyrir í samvinnu við tón-
listarskóla á Norðurlandi.
Keppnin fór ffam á Akureyri
dagana 31. maí til 2. júní sl. og
voru þátttakendur nítján talsins.
Þrír bestu að mati dómnefndar
kepptu til úrslita.
I keppninni var miðað við
aldurstakmark 25 ár í klassísk-
um hljóðfæraleik. Upphaflega
var hugmyndin að keppa í
tveimur flokkum, styttra og
lengra kominna, til og með
fimmta sigi og ffá sjötta stigi og
uppúr. Einungs sjö lengra komn-
ir tilkynntu sig og þegar frekari
forföll urðu var ákveðið að fella
niður keppni í þeim flokki. Af
22 sem skráðu sig hjá styttra
komnum kepptu nítján.
Keppnin fór fram í húsa-
kynnum Tónlistarskólans á Ak-
uryri, Hafnarstræti 81. For-
Eldridansaklúbburinn
Hvellur
Loksins Loksins
Nú dönsum við í Skagaseli
laugardaginn 15. júní kl. 22 - 03.
Hinn frábæri Stulli sér um að allir
skemmti sér.
Mætum öll í stuði!
Nefndin.
Málefnasamningur D og VG í Skagafirði
Fulltrúar ffamboðanna D og VG hafa náð
samkomulagi um stjómun Sveitarfélagsins
Skagafjarðar á kjörtímabilinu og komist að sam-
eiginlegri niðurstöðu um úrvinnslu málefna.
Þau áhersluatriði sem frarn koma í þessum
samningi eru grundvöllur að samstarfi fram-
boðanna og vísbending um þann einlæga vilja
að láta traust og fagmennsku verða leiðarljós við
stjómun sveitarfélagsins. Samkomulag um
meðferð málefna er í aðalatriðum byggt á
stefnuskrám ffamboðanna við nýafstaðnar sveit-
arstj ómarkosningar.
Taka þarf á alvarlegum fjárhagsvanda sveit-
arfélagsins og því mun spamaður og hagræðing
verða lögð til grundvallar í rekstri með það að
markmiói að lækka skuldir og skapa svigrúm til
ffamkvæmda og bættrar þjónustu í ffamtíðinni.
Gerð verður úttekt á fjárhagsstöðu sveitarfélags-
ins og rnunu ffamkvæmdaáætlanir taka mið af
henni. Einnig verður gerð úttekt á sameiningar-
ferlinu sl. fjögur ár, hvernig til hefur tekist,
hvaða lærdóm má af því draga og hvaða úrbæt-
ur megi gera. Stuðlað verður að bjartsýni og
ffamfaravilja hjá íbúum sveitarfélagsins. Lögð
verður áhersla á að auka tengsl sveitarstjómar
og íbúanna og bæta aðgengi þeirra að upplýs-
ingum er varða sveitarfélagið og rekstur þess.
Stjórnsýslu- og fjármálasvíð
Stjómskipulag og samþykktir sveitarfélags-
ins verða endurskoðaðar í þeim tilgangi að ná
fram aukinni skilvirkni og hagkvæmni. Gerð
verður ítarleg og skýr starfsmannastefna og sí-
menntunarstefna. Innra effirlit með fjárreiðum
sveitarfélagsins verður eflt og unnið að endur-
skoðun tekjuskiptingar ríkis og sveitarfélaga.
Framkvæmdaáætlun verður ekki lögð fram fyrr
en að afloknu milliuppgjöri á stöðu sveitarfé-
lagsins.
Fjölskyldu- og þjónustusvið
Rekstur og staifsemi skóla og skólaskrifstofú
verður skoðuð í heild sinni og endurmetin með
það að markmiði að bæta og hagræða í skóla-
starfi i héraðinu.
Mörkuð verður skýr menntunar- og skóla-
málastefna. Gerð verður framkvæmdaáætlun
um viðhald og uppbyggingu skólamannvirkja.
Stefnt verður að því að auka ffamboð á leik-
skólarými og öðrum dagvistarúrræðum. Stuðl-
að verður að auknum tengslum atvinnulífs og
skóla og lögð verður aukin áhersla á ffæðslu um
menningu og náttúru Skagafjarðar í skólastarfi.
Stefnt verður að því að styrkja nám á ffamhalds-
skólastigi og að í Skagafirði verði miðstöð
ffamhaldsmenntunar í völdum verkgreinum á
landsvísu. Unnið verður að því að efla Skaga-
fjörð sem vettvang rannsókna- þróunarstarfs og
menntunar á háskólastigi. Stutt verður við söfn,
rninja- og menningarsetur og þeim sköpuð vaxt-
arskilyrði. Rekstrargrundvöllur félagsheintila
verði styrktur og þau efld sem miðstöðvar
menningar og félagslífs. Unnið verður að því að
ná samningum við ríkisvaldið um menningar-
tengda starfsemi í Skagafirði.
