Feykir - 12.06.2002, Blaðsíða 7
21/2002 FEYKIR 7
Samningur um meirihluta-
samstarf í Húnaþingi vestra
Samstarfssamningur B- og
T-lista um myndun meirihluta í
sveitarstjórn Húnaþings vestra
kjörtímabilið 2002-2006. Sam-
starfið byggir á steífiuskrám B-
ogT - lista fyrir kosningamar
2002.
Aðilar samningsins ætla að
beita sér fyrir sem bestri sátt
meðal íbúa sveitarfélagsins.
Þessu markmiði hyggst meiri-
hlutinn ná m.a. með því að
kynna allar meiriháttar breyt-
ingar á starfsemi sveitarfélags-
ins fyrir íbúunum. Efla skal
heimasíðu Húnaþings vestra til
að auðvelda fólki upplýsinga-
öflun um málefni sveitarfélags-
ins. Gefin verði út fféttabréf um
fjármál og framvindu verkefha.
Sveitarstjórn heldur a.m.k. einn
borgaraffmd árlega.
A fyrri hluta kjörtímabilsins
verður farið yfir reynslu af skip-
an stjómsýslu í sveitarfélaginu
og hlutverk og skipan nefnda
endurskoðuð. Við skipan í
nefndir og ráð verði leitast við
að fulltrúar hafi dreifða búsetu í
sveitarfélaginu og hlutur kynj-
anna jafnaður svo sem kostur er.
Skipting embætta
Fyrstu tvö ár kjörtímabilsins
verður oddviti af T-lista og
varaoddviti af B-lista. Seinni
tvö árin verði oddviti af B-lista
og varaoddviti af T-lista. For-
maður byggðarráðs verður af
B-lista fýrstu tvö ár kjörtíma-
bilsins en frá T-lista seinni tvö
árin. Varaformaður verður ffá T-
lista fyrri tvö árin en ffá B-lista
hin seinni tvö. Starf sveitar-
stjóra verður auglýst.
Fjármál
Fjármálastjóm verði ábyrg
og hagkvæm þannig að tekjur
sveitarfélagsins nýtist sem best.
Alagningu útsvars og fasteigna-
gjalda verði stillt í hóf svo sem
kostur er. Framkvæmda- og
fjárhagsáætlanir verði gerðar
fyrir öll stærri verkefni.
Atvinnumál/samgöngur
Bein þátttaka í atvinnurekstri
skal verða í lágmarki en stuðlað
skal að því að skapa gott rekstr-
ar- og starfsumhverfi. Sveitar-
félagið beiti sér fyrir kynningar-
verkefni til að laða að ný fyrir-
tæki og þjónustustofnanir. Jafn-
ffamt verði leitast við að efla
þau fyrirtæki og þjónustustofn-
anir sem fyrir em.
Fjármunir verði tryggðir til
áffamhaldandi starfs atvinnu-og
ferðamálafulltrúa. Áhersla verði
lögð á menningartengda ferða-
þjónustu. Ljúka þarf sem fyrst
hagkvæmnis-og umhverfisat-
hugunum kalkþörungavinnslu í
Hrútafirði. Ráðinn verði verk-
efhisstjóri tímabundið ef þörf
krefur.
Unnin verði fjárhags- og
ffamkvæmdaáætlun vegna við-
halds gatna og malbikunar í
þéttbýli og njóti þessar fram-
kvæmdir forgangs i fram-
kvæmdaröðun við gerð fjár-
hagsáætlunar. Knúið verði á
með fjármagn til uppbyggingar
tengivega og Víðidalstungu-
heiðarvegar.
Áfram verði stuðst við til-
lögur fjallskilastjóma um
stefnumörkun og ffamkvæmdir
á sínu svæði. Réttur sveitarfé-
lagsins varðandi eignarhald á
afféttum og heiðarlöndum verði
varinn af fullri einurð.
ar hagsældar fyrir íbúa Skaga-
fjarðar.
Sameinað sveitarfélag
Sveitarfélög í Skagafirði að
ffátöldum Akrahreppi höfðu
sameinast í eitt fyrir fjórum
ámm. Sameining sveitarfélaga
er viðkvæm aðgerð. Hún stytt-
ir ekki vegalengdir eða laðar
ffarn nýja tekjustofna. Hið
mikla sjálfboðaliðsstarf sem
unnið er í stjórnun margra
sveitahreppa fellur að mestu
niður en kröfur og væntingar
aukast. Vinstrilireyfingin -
grænt framboð hvetur til var-
fæmi og góðrar grunnvinnu í
sameiningu sveitarfélaga. Mik-
ilvægt er að þeirri vinnu sé fylgt
eftir og hið nýja sveitarfélag
myndi eina heild þar sem réttur
hvers og eins er virtur óháð bú-
setu.
