Feykir - 11.12.2002, Page 8
Sterkur auglýsingamiðill
11. desember 2002, 43. tölublað, 22. árgangur.
Fréttablaðið á Norðurlandi vestra
Birgir Friðriksson veiðimaður með minkinn sem hann
skaut undir bíl ritstjóra Feykis.
Minkur skotinn við
heimahús á Krók
Þrátt fyrir góða viðleitni
loðdýrabænda að halda dýrurn
sinum í búrum, er alltaf eitt-
hvað um að þau sleppi út og i
veðurblíðunni núna að undan-
fömum hefiur því verið á ferðinni
fleiri búpeningur en klauf- og
hófdýr. Króksarinn Birgir
Friðriksson einn helsti veiði-
maður héraðsins skaut mink
heim við hús á bænum í síðustu
viku, eftir að hafa átt í elt-
ingaleik við hann um hverfið.
Um búrlæðu er að ræða.
Birgir býr við Ægisstíginn,
þar sem ritstjóm Feykis er til
húsa. Hann varð minksins fyrst
var neðarlega við götuna, þar
sem hann leitaði inn í garð
dagmömmunnar Aðalbjargar
Sigfúsdóttur frá Gunnarsstöð-
um í Þistilsfirði. Minksi þaut
síðan yfir götuna, að Feykis-
húsinu og leitaði undir bíl rit-
stjórans sem stóð á plani við
húsið. Þar beindi Birgir hólkn-
urn að dýrinu sem lá í valnum.
Þetta gerðist á sama tíma og
síðasta blað Feykis var að koma
úr prentvélunum, en þess má
geta að bifreið Feykisritstjóra,
Toyota Corolla árgerð ‘94 sem
reynst hefúr ákaflega vel, hefúr
verið vettvangur nokkurra við-
burða í haust, en eins og les-
endur Feykis veittu væntanlega
eftirtekt, flaug smyrill á bílinn
við Mósjóinn í Fljótunum í
haust og hlaut af því bana.
© SheH.A3*
IDEQy^Hg.
s: 453 6666
s: 453 6622
Tveir starfsmanna Hrings vilja
kaupa og halda starfinu áfram
Varla verður annað sagt en
atvinnuþróunarmál í Skagafirði
hafi tekið jákvæða stefnu á
síðustu dögum, en fregnast
hefúr af góðum möguleika á því
að halda starfsemi Hrings
áfram. Forsendan fyrir því er sú
að tveir af starfsmönnum
félagsins, þeir Lárus Dagur
Pálsson og Kristbjöm
Bjamason hafa sent erindi til
byggðaráðs Skagafjarða þar
sem þeir félagar óska eftir
kaupum í meirihlutaeign Sveit-
arfélagsins Skagafjarðar í
Hring. Þetta erindi verður tekið
fyrir á fúndi byggðaráðs i dag,
miðvikudag.
Aðspurðir vildu þeir Láms
Dagur og Kristbjöm lítið tjá sig
um málið, en ljóst er að með
þessu yrði vilja hluthafa Hrings
fúllnægt, hægt yrði að halda
starfsemi félagsins áffarn og
vinna að nýjum verkefnum, en
sýnt er að hlutverk Hrings
myndi að talsverðu leyti
breytast úr atvinnuþróunarfélagi
í þjónustufyritæki.
Meirihluti sveitarstjómar
mun hafa samþykkt í gærkveldi
að ganga til samnnga, enda það
augljóslega styrkur fyrir sveitar-
félagið að vinna við atvinnu-
þróun verði á sem breiðustum
gmndvelli.
Heimilisfólk á Stóru Giljá við útnefningu „trés ársins“. Frá vinstri talið: Sigurður Erlends-
son með Sverrir Helga Sigurðsson á handleggnum, Þóra Sverrisdóttir, Jóhannes Sigurðsson,
Sigurveig Sigurðardóttir, Helga Búadóttir og Erlendur G. Eysteinsson.
„Tré ársins“ á Stóru Giljá
Það mun vera í fjórða sinn
sem Skógræktarfélag Islands
tilnefriir „Tré ársins“ nú í ár. Þau
tré sem áður hafa hlotið þessa
nafnbót, em: Almur við
Túngötu 6 í Reykjavík sem var
útnefndt „Tré ársins 1999“,
hlynur sem stendur við húsið
Sólheima á Bíldudal við
Amarfjörð var „Tré ársins
2000“, árið 2001 hlaut
nafhbótina „Tré ársins“ stranda-
viðirinn við bæinn Tröllatungu á
Ströndum og nú árið 2002 hlutu
þessa nafnbót, tvö sitkagrenitré
sem standa við bæinn Stóru
Giljá í Austur Húnavatnssýslu.
I rilkynningu vegna útnefn-
ingarinnar segir að bærinn Stóra
Giljá standi við þjóðveg 1 og
blasa tréin við sjónum vegfar-
enda. I tilefhi þess að þessi tvö
sitkagreni vom valin „Tré ársins
2002“ var eigendunum afhent
viðurkenningarskjal þann 7.
desember s.l. úr hendi
Magnúsar Jóhannessonar
formanns Skógræktarfélags
íslands.
Þessi tré vom gróðursett
1964 og em í dag 9,1 og 9,7
metrar. Þeim sem hafa áhuga á
að fræðast nánar um sögu
þessara tijáa er bent á grein eftir
Pál Ingþór Kristinsson formann
Skógræktarfélags A-Húnvetn-
inga í nýjasta tölublaði Skóg-
ræktarritsins sem gefið er út af
Skógræktarfélagi Islands.
...bDar, tiyggingar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
túnarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYNJARS
SUÐUBOÖTU 1 SÍMI 453 8950
Flísar, flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391