Feykir - 05.03.2003, Síða 7
8/2003 FEYKIR 7
Hver er
maðurinn?
Að venju urðu góð við-
brögð við síðasta mynda-
þætti og þekktust tvær af
fjórum myndum. Á mynd nr.
410 þekktist Þormóður Guð-
laugsson sem um tíma bjó í
Málmey en var síðast bif-
reiðarstjóri í Reykjavík og á
mynd nr. 412 er María Guð-
mundsdóttir á Ánastöðum á
Vatnsnesi. Þeim sem höfðu
samband vegna myndanna
em færðar bestu þakkir.
Nú em birtar fjórar mynd-
ir úr búi Jóns Normanns Jón-
assonar á Selnesi á Skaga.
Þau sem þekkja myndimar
em beðin að hafa samband
við Héraðsskjalasafn Skag-
firðinga í síma 453 6640.
Mynd nr. 414.
Mynd nr. 415.
Mynd nr. 416.
Mynd nr. 417.
Frj álsíþróttamenn að gera
það gott á erlendri grundu
Frjálsíþróttafólk í UMSS
hefur verið að gera góða hluti
að undanfomu en fjöldi skag-
firskra íþróttakappa tóku þátt í
danska meistaramótinu í fijáls-
um íþróttum sem fór reyndar
fram í Malmö í Svíþjóð um
næstsíðustu helgi. Töluvert var
um að íþróttamennimir bættu
fyrri árangur sinn.
Amdís María Einarsdóttir
hljóp 800 m og var í eina riðl-
inum í kvennaflokkinum. Am-
dís hljóp mjög jafnt hlaup og
var lokatíminn 2:19.41. Þetta
var persónulegt met hjá henni
innanhús en utanhúss tími
hennar er 2:16.76. Þá hljóp
Amdís Maria 400 m á 60,06
sekúndum og varð í 9. sæti og
bætti þar með bæði íslandsmet
stúlkna (17-18 ára) og ung-
kvenna (19-20 ára) í 400 metra
hlaupi innanhúss.
Sunna Gestsdóttir hljóp
gríðarlega vel í 200 m og sigr-
aði í undanriðlunum á tíman-
um 24.42 sem var bæting á
innanhústimanum hennar sem
var 24.50 s og í úrslitahlaupinu
sigraði hún svo glæsilega þeg-
ar hún hljóp á 24.30 sem var
önnur bætingin hennar sama
daginn og einnig glæsilegt ís-
landsmet en gamla íslandsmet-
ið var i eigu Silju Úlfarsdóttir
24.32 sek.
Sveinn Margeirsson hljóp
3000 metra og varð þriðji í
hlaupinu á tímanum 8:15.18,
sem er bæting á innanhústíma
hans um 20 sekúndur og einnig
4 sekúndna bæting á utanliús-
tímanum. Þessi tími er um 3,5
s frá íslandsmeti Jón Diðriks-
sonar.
Ragnar Frosti Frostason
hljóp fyrst 200 m og bætti sig
um 5/100 s þegar hann hljójD á
23.58 sem er l/100s frá ís-
landsmetinu í flokknum, 21 -
22 ára. Einnig hljóp Ragnar
800 m og var í fjórða sæti þeg-
ar hann stórbætti innanhústím-
ann sinn og hljóp á 1:54.07 en
hann átti innanhúss 1:58.28 og
einnig var þetta bæting á utan-
hústímanum sem var 1:54.14.
Þá var þetta bæting á 20 ára
gömlu Islandsmeti í flokki 21 -
22 ára sem Biynjúlfur Hilm-
arsson átti (1:57.4). Daginn eft-
ir varð Ragnar Frosti í 5. sæti í
400 m og hljóp hann á 50,60
sekúndum og bætti sinn besta
árangur um rúmlega 3 sek-
úndubrot. Stefán Már Ágústs-
son hljóp einnig 800 m og
bætti sinn árangur innanhús
um 25/100 þegar hann endaði í
6. sæti á tímanum 1:56.25.
Smáauglýsmgar
Ýmislegt!
Húsbíll til sölu. Lítill Fiat
Dueate vel innréttaður með
öllu, ekinn 140.000. Ásett verð
1450.000. Upplýsingar í síma
860 0041 og 453 5187.
Til sölu er Honda Mt 50cc.
Hjólið lítur vel út og er í fínu
lagi. Áhugasamir hafa sam-
band við Ragnar í síma 867
9649 eða 453-8134. Tilboð
óskast.
Spilavist!
Spilakvöld í Höfðaborg á
Hofsósi fimmtudaginn 6. mars
og fimmtudaginn 13. mars kl.
21,00. Verðlaun og kaffiveit-
ingar. Mætum eldhress að
vanda. Allir velkomnir!
Félag eldri borgara Hofsósi.
Húsnæði!
Til sölu fimm herbergja 133
fm. íbúð á effi hæð Skólasatíg
1 Sauðárkróki. Upplýsingará
kvöldin í síma 453 6394.
Óska eftir litlu húsi til leigu
á Sauðárkróki eða í næsta
nágrenni frá 1. apríl 2003.
Upplýsingar í síma 849 6700.
Herbergi til leigu niðri í bæ.
Upplýsingar í síma 453 5774
og 895 5774.
Til leigu nokkrir básar í
hesthúsi í Flæðigerði á
Sauðárkróki. Upplýsingar í
síma 453 5558.
Hvellur!
Nú kemur Hvellur
Dansleikur verður haldinn í félagsheimilinu
Melsgili fosstudagskvöldið 14. mars kl. 23 -3.
Hljómsveitin Afabandið frá Akureyri leikur
dansmúsík fyrir unga sem aldna.
Fjölmennum, skemmtum okkur og eflum
félagsskapinn.
Nefndin.
Munið skrifstofu Krabbameinsfélagsins Aðalgötu lOb.
Opið þriðjudaga frá kl 11-13 og fimmtudaga frá kl
17-19. Sími 453 6030 og 863 6039.
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eftir gíróseðlunum
fyrir áskriftargjöldunum.
Skilvísi ykkar er grundvöllurinn
fyrir útgáfu blaðsins.
fí
Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður
Borgarafundir
Boðað er til borgarafunda sem hér segir:
Hofsós - Höfðaborg, mánudaginn 10. mars kl 21:00
Sauðárkrókur - Bóknámshúsið, þriðjudaginn 11. mars kl. 21:00
Varmahlíð - Hótel Varmahlíð, þriðjudaginn 18. mars kl. 21:00
Kynning á málefnum sveitarfélagsins.
Fyrirspurnir og umræður.
Sveitarstjórnarfulltrúar verða á fundunum og svara fyrirspurnum.
Sveitarstjórn Skagafjarðar.
íbúasamtökin í Varmahlíð.
íbúasamtökin út að austan.