Feykir - 05.03.2003, Síða 2
2 FEYKIR 8/2003
Eignasjóður Skaga-
fjarðar - Sala íbúða
Vegna fréttar í Rikisútvarpinu á
Akureyri um sölu íbúða í eigu sveitar-
félagsins og mörgum fyrirspumum
sem mér hafa borist í kjölfarið vil ég
koma á framfæri eftirfarandi upplýs-
ingum. VonastégtilaðdraugurGróu
á Leiti verði þar með kveðinn niður í
þessu máli.
Samkvæmt tillögu reikningsskila-
og upplýsinganefndar sveitarfélaga
heíur félagsmálaráðherra sett reglur
um flokkun og greiningu í bókhaldi
og reikningsskilum sveitarfélaga.
Hér er um að ræða nánari reglur
um flokkun fjárhagslegra upplýsinga
hjá sveitarfélögum sem settar em á
grundvelli reglugerðar um bókhald og
ársreikninga sveitarfélaga nr.
944/2000. í samræmi við ákvæði
reglugerðarinnar er gert ráð fyrir að
sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og
reikningsskilum í samræmi við reglur
þessar frá og með rekstrarárinu 2002
og við gerð ijárhagsáætlunar fyrir
sömu ár.
í samræmi við ofanritað og í
tengslum við nýtt skipurit Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar hefúr Eignasjóð-
ur Skagafjarðar formlega verið stofn-
aður.
Hlutverk eignasjóðs er:
* Að hafa með höndum umsýslu
fastafjármuna sem nýttir em fyrst og
ffemst af aðalsjóði sveitarfélagsins.
* Að hafa með höndum umsýslu
annarra fasteigna sveitarfélagsins,
umhirðu og útleigu þeirra.
* Að sjá um kaup og sölu fasteigna
fyrir hönd sveitarfélagsins.
* Að hafa með höndum umsýslu
Félagsíbúða Skagafjarðar.
* Annað en umsýsla fasteigna sem
heyra skal undir eignasjóð er m.a.:
* Lóðir og lendur: * Gatnakerfi,
* Lausafjámiunir.
Byggðarráð Skagafjarðar fer með
málefhi eignasjóðs.
Félagsíbúðir Skagafjarðar eiga nú
96 íbúðir sem að langstærstum hluta
em félagslegar eignaríbúðir sem sveit-
arfélaginu hefur lögum samkvæmt
borið skylda til að innleysa en ekki
tókst að selja aftur meðan félagslega
íbúðakerfið var við lýði. Með lögum
nr. 44/1998 féll úr gildi það form sem
verið hafði í gildi varðandi úthlutanir
félagslegra íbúða. Var sveitarfélögum
þá heimilað að selja þær íbúðir sem
innleystar höfðu verið, á frjálsum
markaði, eftir vissum reglum.
Á þeim rúmum fjórum ámm sem
liðin em frá gildistöku nýju laganna
hefúr sv.félagið Skagafjörður selt sjö
íbúðir. Meginástæða þess að ekki
hafa verið seldar fleiri íbúðir á þessu
tímabili er sá skortur sem hér hefúr
verið á leiguhúsnæði. Leiguverð hér á
svæðinu er þó það lágt að leiga íbúð-
anna stendur ekki nálægt því undir
kostnaði við þær og em þær verulegur
baggi á sveitarfélaginu þrátt fyrir að
þær séu allar í leigu og sv.félagið
Skagafjörður þurfi ekki að standa
ffamrni fyrir þeim stórkostlega vanda
sem sum önnur sveitarfélög á lands-
byggðinni eiga við að glíma, að vera
með fjölda auðra íbúða og ekkert
nema kostnað þeirra vegna.
Nú hefúr verið tekin ákvörðun um
það af sveitarstjóm Skagafjarðar að
stefna að sölu ca. sjö íbúða árlega
næstu árin. Að það takist er þó háð
þátttöku Varasjóðs húsnæðismála í
niðurfærslu ibúðaverðsins því ljóst er
að sveitarfélagið hefúr ekki bolmagn
til að bera eitt það tap sem hlýst af sölu
íbúðanna, en það er á bilinu 1 - 4 millj-
ónir við sölu hverrar íbúðar.
Að undanfömu hafa verið á kreiki
ýmsar sögusagnir um hvemig sveitar-
félagið hugsi sér að standa að sölu
þessara íbúða út úr félagslega íbúða-
kerfinu. Ómögulegt er að gera sér í
hugarlund hvemig þær sögusagnir em
til orðnar en á fúndi byggðarráðs
SkagaQarðar þann 15.janúar s.l. lagði
sveitarstjóri fram áætlun yfir þær fé-
lagslegu íbúðir sem stefnan er að selja
árin 2003-2005 og byggðarráð sam-
þykkti áætlunina. Leigjendur í þeim
íbúðum sem samkvæmt áætluninni á
að selja á árinu 2003 fengu allir bréf
þar um.