Byggðir Skagafjarðar eru
rikar af auðlindum til lands og
sjávar. Ef þessar auðlindir em
ræktar og nýttar með sjálfbær-
um hætti þá mun fjölskyldu-
vænt samfélag, öflugt atvinnu-
líf og blómleg menning áffam
dafna í Skagafirði. Vafalaust
verður nýrri sveitarstjóm
þröngur stakkur skorinn fjár-
hagslega. En einmitt við slíkar
aðstæður er rétt forgangsröðun
hvað mikilvægust.
Árnaðaróskir til nýrrar
sveitarstjórnar
Það þótti djarft að stilla upp
efsta manni listans jafhffamt
sem sveitarstjóraefni. Sú
ákvörðun sýnir enn ffekar að
Vinstri grænir í Skagafirði eru
reiðubúnir að axla ábyrgð og
fylgja eflir stefnu nýrrar sveitar-
stjómar með mann úr eigin röð-
uin sem sveitarstjóra. Eg óska
Ársæli Guðmundssyni, oddvita
Vinstri grænna og nýjum sveit-
arstjóra, allra heilla í vanda-
sömu starfi. Vinstrihreyfing-
unni - grænu ffamboði í Skaga-
firði, hinum nýja meirihluta
sveitarstjómar svo og sveitar-
stjóminni allri er óskað farsæld-
ar á nýju kjörtímabili.
Jón Bjarnason.
Félagsmál
Standa ber vörð um þá
grunnþjónustu sem ríkið veitir
íbúum sveitarfélagsins. Áhersla
verði lögð á góða félagslega
þjónustu. 1 samvinnu við Heil-
brigðisstofhunina verði leitast
við að koma á dagvist fyrir aldr-
aða. Stofnanir sveitarfélagsins
skulu vera aðgengilegar fotluð-
um og öldruðum. Dagvist
bama verði rekin áffam og auk-
in ef þörf virðist á. Efla ber for-
vamir með samvinnu við stýri-
hóp um vímuvamir og íbúana.
Menningar- og fræðslumál
Markmið skólastarfs er að
efla þekkingu og þroska nem-
emda með samstarfi starfsfólks
skóla, heimila og sveitarstjóm-
ar. Styðja þarf við innra starf
skólans til metnaðarfulls skóla-
starfs.
Gmnnskóli Húnaþings
vestra verði rekinn með svip-
uðu sniði og nú. Kennslustaðir
verði tveir þ.e. á Hvammstanga
og Laugarbakka. Breytingar á
fjölda kennslustaða verði ekki
gerðar nema til komi önnur
starfsemi sambærileg að um-
fangi eða rekstrarkostnaður fari
úr böndum.
Fagleg- og fjárhagsleg mark-
mið grunnskólans komi til
skoðunar effir því sein þurfa
þykir. Tónlistarskólinn verði
áffam rekinn af metnaði og
unnið að endurbótum á hús-
næði skólans. Samstarf leik-og
gmnnskóla verði eflt til að auð-
velda nemendum flutning milli
skólastiga. Auka þarf mögu-
Smáauglýsingar
Vmislegt!
Blandaðir skógar-kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í síma
453 8112.
Til sölu tvær dráttarvélar að
gerðinni Zetor 4718 og 5245
4x4 og einnig tvær heytætlur.
Upplýs. í síma 453 6780 Jens,
453 6114 Ómar, eða í 899 2017.
Húsnæði!
Lítil íbúð eða gott herbergi
óskast ffá og með 1. júní.
Upplýsingar i síma 862 2180,
Bikarkeppni KSÍ
SauðárkróksvöUur
Tindastóll - Þór
föstudagskvöld kl. 20
Stórleikur á Króknum
leika á fjarkennslu á öllum
skólastigum og stefnt skal að
fjamámi á ffamhaldsskólastigi.
Þjónusta bóka- og héraðs-
skjalasafnsins verði aukin m.a.
með tölvubúnaði til almenn-
ingsnota. Ef kostur er verði
samið við rekstraraðila um að
taka að sér rekstur Skólabúð-
anna á Reykjum þannig að
leiga standi undir viðhaldi fast-
eigna.
íþrótta- og æskulýðsmál
Stuðlað verði að fjölbreyttu
íþrótta- og æskulýðsstarfi með
stuðningi við Ungmennasam-
bandið og aðildarfélög þess.
Gerður verði nýr samningur við
USVH og umhirðusamningar
þar sem það á við. Starfsemi
íþróttahúss og sundlaugar á
Hvammstanga verði sameinuð
undir nafninu íþróttamiðstöð
Húnaþings vestra. Áffam verði
rekin félagsmiðstöð lýrir ung-
menni. Kannaðir verði mögu-
leikar á einum forstöðumanni
við íþrótta- og félagsmiðstöð-
ma.
