Feykir


Feykir - 01.12.2004, Qupperneq 2

Feykir - 01.12.2004, Qupperneq 2
2 Feykir 42/2004 Fréttatilkynning__________________ Frá Sparisiöði Skagafjaroar Á fundi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hólahrepps sem haldinn var 24. nóvember, var ákveðið að auka stofnfé sparisjóðsins úr 22 m.kr. í 88 m.kr. Vilji er hjá meirihluta stofn- fjáreigenda að efla og styrkja sparisjóðinn þannig að hann verði betur í stakk búinn til að þjónusta fyrirtæki og einstakl- inga í Skagafirði sem og víðar. Markmið sjóðsins er að verða leiðandi fjármálastofnun í Skagafirði. Á fúndinum var jafnframt ákveðið að sparisjóðurinn fengi nýtt nafn sem hefði víðari skírskotun en fyrra nafn. Helstu rök fyrir nafnabreytin- gunni eru þau að tengja sparisjóðinn betur Skagafirði í vitund fólks því ímynd Skagafjarðar er almennt jákvæð. Jafiiframt er mikilvægt að Skagfirðingar allir upplifi sparisjóðinn sem sinn eigin, sína eigin fjármálastofnun. Sparisjóðurinn heitir því framvegis Sparisjóður Skaga- fjarðar. Stofnfjáreigendur kusu sjóðnum nýja stjórn en í henni sitja Sigurjón R. Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri, Jón E. Friðriksson framkvæm- dastjóri, Sverrir Magnússon bóndi, Magnús D. Brandsson sparisjóðsstjóri og Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri. Virðingarfyllst, Vilhjálmur Baldursson sparísjóðsstjóri Sparisjóði Skagajjarðar Leiðari 86 ára lýðveldisafmæli Sumarið 1918 komu samninganefndir íslands og Danmerkur sér saman um lagafrumvarp sem byrjaði á þessa leið: „Danmörk og ísland eru frjáls og fullvalda ríki, í sam- bandi um einn og sama konung." Rílcisþing Dana og Alþingi íslendinga staðfestu frumvarpið og það var síðan samþykkt með þjóðaratkvæðagreiðslu. Sunnudaginn 1. desember 1918 var lýst yfir fullveldi íslands og fáninn dreginn að hún. Island varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918. Sjálfstæðisbarátta þjóðar er eilíft viðfangsefni. Við skulum minnast þess að ekki eru nema 86 ár síðan þjóðin tekk full- veldi eftir að hafa glatað því um árhundruð. Ráðamenn verða að standa vörð um sjálfstæðið og ekki láta glepjast af stundarhagsmunum eða persónulegum metnaði. Sporin hræða. Árni Gunnarsson Óliáð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Feykir Utgefandi: Feykirhf. Skrifstoía: Aðalgötu21, Sauðárkróki Blaðstjórn: Arni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson, Herdis Sæmundardóttir og Jón Hjartarson. RitstjóriSi ábyrgðamiaður. Árni Gunnarsson arnig@krokur.is Símar 455 7100 Blaðamenn: ÓliArnarBrynjarsson Pétur Ingi Björnsson Símar. 4535757 Netföng: feykirwkrokur. is Askriftarverð: 210 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. Póstfang: Box 4,550 Sauðárkrókur Setning og umbrot: Hinirsömusf. Prentun: \ Hvitt&Svartehf. Ullarþvottastöð ÍSTEX á Blönduósi Jóhann verksmiðjustjóri og Ragnheiður Ólafsdóttir í Finnstungu við færibandið sem flytur ullina að vél sem tætir hana i sundur áður en hún fer í þvott. mynd ÖP: Þvegið í 20 tíma á sólarhring Nú eru liðnar um sex vikur síðan ullarþvottastöð ÍSTEX á Blönduósi var gangsett, en eins og flestum mun kunnugt var talsverður aðdragandi að flutningi