Feykir - 11.12.2002, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 43/2002
Hluti fiskeldisnáms
Hólaskóla á Krókinn
Á aðalfundi Fiskiðjunnar sl.
fimmtudag greindi Jón E.
Friðriksson framkvæmdastjóri
frá því að í undirbúningi væri
samstarf FISK og Hóla sem
miðaði að því að gera Hóla að
miðstöð rannsókna og kennslu
í fiskeldi. Gert er ráð fyrir að
rannsóknar- og kennsluþáttur-
inn verði fluttur á Sauðárkrók
og hafi aðstöðu í Skjaldarhús-
inu.
„Við höfum mikla trú á því
starfi sem ffarn fer á Hólum og
erum sannfærðir um að það
eigi eftir að reynast héraðinu
vel í ffamtíðinni, enda fáum við
í gegnum rannsóknarstarfið á
Hólum mjög færa vísindamenn
á svæðið", segir Jón E.
Friðriksson en hann lét þá
skoðun i ljósi á aðalfúndi FISK
að trúlega myndi matvælaffam-
leiðslan byggjast að auknum
hluta á fiskeldinu í ffamtíðinni
og sýnilegt að margir aðilar
væru að búa sig undir þá þróun.
Skúli Skúlason skólameist-
ari sagði að góður hugur væri í
Hólamönnum varðandi sam-
starf við Fiskiðjuna, enda hafi
ríkt góður andi í samskiptum
þessara aðila.
Þess má geta að um 70
milljónum króna var varið til
fiskeldisrannsókna Hólaskóla
vegna hlutar ríksins í sölu á
hlutabréfúm í Steinullarverk-
smiðjunni, en eins og ffam
hefúr komið í Feyki var það
Vilhjálmur Egilsson alþingis-
maður sem annaðist útdeilingu
þess fjár.
Árni Steinar í 2.
sæti hjá Vinstri G
Óvænt tíðindi gerðust á
kjördæmisþingi Vinstri græn-
na í Norðvesturkjördæmi sl.
laugardag í Munaðarnesi í
Borgarfirði, en þar var tilkynnt
að Ámi Steinar Jóhannsson
yrði í öðm sæti listans. „Við
ætlum að halda þessum tveim
þingmönnum“, sagði Bjarni
Jónsson fúlltríii VG í sveit-
arstjóm Skagafjarðar í tilefni
birtingar listans. Á fundinum
sem haldinn var á Hólmavík
lagði uppstillinganefnd fram
ffamboðslistann við alþingis-
kosningamar að vori. Listann
skipa eftirtaldir:
1. Jón Bjamason alþingis-
maður, Blönduósi. 2. Ami
Steinar Jóhannsson alþing-
ismaður, Akureyri. 3. Lilja
Rafney Magnúsdóttir varafor-
seti ASV Suðureyri. 4. Hildur
Traustadóttir landbúnaðar-
starfsmaður, Brekku, Borgar-
fjarðarsveit. 5. Sigurlaug Kr.
Konráðsdóttir leikskólaken-
nari, Sauðárkróki. 6. Eva Sig-
urbömsdóttir hótelstýra, Djúpu-
vík, Strandasýslu. 7. Ragnar
Elbergsson verkamaður,
Grundarfirði. 8. Sigrún B.
Valdimarsdóttir ferðaþjónus-
tubóndi, Dæli, Húnaþingi ves-
tra. 9. Halldóra Játvarðardóttir
bóndi, Miðjanesi, Reykhóla-
hreppi. 10. Gunnlaugur Har-
aldsson þjóðháttafræðingur,
Ámi Steinar Jóhannsson.
Akranesi. 11. Magnús Jósefs-
son bóndi, Steinnesi, Austur-
Húnavatnssýslu. 12. Gunnar
Sigurðsson jámsmiður, Bol-
ungarvík. 13. Ásmundur Daða-
son búffæðingur, Lambeymm,
Dalabygg. 14. ísak Sigurjón
Bragason framhaldsskóla-
nemi, Borgargerði, Skagafirði.