Uppbyggingu íþrótta- og úti-
vistarsvæðisins í Kirkju-
hvammi verði haldið áffam.
Akstur úr íþrótta- tónlistar- og
félagsstarfi að afloknum skóla-
degi verði skipulagður með
föstum ferðum til móts við
þarfir iðkenda og foreldra/for-
ráðamanna.
Umhverfis-og skipulagsmál
Skipulagt verði verkefni til
lagfæringar á vatnsbólum. Átak
verði gert til að ljúka ffárennsl-
ismálum á kjörtímabilinu.
Kannaðir verði möguleikar á að
brenna sorp og nýta orkuna til
upphitunar.
Unnið verði að samræmdri
merkingu sveitabæja og ör-
nefhaskráningu haldið áffam. í
þéttbýli verði unnið að merk-
ingu gatna og gamalla húsa.
Veittar verða viðurkenningar
þeim er skara framúr á sviði
umhverfismála. Unnið verði að
afgreiðslu fýrirliggjandi
deiliskipulagstillagna.
Sumarlokun leikskólanna
Sumarið er loksins kornið.
Fólk flest er farið að undirbúa
sumarffíið sitt og einhveijir
gætu verið komnir í fri nú þeg-
ar. Ekki eru allir svo heppnir
að geta valið sjálfir hvenær
þeir fara í fri, og kemur það til
af því að fýrirtæki í fram-
leiðslu og þjónustu reyna að
gera sitt besta til að þurfa ekki
að loka, og þar af leiðandi
hætta ffamleiðslu um tíma.
Einn vinnustaður hefur þó
mjög mikla sérstöðu. Það er
vinnustaður bama okkar, leik-
skólinn. Sveitarfélagið Skaga-
fjörður hefur haff þá reglu að
loka öllum leikskólum í
Skagafirði í fjórar til tíu vikur
yfir sumarmánuðina. Leik-
skólamir á Sauðárkróki hafa
verið lokaðir i fjórar vikur á
tímabilunu júlí til ágúst hvert
ár, og er árið í ár engin undan-
tekning.
Foreldrar bama á leikskól-
unum hafa verið mis ánægðir
með þetta fýrirkomulag á
þessari þjónustu Sveitarfélags-
ins. Oft á tíðum em foreldrar
skikkaðir í fri hjá fýrirtækinu
sem þeir vinna i, og er því alls
ekki gefið að þeir geti verið í
frii á sama tíma og bömin
þeirra. Þetta leiðir til að bömin
eru tekin út af leikskólanum á
þeirn tíma sem foreldramir em
í ffíi og svo þarf að útvega
pössun fýrir krílin á þeim tíma
sem leikskólamir em lokaðir.
Foreldrafélög leikskólanna
í Skagafirði gerðu könnun á
viðhorfi foreldra bama í leik-
skólunum i vetur og kom þar
margt forvitnilegt upp á yfir-
borðið. Ef litið er eingöngu á
svömn ffá leikskólunum á
Sauðárkróki, svömðu 52,5%
svarenda að þeir væru ósáttir
eða mjög ósáttir við sumarlok-
anir leikskólanna. Ef miðað er
við að þeir sem ekki tóku þátt
í könnuninni séu hlutlausir,
þ.e. þetta skipti þá engu máli,
þá er hægt að segja að ríflega
fjórðungur allra foreldra bama
á leikskólunum á Sauðárkróki,
séu ósáttir eða mjög ósáttir við
þessar lokanir. í könnuninni
var einnig óskað eftir hug-
myndum að fýrirkomulagi sem
gæti orðið til þess að ekki þyrffi
að loka leikskólunum yfir sum-
artímann, og bámst fjölmargar
hugmyndir að lausnum.
Fráfarandi sveitarstjórn
Skagafjaröar var sent bréf, þar
sem niðurstöður könnunarinn-
ar vom kynntar og boðin ffarn
aðstoð við hugmyndavinnu
við skipulag sumaropnunar.
Skemmst er ffá þvi að segja að
ekki hefur enn borist svar frá
sveitarstjórninni og þess varla
að vænta úr þessu. Það er okk-
ar von að ný sveitarstjórn sjái
sér hag í að ræða þessi mál við
foreldrafélögin og komi að
vinnu á lausnum á þessu
vandamáli sem stór hluti íbúa
sveitarfélagsins upplifa.
Fyrir hönd foreldrafélaga
leikskólanna á Sauðárkróki.
Þorsteinn T. Broddason.