hennar þangað. Þvottastöðin er í norður- hluta húss sem heimamenn kalla Votmúla, en í sumar var byggt við húsið þannig að þvottastöðin hefur um 1400 fermetra gólffleti yfir að ráða. Tíðindamaður blaðsins heim- sótti þvottastöðina á dögunum og hitti Jóhann Tryggva Sigurðsson verksmiðjustjóra. „Við erum komin með þetta í það horf sem við viljum sjá. Við gangsettum 12. október og næstu tvær vikur fóru í að koma þess öllu heim og saman. Við erum búin að keyra þetta á tveimur tíu tíma vöktum á sólarhring virka daga í unt fimm vikur. það fara í gegn þrjú til þrjú og hálft tonn af þveginni ull á hverri vakt. Þetta er aðeins mismunandi eftir hvernig hráefnið er. það er heldur lengur verið að þvo vetrarull en haustull. Það eru komin í gegn á annað hundrað tonn af ull síðan við byrjuðum. Þetta eru lengri vaktir en tíðkuðust í Hveragerði en það gerum við til þess að vinna á þeim miklu birðum af ull sem söfiiuðust upp meðan engin þvottastöð var starfandi," sagði Jóhann. Allur tækjabúnaður í þvotta- stoðinni er sá sarni og notaður var í Hverafgerði. Starfsmenn á Blönduósi eru nú ellefu talsins, tveir komu með stöð- inni úr Hveragerði þótt ekki sé afráðið hvort þeir flytji norður en aðrir eru ffá Blönduósi og nágrenni. Jóhann segir að miklar birgðir séu til af ull. Mest er í geymslum í Hveragerði, Þórs- höfii og Egilsstöðum og auk þess hjá fjölda bænda víða um land. Hann segir að örugglega verði að keyra þvottastöðina á núverandi vaktafyrirkomulagi til vors meðan verið er að vinna á mestu birgðunum. En venjan hafi verið að hafa aðeins eina vakt í gangi yfir sumarmánuð- ina enda berist þá mun minna af ull til stöðvarinnar. ÖÞ: Hilmar Frímannsson ti/. frá Vélsmiðju Alla og Guðmann Valdimarsson frá Rafþjónustu Hp voru að sinna tækjabúnaði stöðvarínnar. mynd ÖÞ: 21. skáldsagan komin út Ný bók frá Birgittu á Löngumýri Ný skáldsaga er komin út eftir Birgittu Halldórs- dóttur á Syðri-Löngumýri í Húnavatnssýslu. Nýja bókin heitir Ókunna konan og er tuttugasta og fyrsta skáldsaga höfundar en auk þess hafa komið út eftir hana tvær samtaisbækur. Ókunna konan er eins og aðrar skáldsögur Birgittu spennusaga og gerist í Reykja- vík. Aðalsöguhetjan er kona sem starfar hjá rannsóknarlög- reglunni í Reykjavík. Hún og fleiri persónur í bókinni komu einnig við sögu í síðustu bók höfúndar Tafl fyrir fjóra sem kont út árið 2002 en þessi bók er þó ekki ffamhald af hinni heldur algerlega sjálfstæð saga. Ekki er vafi á að fjölmargir tryggir lesendur Birgittu fagna útkomu þessarar bókar. I fyrra kom engin bók út eftir höfúndinn, sem vakti nokkra athygli, því allt ffá árinu 1983 hafði komið út spennusaga eftir hana fyrir jólin og skipað henni meðal mest lesnu spennusagna höfúnda lands- ins. Birgitta sagði í samtali að þetta hlé á útgáfú hefði ekki verið fyrir að hún væri hætt að skrifa heldur hefði hún ákveðið að taka því rólega eitt ár. Því væri ekki að leina að mestur frítími hennar undanfarin ár hefði farið í að semja og skrifa. Hún væri hinsvegar alls ekki að hætta slíku, þó svo að ef til vill dragi eitthvað úr útgáfu á verkum hennar á næstunni. ÖÞ:

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.