Feykir - 01.12.2004, Side 4
4 Feykir 42/2004
Góður árangur í sauðfjárræktinni í Skagafirði
1000 fleiri gimbrar
skoðaðar en í fyrra
Margir góðir veturgamiir hrútar komu fram við skoðun í haust -Myndir: Eyþór Einarsson.
Yfir 5000 lömb á 90 bæjum voru skoðuð í sauðfjárskoðun í
Skagafirði í haust. Að sögn Eyþórs Einarssonar, sauðfjárrætkar-
ráðunauts hjá Leiðbeiningamiðstöðinni kom mikið fram af góðum
gripum í haust. Margir láta skoða stóran gimbrahóp og sameina þá
lífgimbravalið og afkvæmarannsókn á hrútum búsins.
Stefán Magnússon, bóndi á Þverá, heldur hér i hrútinn Gjafar, en sá er í
hópi hæst stiguðu hrúta Skagafjarðar.
Fullstigaðir voru 280
veturgamlir hrútar í haust.
Þetta er nálægt því að vera
helmingi fleiri veturgamlir
hrútar en skoðaðir voru á
síðasta ári. En í fyrra var stór
árgangur sæðingalamba og þvi
óvanalega mikið sett á af hrú-
tum. í haust var meðalhrú-
turinn 81 kg, 122 mm á legg og
hlaut 81,7 stig. í þessum flok-
ki eru það þrír hrútar sem eru
mjög áberandi sem feður hæst
stiguðu hrútanna og munu því
setja mark sitt á Skagfirskt fé,
meira en aðrir stöðvarhrútar.
Þetta eru þeir Hylur og Lóði frá
Hesti og Leki frá Sveinungsvík.
Besti mælikvarði á kynbóta-
gildi hrúta sem orðnir eru
veturgamlir eða eldri er af-
kvæmadómur þeirra. Þátttaka
í afkvæmarannsóknum var
geysilega mikil í ár og voru
margir af veturgömlu hrút-
unum að koma þar fram með
glæsilegar niðurstöður.
Sjá töflu 3
Óhætt er að segja að rækt-
unin þokast áfram í rétta átt.
Sífellt koma fram nýir einstakl-
ingar sem eru betri en áður
hefur þekkst, sameina góða
gerð og litla fitu. Lykilástæða
þess hverju miðar, er sá mikli
brennandi áhugi sem er víða
fyrir hendi og metnaður fyrir
að ná árangri í ræktun
sauðíjárins, þrátt fyrir að ekki
hafi enn náðst að bæta afkomu
greinarinnar sem skyldi.
I ár voru skoðaðar 4.610
gimbrar sem er 1.000 gimbr-
um fleiri heldur en var skoðað
á síðasta ári. Mikið kom fram
af glæsilegum gripum og
öflugum gimbrahópum.
Fjölgar þeim búum ár frá ári
sem eiga ffamúrskarandi lamba-
hópa. Þetta eru búin þar sem
fer saman markvisst ræktu-
narstarf og vel heppnað eldi á
féinu.
heildina voru gimbrarnar
hefur verið, þó ekki eins þung-
ar og á síðasta ári. Þær voru
svipaðar að gerð og eru
meðaltöl fyrir frampart og læri
þau sömu og í fyrra. Bak-
vöðvinn var þó nokkuð minni
að meðaltali og minna um
mjög þykka bakvöðva. Kom
þetta fram bæði hjá gimbrum,
lambhrútum og veturgömlum
hrútum. Leita má skýringa að
einhverju leyti í hinu óvanalega
þurra tíðarfari sem einkenndi
TAFLA 2
Hæst stiguðu lambhrútar Skagafjarðar 2004
Uppruni Faðir Kg Fótl. Vöðvi Fita Lag Stig
Syðra-Skörðugil Frosti frá Hesti 50 111 34 3 4 87
Hóll, Sæmundarhlíð Abel frá Ósabakka 52 110 32 3 5 86,5
Tunga Ljómi frá Brautart. 55 111 30 2 4 86,5
Syðra-Skörðugil Toppurfrá S-Skörðugili 50 111 30 2 4 86,5
Steinn Lækur frá Lækjahúsum 49 110 29 3 5 86,5
TAFLA 3
Hæst stiguðu veturgömlu lirútar Skagafjarðar 2004
svipaðar að vænleika og áður síðasta sumar. Nafn og uppruni Faðir Þungi Fótl. Vöðvi Fita Lag Stig
Lóði frá Keldudal Lóði frá Hesti 95 119 40 6 5 86,5
TAFLA 1 ■ Muggurfrá S-Skörðug. Moli frá Hjarðarfelli 90 119 38 5 4 86,5
Fjöldi Vöðvi Lag Fita Framp. Læri Ull Fróði frá S-Skörðugili Un3' Styrmir frá KplrlnHal Lóði frá Hesti Styrmir frá Tröðum 94 92 119 125 37 36 4 6 4 4 86,0 86,0
4610 24,5 3,4 3,0 8,2 16,6 7,9 39,5 Segull frá Stóru-Ökrum Leki frá Sveinungsv. 96 120 36 6 4 85,5
Þórarinn Leifsson og Guðrún Lárusdóttir í Keldudal áttu hæst sigaðasta
veturgamla hrútinn, Lóða frá Keldudal sem Guðrún heldur í á myndinni.
Fullstigaðir voru ríflega 570
lambhrútar. í þeim hópi var
að finna marga úrvals gripi og
fóru þar fremstir í flokki synir
sæðingarstöðvarhrútana.
Sjá töflu 2
Sæðingar hafa stór aukist í
Skagafirði á síðustu árum, sem
verður að teljast sauðfjárræk-
tinni á svæðinu til mikilla
heilla. Þessa aukningu má
skýra að iniklu leiti með því að
þeim bændum hefur fjölgað
sem lært hafa sauðfjársæðingar
og stunda þær því í auknum
mæli á sínum búum og einnig
að nú er boðið upp á skipu-
legar sæðingar árlega.
Frá sauðfjaárskoðun i Flatatungu. Einar Gunnarsson heldurí hrútinn
Stuttfót.