Feykir - 04.05.2005, Side 8
Byrjað að ráðstafa hluta af söluandvirði Simans
Ríkið leggur 280 milliónir
í Safnahúsið og Miðgarð
Ríkið leggur á næstu
árum til 280 milljónir
króna til byggingu menn-
ingarhúsa í Skagafirði
gegn því að sveitarstjórn-
ir leggi til mótframlag er
nemur 40% af heildar
upphæð. Fénu verður
ráðstafað til endurbóta á
Miðgarði í Varmahlíð og
viðbyggingu sunnan við
Safnahúsið á Sauðár-
króki.
Þetta er í samræmi við
niðurstöðu nefndar lieima-
manna og menntamálaráðu-
neytisins um menningarhús í
Skagafirði. Að sögn Gísla
Gunarssonar, forseta sveitar-
stjórnar Sveitarfélagsins Skaga-
tjarðar, átti hann fund með
menntamálaráðherra þar sem
farið var )1rr efni skýrslunnar
og hún samþykkt af ráðherra
með fyrirvara um að af sölu
Símans verði en framlag
ríkisins á að taka afsöluandvirði
Símans.
Framkævmdir við télags-
heimilið Miðgarð fjMr um 100
milljónir króna hefjast á árinu
og greiðir ríkið 60 milljónir,
Sveitarfélagið Skagafjörður 30
og Akrahreppur 10 milljónir
króna. Eftir bre\Tinguna
verður Miðgarður fyrst og
fremst tjölnota tónleikahús. Þá
er gert ráð fyrir að bar verði í
húsinu.
Gísi Gunnarsson vék að
þessum málum í setningaræðu
sinni í Sæluviku þar sem hann
sagði: „Nokkuð er síðan að
nefnd á vegum sveitarfélagsins
og menritámálaráðuneytisins
kom sér saman um tillögur
varðandi menningarhús í
Skagafirði. Þar var ákveðið að
ráðast í endurbætur Miðgarðs
annars vegar og hins vegar að
byggja hús sunnan Faxatorgs
sem tengt yrði við núverandi
safnahús. Sé ég fyrir mér að
tengibygging þessi gæti verið
glerhýsi, n.k. \1jrbyggt torg, þar
sem skemmtilegt mannlíf væri
árið um kring. í þessar
framkvæmdir hyggst
ríkisstjórnin leggja um 280
milljónir, - og skyldi engan
undra, að sala Símans á að
standa undirþeim kostnaði.
Nýlega tilkynnti mennta-
málaráðherra, að þær 60
milljónir sem ríkið leggur
fram til endurbóta á Miðgarði
verði greiddar á þessu ári og á
næstu dögum og vikum
verður farið að undirbúa
verkið, en Miðgarður á fýrst
og fremst að verða tónlistarhús
Skagfirðinga, þó að notagildið
verði vissulega fjölþættara. Má
því búast við að Miðgarður
verði lokaður allan næsta
vetur meðan þessar
endurbætur fara fram, en
kostnaðaráætlun er upp á 100
milljónir kr. Jafnframt verður
undirbúningsvinna hafin
vegna byggingar hússins við
Faxatorg.”
Góð sala á lambakjöti
Útlit fyrir að birgðir
seljist upp
Birgðastaða afurðastöðva á Norðurlandi vestra er hag-
stæð. Að sögn Ágústs Andréssonar, sláturhússtjóra,
hjá Kjötafurðastöð KS féllu til 1580 tonn af kindakjöti
hjá þeim á síðasta ári en nú eru einungis 200-220 tonn
eftir.
Á sama tíma í fyrra voru
eftir um 450 tonn hjá Kjöta-
furðastöðinni. Ágúst segist
einnig vita til þess að lit-
lar birgðir séu eftir hjá
afurðastöðvunum á Bönduó-
si og Hvammstanga. „Það
er útlit fj'rir að birgðir muni
ganga algerlega upp,” sagði
Ágúst í samtali við Feyki.
„Lambakjötið stendur uppi
sem sigurvegari eftir það
stríð sem hefur verið á kjöt-
markaði. Sömu leiðis hefur
gott markaðsstarf verið að
skila sér.”
Aðspurður um svigrúm til
að hækka verð til bænda segir
Ágúst að ytri aðstæður lofi
góðu og en áður en ákvarðanir
séu teknar þurfi að sjá hver sa-
lan verður á næstu mánuðum
sem og aðar forsendur, svo
sem útflutningsskylda.
Vorannir í algleymingi
Sauðburður
Ánægjulegur en anna-
samur tími fylgir vorinu
en um þessar mundir er
sauðburður hafin viða
Undanfarin ár hefur
burðurinn þó færst fram og
hefst nú á sumurn bæjum
uppúr sumarmálum. Hér er
bræðurnir Ófeigur Númi og
Egill Rúnar á Molastöðum
í Fljótum með fallega tví-
lembinga. ÖP:
Rannsókn á brunanum á Bárustíg_______
Enginn ákærður og
málinu lokið
Ríkissaksóknari hefur nú fellt niður mál á hendur unga
manninum sem hafði réttarstöðu grunaðs manns eftir
eldsvoðann á Bárustíg á Sauðárkróki í desember þar
sem vinur hans lést.
Haft er eftir Ríkharði að að gefa út ákæru á hendur
Mássyni sýslumanni á Sauð- piltinum og hann því saklaus
árkróki að málinu sé lokið og af þeim verknaði sem hann var
enginn verði ákærður. Ríkis- grunaður um.
saksóknari sá ekki ástæðu til
18» Júní
REIÐHÖLLINN Á SAUÐÁRKRÓKI
KL. 21:00
S 455 5300
I KB BANKI -kraftur til þínl
HINIR SÖMU sf.
framköllun & verslun
KAUPANGSTORGI 1 SÍMI 453 6001
453 6068
BÚSIAÖU R
FASTEIONASAI.A
A t-ANDSnYGQÐINNI