Tryggð verði góð félagsþjónusta og að hún
nái til þeirra íbúa sveitarfélagsins sem á henni
þurfa að halda. Stutt verður við íþrótta- og tóm-
stundastarf bama og unglinga í gegnum sam-
starf skóla, íþróttafélaga og önnur félagasam-
tök. Fjárffamlög sveitarfélagsins til íþrótta-
hreyfingarinnar verða betur skilgreind til að
tryggja að þau nýtist sem best til þeirra verkefna
sem þeim er ætlað. Þegar verði hafist handa við
undirbúning Landsmóts UMFI2004 í samstarfi
við UMSS með það að markmiði að standa vel
að mótshaldi og tryggja sem breiðasta þtttöku
Skagfirðinga. Affam verður unnið að uppbygg-
ingu forvama í samvinnu við hlutaðeigandi að-
ila. Unnið verður að bættri öldrunarþjónustu i
héraðinu og sveitarstjóm mun beita sér fyrir því
að öflug heilbrigðisþjónusta verði áfram rekin í
Skagafirði.
Umhverfis- og tæknisvið
Horfið verður frá áformum um virkjun við
Villinganes og aðkoma sveitarfélagsins að Hér-
aðsvötnum ehf verður endurskoðuð. Gerð verði
úttekt á hagkvæmni smærri virkjana. Efla þarf
Skagafjarðarveitur og vinna að aukinni fjöl-
breytni á nýtingu jarðvarma í héraðinu. Sérstök
áhersla verður lögð á að leita að heitu vatni fyr-
ir Hofsós og nærsveitir. Stefht er að því að Skag-
firðingar verði þátttakendur í því þróunarstarfi
sem nú fer ffam í landinu í virkjun jarðvarma og
vistvænna orkugjafa. Gætt verði hagsmuna
sveitarfélagsins og landeigenda í óbyggðamál-
um. Staðsetning sorpforgunar verður endur-
skoðuð og kannaðar verða nýjungar varðandi
sorpvinnslu. Mótuð verður umliverfísstefha þar
sem áhersla verður lögð á að tengja betur sam-
an umhverfi, atvinnulíf og skóla. Rannsóknir og
ffæðsla um náttúru Skagafjarðar gegna þar
einnig lykilhlutverki. Unnið verður áffarn að
Staðardagskrá 21, verkefninu „Fegurri sveitir”
og að koma ffáveitumálum í viðunandi horf.
Áfram verður unnið að vistvænni nýtingu af-
rétta og haldið verður uppi virku búfjáreffirliti
og forðagæslu.
Hagkvæmni og notagildi almenningssam-
gangna í sveitarfélaginu verður athugað. Lögð
verður áhersla á uppbyggingu vega innan héraðs
og betri vegtengingar við hálendið. Standa þarf
vörð um flugsamgöngur. Áffam verður unnið
að góðu viðhaldi og uppbyggingu hafna.
Kannaðir verða möguleikar á að nýta At-
vinnuþróunarfélagið Hring áffam til atvinnuþró-
unar í Skagafirði. Sveitarfélagið vinni að upp-
byggingu stoðumhverfis fyrir eflingu atvinnu-
lífs og að því að skapa ákjósanleg skilyrði fyrir
nýsköpun í atvinnulífí. Stuðlað verður að ffek-
ari rannsóknum og kortlagningu í menningar-
og náttúruauðlindum héraðsins og auðlindir
Skagafjarðar verði nýttar á sjálfbæran hátt til
hagsbóta fyrir Skagfirðinga. Áhersla verður
lögð á fjölbrcytni í atvinnulífi og að hlúa að
þeirri starfssemi sem fyrir er.
Sérhæfð þjónusta á landsvísu verði byggð
upp við Heilbrigðisstofnunina. Efla þarf Skaga-
§örð sem ferðamannasvæði með sérstaka á-
herslu á orlofshúsabyggðir og menningartengda
ferðaþjónustu. Leitað verði iðnaðarkosta sem
falla að því umhverfi og byggðamynstri sem
fyrir er. Tryggja þarf tengsl atvinnulífs og
menntastofhana t.d. í sambandi við eflingu fisk-
eldis og hrossaræktar. Unnið verður að ffam-
faramálum í samstarfi við ríkisvaldið og lögð á-
hersla á að veija og styrkja opinberar stofnanir í
sveitarfélaginu og afla aukinna verkefna.
JL ó tiáö fréttablað á KIR Noröurlandi vestra Kentur út á ntiðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Hennannsson, Sigtuður Ágústsson og Stefán Ámason. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4, Áskrifiarverð 190 krónur hvert tölublað með vsk. 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og Farsími 854 6207. Netfang: feykir @ krokur. is. umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F. aðild aö Samtökum bæja- og héraösfréttablaða. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur