Feykir - 11.12.2002, Side 3
43/2002 FEYKIR 3
Glæsileg reiðaðstaða
í notkun á Hólum
Það var stór dagur á Hólum
sl. laugardag þegar tekin var í
notkun ný aðstaða til
reiðkennslu á staðnum, en fyrir
var reiðskemma sem annaði
engan veginn þörfum Hóla-
skóla, þar sem að nemendafjöldi
á hrossaræktarbraut hefur
þrefaldast ffá árinu 1995. Nýja
reiðhöllin er 1500 fermetrar,
með 1200 fermetra reiðvelli og
áhorfendastúku fyrir liðlega 200
manns. Það var hlutafélagið Þrá:
Kaupfélag Skagfirðinga og
Friðrik Jónsson sf. sem íjár-
magnaði bygginguna með
leigusamningi við Hólaskóla.
Byggingarmeistari Ólafur
Friðriksson.
Það var Ragnheiður Jóns-
dóttir sóknarprestur á Hofsósi
sem blessaði nýja húsið. Skúli
Skúlason skólameistari sagði í
upphafsávarpi sínu að þessa
aðstöðu hefði skort lengi, en
framkvæmdin væri eðlilegur
þáttur í uppbyggingu starfsem-
innar á Hólum og þeirri þróun
að menntastofnanir í landinu
efldust.
Siguijón Rafnsson stjórnar-
formaður Þráar, sagði það
gaman að taka þátt í þessum
eldimóði Skagfírðinga að byggja
upp, enda dygði ekki annað en
hlúð væri að Hólaskóla sem ætti
í vaxandi samkeppni við aðrar
menntastofnir í landinu.
Guðni Agústsson landbún-
aðarráðherra sagði að Hólaskóli
væri einn af máttarstólpum
landbúnaðarins og byggðarinnar
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ásamt Elínu R. Líndal, Vilhjálnti Egilssyni og Þórólfi
Gíslassyni, þau hlýða á Skúla Skúlason skólameistara flytja lokaávarp við athöfnina.
í landinu. „Við sjáum sóknar-
leiðimar í gegnum rannsókn-
imar og menntunina“, sagði
Guðni.
Vilhjálmur Egilsson alþing-
ismaður sagði að menn yrðu að
gera sér grein fyrir því að
Hólaskóli væri þjónustustofnun
við atvinnuvegina á landsbyggð-
inni, í þeim greinum sem yrðu
væntanlega vaxtabroddar land-
búnaðarins í ffamtíðinni, hesta-
mennskunni, fiskeldinu og
ferðaþjónustunni. Á svipuðum
nótum talaði Elín R. Líndal
formaður skólanefhdar Hóla-
skóla.
Þórólfúr Gíslason kaupfél-
agsstjóri átti eins og Vilhjálmur
sæti í nefndinni er fjallaði um
framtíð Hólaskóla. Þórólfúr
sagði að þar ætluðu menn svo
sannarlega ekki að láta við það
sitja að skila myndarlegri skýrslu
um málið heldur fylgja því effir
til enda og viðburðurinn í dag
væri liður i því.
Að lokum var stutt athöfn
þar sem lýst var tillögum fram-
tíðamefndar Hólaskóla um
reglugerð fyrir skólann. Vil-
hjálmur Egilsson alþingismaður
og Þórólfúr Gíslason kaup-
félagsstjóri höfðu orð fyrir
nefndinni. Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra sagðist
ætla að beita sér fyrir að
Hólaskóla yrði gert kleift að
starfa sem háskólastofnun og
útskrifa nemendur með
háskólagráður sem viður-
kenndar væm af háskólum sem
veita sambærilega menntun. Til
að þetta gæti gengið ætlaði hann
að ganga ffá samþykkt reglu-
gerðarinnar innan tíðar. Hér á
Hólum væri allt sem til þyrfti,
öflugt rannsóknarstarf og
metnaðarfúllt skólastarf.
Efnt var til glæsilegrar reið-
sýningar í lok vígsluathafúar og
síðan öllum gestum boðið til
kafFidrykkju heima á Hólum, en
þeir vom fjölmargir, fylltu
áhorfendastúku nýju reiðhall-
arinnar.
Fjölmenni var viðstatt vígslu
reiðhallarinnar á Hólum.
Myndir Örn.
Aíinæli í
Idrkjiuini
Með dagskrá í Sauðárkróks-
kirkju nk. sunnudag verður
haldið upp á 110 ára affnæli
kirkjunnar. Dagskráin hefst kl.
20, en tónlistarflutningur byij-
ar hálflíma fyrr.
í prédikun mun séra Fjölnir
Ásbjörnsson víkja að sögu
kirkjunnar, en tónlistin verður
áberandi í dagskánni. Með
kirkjukór Sauðárkróks syngja
einsöngvaramir Svana Berg-
lind Karlsdóttir og Ásgeir
Eíriksdóttir, bæði hvort í sínu
lagi og dúettsöng. Þá leikur
Ásdís Runólfsdóttir á víólu.
Fólk er hvatt til þess að eiga
notalega stund í kirkjunni á
sunnudagskvöldið og gera
hana að lið í jólaundirbún-
ingnum.
og KS-bókin