Feykir


Feykir - 28.08.2002, Page 1

Feykir - 28.08.2002, Page 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Salmoncllusvking í Hegranesi Vonast til að losað verði um farbannið á næstunni Magnús Jónsson bóndi á Ási I í Hegranesi hefur óskað eft- ir því að sýni verði tekið úr mjólkurkúm á bænum í þessari viku. Hann vonast til þess að kýrnar hafi undan- farnar vikur hreinsað sig af salmonnellusýkingu og ekki líði á löngu þar til levfi fáist að leggja inn mjólk í samlag, en mjólkurbíll hefur ekki komið á Ás I síðan 23. júlí sl. Leyfi fékkst til þess að fara með 10 nautgripi til slátrun- ar á dögunum, enda hafði ekkert smit greinst í þeim gripum. Salmonellusmit greindist i 20 mjólkurkúm á Ási I á sínum tíma, en Magnús segir að þess- ar kýr hafi ekki sýnt nein veik- indamerki og þær hafi vonandi öðlast meira heilbrigði að und- anfömu með því að ganga á kjamgóðu landi, en undanfarið hefur þeim verið beitt á hána. Aðspurður segir Magnús að það sé ennþá óráðið hvað hafi ollið salmonellusmitinu, þar sem ekkert smit hafi greint í drykkjarvatni búpenings né rot- þrónni, sýni hafi reynst nei- kvæð í báðum tilfellum. í ffétt útvarpsins á mánudag var haft eftir yfirdýralækni að útlit væri fyrir að salmonellu- smitið í Hegranesi væri að hreinsast út og af fréttinni má tti dærna að útlit sé fýrir að far- banni fari að linna á Ásbæina I og II sem sett var í kjölfar þess að drepa varð eina kýr á fýrrnefnda bænum vegna salmonellu og í kjölfarið var hætt að flytja mjólk í samlag ffá bænum. Magnús Jónsson á Ási I seg- ir ekki ljóst hvort hann fái bætt það mikla tjón sem búið hefur orðið fýrir. Bjargráðasjóður muni bæta það að einhverju leyti en ekki sé ljóst hversu langt bætur muni ná upp í tjón- ið. I ffétt Feykis fýrir skömmu var sagt að gerlamengun hafi fundist i jarðvegi á Ási II. Einar Valur Valgarðsson bóndi þar segir að sú fullyrðing sé röng og úr lausu lofti gripin. Þá sagði Einar Valur vegna fféttarinnar að féð á bænum hafi verið rann- sakað i kjölfar þess að salmon- ellusmitið kom upp á Ríp í vor. Snorri Evertsson mjólkursamlagsstjóri ásamt mjólkurfræð- ingunum Helga Ragnarssyni og Hermanni Þórissyni. Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga Innvegin mjólk komin yfir tíu milljón lítrana Erilssamt hjá lögreglu um helgina Þrír í fangageymslur og ein útafkeyrsla Talsverður erill var hjá lög- reglunni á Sauðárkróki um helgina. Þrír voru settir í fangageymslur og látnir sofa úr sér eftir að hafa lent í risk- ingum að loknum dansleik í Miðgarði, þar sem Qölmenni var samankomið og mikil ölv- un. Lögreglan var síðan kölluð á vettvang eftir útafakstur um sexleytið á laugardagsmorgun. Það gerðist á Garðssandi við Héraðsvamabrúna. Ökumað- ur, sem var einn í bílnum, er grunaður um ölvun en hann ók út i vötnin, skamma leið. Varð hann fýrir litlsháttar meiðslum, minna en ætlað var í fýrstu. Bíllinn mun vera eitt- hvað skemmdur eftir þessa ökuferð. Talsverð tímamót áttu sér stað í Mjólkursamlagi Kaupfé- lags Skagfirðinga í gær, þriðjudag, en þá fór í fýrsta skipti i sögu samlagsins, inn- vegin mjólk yfir 10 milljón lítra á verðlagsárinu, sent nú nær ffá 1. september til 31. á- gúst, og er því að ljúka. Þetta magn er umfram kvótann sem er 9.937.279 lítrar og innvegin mjólk verður að líkindum 200 - 300.000 lítrum framyfir kvótann á þessu verðlagsári. Snorri Evertsson mjólkur- samlagsstjóri segir að bændur á samlagssvæðinu séu stöðugt að bæta við sig kvóta. Síðustu sex árin hafi kvótinn aukist úr 7,8 milljónum lítra í það að verða í byijun næsta verðlags- árs 10.128.507 lítrar. „Þróunin er þannig að búin eru að stækka samhliða því að mjólkurffamleiðendum fækk- ar. Ég er mjög ánægður með framtak bænda og ffammi- stöðu þeirra í greininni, hvað þeir hafa verið duglegir að auka framleiðsluna og afla samlaginu hráefhis. Mjólkur- gæðin hafa líka verið að stór- aukast seinni árin og nánast undantekning ef eitthvað bregður út af”, segir Snorri, en þess má geta að Kaupfélag Skagfirðinga hefur á undan- fömum árum í samvinnu við bændur unnið markvisst að því að auka ffamleiðsluréttinn. Framleiðsla MKS er að langstærstu leyti ostar, 88% mjólkur fer í ostagerð, annað í neyslumjólk. Að sögn sam- lagsstjóra er birgðasöfriun lítil, og í rauninni vanti enn meiri mjólk til ostaffamleiðslunnar, vegna aukinnar sölu á próteini. Aðspurður sagði Snorri að i dag benti ekkert til þess að santlagssvæðið myndi stækka, en ekki væri ólíklegt að verka- skipting myndi breytast milli mjólkursamlaga í landinu. Hann segir tæknivæðingu MKS rnjög góða á sviði osta- gerðar, ostalínan hafi verið endurbyggð á síðustu þremur árum. —IOch^íI! — Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA bhmkstæðt°o^ ^ ÆAJLMJM. sími: 453 5141 ^ Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 ^Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir Réttingar # Sprautun

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.