Ein íbúð er þegar seld, ein verður
auglýst nú á næstu dögum, áformað er
að selja tvær íbúðir í vor, aðrar tvær í
haust og síðan tvær næsta vetur, allt
eftir því hvenær tímabundnir leigu-
samningar um þessar íbúðir renna út.
Allar verða þessar íbúðir auglýstar til
sölu bæði í Sjónhomi og Feyki þannig
að það ætti ekki að fara ffarn hjá nein-
um.
Ársæll Guðmundsson,
sveitarstjóri.
Samstaða fagnar
skattalækkun
Félagsfúndur hjá Stéttarfélaginu Samstöðu, sem
haldinn var á Hvammstanga í síðustu viku, fagnar hug-
myndum stjómmálamanna um lækkun skatta á einstak-
linga.
Félagið vill þó benda á að lækkun skattprósentunnar
vegur þyngra fyrir þá hærra launuðu en almennt launa-
fólk. Hækkun persónuafsláttar myndi tvímælalaust
koma láglaunafólki betur til góða og vega mun þyngra í
þeirra buddu, en lækkun skattprósentunnar.”
Fundarmenn töldu að hækkun persónuafsláttar væri
einhver besta kjarabót sem láglaunafólk þessa lands
fengi ásamt afhámi eða lækkun viðmiða tekjutenginga
sem em mjög íþyngjandi fyrir m.a. ungt fjölskyldufólk,
aldraða og öryrkja.
Gestabók á
Molduxann
Sú var tíðin, og kannski er það þannig ennþá, að
þeir sem gengu á Tindastól gátu ritað þar nöfn sín í
gestabók sem geymd var í vörðu efst á fjallinu. Ein-
hver brögð mun hafa verið af því að gestabókin á
Tindastólnum fengi ekki að vera í friði og þannig
urðu afdrif gestabókar sem var uppi á Molduxa.
Jón Helgason jámsmiður á Sauðárkróki hefúr nú á
prjónum að endumýja þá gestabók. Jón lagði nýlega
fram erindi í byggðaráði Skagaíjarðar þar sem hann
óskaði eftir að fá að koma fyrir skríni úr ryðfríu stáli
og gestabók á toppi Molduxa, sveitarsjóði að kostnað-
arlausu. Byggðaráð samþykkti erindið.
Gamanleikur
hjá LS í
Sæluvikunni
Leikfélag Sauðárkróks er i startholun-
rnn með „Sæluvikusfykkið”. Verið er að
skoða handrit að nýju leikriti eítir Hávar
Siguijónsson, sem er „kolsvört komedía”
að sögn Sigurðar Halldórssonar eins
stjómarmanns í LS, en altént er ljóst að
það verður gamanleikur sem leikhúsgest-
um verður boðið upp á að þessu sinni í
Sæluvikunni.
Æfingar hefjast um aðra helgi og hefúr
Þröstur Guðbjartsson verið ráðinn til að
leikstýra, en hann setti „Bláa hnöttinn” á
fjalimar með félögum í Leikfélagi Sauð-
árkróks á liðnu hausti og líkaði þeim mjög
vel samstarfið við Þröst.
Sigurður Halldórsson sagði í samtali
við Feyki að ágætlega liti út með mann-
skap, en vitaskuld væri nýtt blóð alltaf vel
þegið. Mikið af ungum leikumm hefúr
komið til liðs við LS á síðustu misserum,
en hinsvegar hefúr reynst erfiðara að fá
reyndari leikara félagsins til að stíga á
svið. Nokkur kynslóðaskipti hafa átt sér
stað innan leikfélagsins á síðustu árum.
Vífið í lúkunum
á Hvammstanga
Hjá Leikflokknum á Hvammstanga
em að hefjast æfingar á hinum þekkta
gamanleik „Með vífið í lúkunum”. Það er
Ingrid Jónsdóttir leikstjóri úr Reykjavík
sem leikstýrir.
Að sögn Jónínu Margrétar Amórsdótt-
ur formanns leikklúbbsins verður byijað
með leiklistamámskeiði í þessari viku, en
um næstu helgi hefjast síðan æfingar á
gamanleiknum. Sjö leikendur em í sfykk-
inu og er búið að manna það að mestu.
Stefnt er að frumsýningu miðvikudaginn
16. apríl.
Leikflokkurinn á Hvammstanga hefúr
um árabil sett upp sfykki annað hvert ár.
Að sögn Jónínu Margrétar hefúr það
komið vel út, bæði fjárhagslega og þá er
einnig auðvelda að manna sfykkin þegar
sýnt er annað hvert ár. Seinast setti Leik-
flokkurinn upp íslenskt leikrit, „Góðverk-
in kalla”, og fékk það ágæta aðsókn.
Auglýsing í
Feyki ber
árangur
L ói táð fréttablað á S'orðurla ndi v estra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Áskriflarverð 210 krónur hvert tölublað með Póstfang: Box4,550 Sauðárkróki. Símar:453 vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & @ krokur. is. og feykir@simnet.is Svart hf.