Feykir - 05.03.2003, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Bygglngafiðnaðufinn I Skagaflrði
Horfur á að staðan
batni með vorinu
Horíur eru á því að heldur sé að
rætast úr verkefnastöðu hjá byggingar-
iðnaðarmönnum í Skagafirði, þar sem
að ljóst er að byijað verður í þremur
stærri verkum í Skagafirði i á næst-
unni. Stjóm Húsnæðissamvinnufélags
Skagafjarðar ákvað á dögunum að ráð-
ast í byggingu fjögurra hæða íbúða-
blokkar við Ártorg með vorinu, og í
síðustu viku var boðin út viðbygging
við Heilbrigðisstofnunina á Sauðár-
króki. Reyndar er ekkert gefið að
heimaaðilar nái hagstæðasta tilboðinu
í það verk, ffekar en í byggingu nem-
endagarða sem ffamundan era á Hól-
um.
Jóns Karlssonar stjómarformanns fé-
lagsins hefur verið ákveðið að byggja
16 ibúða blokk, enda era þegar komn-
ar um og yfir tíu umsóknir um íbúðim-
ar. Byggingin er að 90% fjánnögnuð
með lánum frá íbúðalánasjóði, en
ffamundan er að afla tilboða í fjár-
mögnun á byggingartíma.
1 viðbyggingu Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Sauðárkróki sem boðin var út
í síðustu viku, er nýtt aðalanddyri og
athafnarými lyrir sjúkrabíla. Einnig
verða gerðar tilheyrandi breytingar á
jarðhæð heilsugæsluhluta stofnunar-
innar, sem felast í að innrétta þar slysa-
stofu og afgreiðslu.
Það var mikill kraftur í nemendum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í
Söngkeppni skólans sl. flmmtudagskvöld. Það er Líney Eggertsdóttir sem
tekur lagið.
Verkefnastaðan hefúr verið með lé-
legasta móti hjá iðnaðarmönnum á
Sauðákróki í vetur og til að mynda
þurfti Trésmiðjan Borg að segja upp
átta starfsmönnum um áramót og tóku
uppsagnimar að hluta til gildi nú um
mánaðamótin. Allmargir smiðir og
nokkrir múrarar hafa þurff að sækja
verkefni á höfúðborgarsvæðið og því
verið burtu ffá heimilum sínum svo
mánuðum skiptir. Segja má að þetta sé
ný staða hjá iðnaðarmönnum á Sauð-
árkróki, þó svo að smiðir frá Trésmiðj-
unni Borg hafi oft á tíðum unnið við
uppsetningu á innréttingum syðra, en
innréttingar frá Borginni hafa verið
eflirsóttar og fýrirtækið skapað sér all-
mikinn markað á höfúðborgarsvæðinu
og þannig náð að auka verkefni íyrir
sína menn á verkstæðinu á Sauðár-
króki.
Það era byggingarfýrirtæki á Sauð-
árkróki sem væntanlega standa að
byggingu íbúðablokkarinnar fýrir
Húsnæðissamvinnufélag Skagafjarðar
við Ártorg, þau sömu og byggðu í
sameiningu orlofshúsin. Þetta eru
íbúðir fýrir eldri borgara og að sögn
Sölu íbúða sveitarfélagsins
Skagafjarðar dreift yfir árið
„Ein íbúð er þegar seld, ein verður
auglýst nú á næstu dögum, áform-
að er að selja tvær íbúðir í vor, aðr-
ar tvær í haust og síðan tvær næsta
vetur, allt eftir því hvenær tíma-
bundnir leigusamningar um þessar
íbúðir renna út”, segir Ársæll Guð-
mundsson sveitarstjóri Skagafjarð-
ar í grein í Feyki í dag um sölu
eigna. Þessar íbúðarsölur sveitarfé-
lagsins ættu því ekki að yfirfylla
húsnæðismarkaðinn og skapa
verðfall eigna.
í greininni bendir Ársæll á að á
fundi byggðarráðs Skagafjarðar þann
15. janúar s.l. hafi sveitarstjóri lagt
ffam áætlun yfir þær félagslegu íbúð-
ir sem stefnan er að selja árin 2003-
2005 og byggðarráð samþykkti áætl-
unina. Leigjendur i þeim íbúðum
sem samkvæmt áætluninni á að selja
á árinu 2003 hafí allir fengið bréf þar
um.
Félagsíbúðir Skagafjarðar eiga nú
96 íbúðir sem að langstærstum hluta
era félagslegar eignaríbúðir sem
sveitarfélaginu hefúr lögum sam-
kvæmt borið skylda til að innleysa en
ekki tókst að endurselja meðan fé-
lagslega íbúðakerfið var við lýði. Á
þeirn rúmum fjóram áram sem liðin
era ffá gildistöku nýju laganna, sem
heimila sölu íbúðanna á frjálsum
markaði, hefúr sv.félagið Skagafjörð-
ur selt sjö íbúðir. Meginástæða þess
að ekki hafa verið seldar fleiri íbúðir
á þessu tímabili, segir Ársæll þá að
skortur hafi verið á leiguhúsnæði.
„Leiguverð hér á svæðinu er þó það
lágt að leiga íbúðanna stendur ekki
nálægt því undir kostnaði og era
íbúðimar því veralegur baggi á sveit-
arfélaginu þrátt fýrir að þær séu allar í
leigu. Nú hefúr verið tekin ákvörðun
um það af sveitarstjóm Skagafjarðar
að stefna að sölu um sjö íbúða árlega
næstu árin. Að það takist er þó háð
þátttöku Varasjóðs húsnæðismála í
niðurfærslu ibúðaverðsins því ljóst er
að sveitarfélagið hefúr ekki bolmagn
til að bera eitt það tap sem hlýst af
sölu íbúðanna, en það er á bilinu 1 - 4
milljónir við sölu hverrar íbúðar”,
segir Ársæll Guðmundsson.
—ckiDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
. ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
. FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
’J* SfMff bílaverkstæði
(S> ÆTÆWM. sími: 95-35141 ^
Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
^Bflaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
& Réttingar # Sprautun