Feykir - 16.03.2005, Page 7
11/2005 Feykir 7
Spjallað við Sigurbjörn Þorleifsson_
Síminn var rauð-
glóandi í marga daga
Aðfararnótt sunnudagsins 14. febrúar 1988 gekk
ísbjörn á land í Fljótum í Skagafirði. Bændur í
Fljótum urðu varir við dýrið og var það fellt daginn
eftir. Sigurbjörn Þorleifsson, bóndi í Langhúsum,
skaut dýrið með 222 kalíbera riffli. í tilefni þess að nú
rekur ís að landinu að nýju settist tíðindamaður
Feykis niður með Sigurbirni og rifjaði upp þegar
hann felldi ísbjörninn.
Sigurbjörn Þorleifsson.
„Þetta byrjaði þannig að Ómar
heitinn á Laugarlandi fór út í
Hagnesvík um morguninn.
Ungur sonur hans var að leika
sér í fjörunni og var nýkominn
upp í aðstöðuhúsið til föður
síns þegar þeir urðu varir \rið
björninn. Þá hafði björninn
legið undir bátunum á planinu
við bryggjuna og fór á kreik
þegar hann varð var við
mannaferðir,” segir Sigurbjörn
í samtali við Feyki. Björninn
hafði gengið á land við bæinn
Hraun en ís var þá skammt
undan Iandi. Þeir feðgar komu
boðum um björninn til
Sigurbjörns í gegnum talstöð.
„Þegar ég heyrði þetta fyrst
fannst ntér þetta fráleitt og hélt
að verið væri að gera at í mér,”
segir Sigurbjörn. „Við fórum
þrír, ég Zóphanías á Syðsta
Mói og Jón í Haganesvík. Þegar
við komum á staðinn var
björninn hvergi sjáanlegur og
hafði þá farið í sjóinn aftur.”
Þeir þremenningarnir fóru
vestur með fjörunni og varð að
lokum vart við björninn í svo
kallaðir Mósvík. „Hann var
kominn þar upp í fjöruna þegar
ég kom og ég skaut hann á 40-
50 metra fræri.”
„Svo byrjuðu herlegheitin.
Ég var ekki kominn heim þegar
allt fór á fulla ferð, konan mín
var í fullri vinnu við að svara í
símann þegar ég kom heim.
Fréttamennirnir byrjuðu en
fljótlega upp úr miðjum degi
bárust símtöl fá allskonar fólki
og voru nánast alfarið á nei-
kvæðum nótum. Þetta gekk
svona alveg frarn á nótt og
milli klukkan tvö og þrjú um
nóttina nennti ég þessu ekki
lengur og tók símann úr
sambandi.”
Fólkið hreinmokaði
heimreiðina
„Símtölin héldu áfram alla
næstu viku. Ég fékk tv'ær
hringingar erlendis ffá seint á
ísbjörninn á Náttúrgripasafninu í Varmahlíð.
sunnudagskvöldið, en þá var
eins og fréttin væri komin út
um allan heim. Annað símtalið
skildi ég alls ekki en hitt var
þýsk kona sem talaði hrafl í
íslensku. Hún var reyndar ekki
mikið að skamma mig en
bauðst til þess að senda mér
deifiskotabyssu efég væri til í að
taka á móti næsta ísbirni með
ögn jákvæðara hugarfari. Ég
var aldeilis til í að fá
deifiskotabyssu en hún hefur
ekki borist mér ennþá.
„Ég hef aldrei nokkurntíman
hvorki fýrr né síðar verið annað
eins í sviðsljósinu og kæri mig
ekki um að vera það aftur,”segir
Sigurbjörn. „Þegar ég fór að
heiman um morguninn þurfti
ég að fara á dráttarvél vegna
ófærðar. Það var gríðarleg
ásókn fólks að koma og skoða
dýrið eftir að ég kom með það
heim. Fólk kom á jeppum og
fólksbílum og var að festa sig og
moka bílana lausa. Það má segja
að urn kvöldið hafi heimreiðin
verið hreinmokuð.
Tveir þrír aðilar hringdu og
vildu kaupa hræið en í mínurn
huga kom aldrei annað til
greina en að stoppa hann upp
og varðveita hann hér heima.
Páll Dagbjartsson, skólastjóri í
Varmahlíðarskóla, falaðist eftir
dýrinu og ég gaf skólanum
bangsa. Það var Steingrímur
Þorsteinsson á Dalvík stoppaði
dýrið upp og ég held að ég fari
rétt með að Kaupfélag
Skagfirðinga styrkti skólann til
verksins.”
Sigurbjörn var ekki einasta
gagnrýndur fýrir að skjóta
ísbjörninn. Hann var
gagnrýndur fyrir að nota of
lítinn riffil. „Þetta var af fróðum
mönnum kallað undirmáls-
vopn en ég var alveg óhræddur
að nota þennan rifFil,” segir
hann. „Hugsunin snérist urn að
gera þetta dýr óskaðlegt. Þarna
var bæði umferð manna og
skepna. Við tókum engan
sjéns.”
ísbirnir eru stærsta
tegund bjarndýra
Sagt er ffá því á vef
Náttúrufræðistofu Kópavogs
að ísbirnir - eða hvítabirnir -
eru stærsta tegund bjarndýra og
þar nteð stærsta rándýr heims.
Þeir geta orðið yfir 3 metra
langir og vegið allt að 800 kg.
Hér á landi eru kornur
hvítabjarna oftast tengdar hafís
og þarf því ekki að undra að
þær eru flestar á svæðinu frá
Hornströndum og austur um
norðurland.
íbúðir til sölu
Eignasjóður Skagafjarðar auglýsir til sölu
tvær íbúðir við Jöklatún á Sauðárkróki.
Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð,
108 m2, í raöhúsi og fjögurra herbergja
íbúð,110 m2 í parhúsi.
Óskaö er eftir tilboöum í íbúóirnar og skulu þau
berast skrifstofu eignasjóðs, ráöhúsinu,
Skagfiröingabraut 21, fyrir kl. 16.oo þann 1. apríl n.k.
Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri
Eignasjóðs Skagafjarðar, sími 455-6000.
Eignasjóöur Skagafjarðar áskilur sér rétt til aó taka hvaöa
tilboði sem er eöa hafna öllum.
Eignasjóöur Skagafjarðar
Skagafjörður
RÁÐHÚSIÐ SKAGFIRÐINGABRAUT 21 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 455 6000
INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA
Lagmula 9 • 108 Reykjavik • Kt. 530372-0229 • www.medlag.is
Banki 0139-26-4700 • Sími 590 7100 • Fax 590 7101
MEÐLAGSGREIÐENDUR
Gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Frá Heilbrigðisstofnuninni
Sérfræðikomur í mars og apríl:
29. mars - 31. mars
Edward Kiernan
Kvensjúkdómalæknir
04. apríl - 07. apríl
Sigurður Albertsson
alm. Skurðlækningar
11. apríl -14. apríl
Hafsteinn Guðjónsson
Þvagfæraskurðlæknir
18. apríl - 20. april
Bjarki Karlsson
bæklunarskurðlæknir