15. Már Olafsson sjómaður,
Hólmavík. 16. Guðmundur
Ingi Guðbrandsson líffræð-
ingur, Brúarlandi á Mýmm,
Borgarbyggð. 17. Guðrún
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
geislafræðingur, Sauðárkróki.
18. Gísli Skarphéðinsson skip-
stjóri, Isafirði. 19. Halldór
Brynjólfsson bifreiðastjóri,
Borgamesi. 20. Ragnar Am-
alds rithöfúndur og fyrrveran-
di alþingismaður, Reykjavík.
Sveinn Arnar Sæmundsson og Sigríður Elliöadóttir að
loknum miðnæturtónleikunum í Hóladómkirkju.
Spilað í aðventu-
kyrrðinni á Hólnm
Sveinn Arnar Sæmundsson
organisti ffá Syðstu-Gmnd í
Skagafirði, nú starfandi á
Akranesi hefúr undanfarin ár
gert það að reglu að spila í
Hóladómirkju fyrir jólin og
þykir ákaflega notalegt að leika
í kirkjunni, enda pípuorgelið
þar ffábært hljóðfæri.
Sveinn Amar lofaði nokkr-
um hóp fólks að njóta tónlis-
tarinnar með sér í Hóla- dóm-
kirkju sl. fostudagskvöld og
með honum söng einnig unnus-
ta hans Sigríður Elliðadóttir
messósópran. Þau fluttu ljúfa
tóna eftir Bach, Mendelsohn,
Johann Krieger, Ragnar
Bjömsson og fleiri. í lokin vom
svo sungnir nokkrir jólasálmar.
Þetta var mjög notaleg stund í
kirkjunni þó svo að gleymst
hafði að kynda hana upp fýrir
þessa stund.
Jólatré úr
Vatnsdalnum
Jólatré ffá vinabæ Blöndu-
óss í Noregi, Moss, stóðst
ekki hvassviðrið sl. fimmtu-
dag og brotnaði. Þar með var
tréð orðið ónothæft og var
gripið til þess ráðs að fella sjö
metra hátt sitkagrenitré
framan úr Vatnsdal, sem
Ágúst bóndi á Hofi plantaði á
stórafmæli sínu 1952. Þetta
gamla tré prýðir nú Blöndu-
ósbæ við kirkjuna eins og
jólatré bæjarins gera jafnan.
Það gekk hinsvegar betur
með jólatré Sauðkrækinga ffá
vinabænum Kongsbergi. Eins
og jafnan senda þeir Kóng-
bergingar glæsileg tré og ljós
þess vom tendruð með við-
höfri að viðstöddu fjölmenni á
laugardaginn. Jólasveinar úr
Tindastóli og tónlistar- og
söngfólk setti svip sinn á sam-
komuna.
Hjörleifur á disk
„Þegar byljir bresta á“
heitir nýútkominn diskur þar
sem bóndinn og heimspek-
ingurinn Hjörleifúr Kristins-
son á Gilsbakka lætur „gam-
minn geysa“. Diskamir tveir
með Hjörleifi eru samtals
rúmar tvær klukkustundir og
kosta 1.800 krónur. Þeir sem
viija eignast þá geta lagt inn
pöntun hjá Rafsjá á Sauð-
árkróki, en þessa verður nánar
getið í næsta Feyki, jólablaði.
Fjölmenni var viðstatt velheppnað og þægilegt aðventukvöld í Sauðárkrókskirkju sl.
sunnudagskvöld, þar sem börn settu mikinn svip á og séra Hjálmar Jónsson flutti
hugavekju. Myndin er frá söng Kirkjukórs Sauðárkróks og barnakórsins undir lok
samkomunnar.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vcstra
Kentur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Farsími 854 6207. Netfang: feykir @ krokur. is.
Ritstjóri: Þórhallia Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F.
Fljartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur
Hemiannsson. Sigurður Ágústsson og Stefán Arnason.
Áskriflarverð 190 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.