Feykir - 18.05.2005, Qupperneq 1
ViðarAgústsson með rebba og Remington haglabyssuna sem hann skauthann með. Mynd.ÁG
Bændur og veiðimenn
Mikið af tófu í ár
Veiðimenn og bændur í Skagafirði og Húnavatns-
sýslum, sem Feykir hefur rætt við telja almennt að tófu
sé að fjölga á Norðurlandi vestra. Bæði urðu menn
varir við óvenju margt af dýrum á fengitíma í vetur og
eins hefur tófa sést víða í varpi í vor.
Þegar tíðindamann Feykis við dýrið fyrir nokkrum dög-
bar að garði á Bergstöðum í um þegar hann var að taka
Skagafirði í gær hatði Viðar
Ágústsson, bóndi og
veðurathugunarmaður, fellt
boldangs ref í flóanum neðan
við túnin á Bergstöðum. Að
sögn Viðars -varð hann f)Tst var
veðurlýsingu klukkan sex að
morgninum.
Fleiri en Viðar verða varir
við tófuna og einn þeirra er
Gunnar Þórðarsson, eigandi
jarðarinnar Lóns sem er við
eystri ós Fléraðsvatanna.
„Fuglinn situr venjulega austan
við ósinn en það er orðið þannig
núna að það sést varla neinn
fúlg þarna á sandinum,” segir
hann.
Að sögn Gunnars hafa í
vetur verið felldar þrjár tófur í
Hegranesinu, en ekki hafi verið
algengt áður h’rr að dýr sæjust á
þeim slóðum.
Skagafjördur____________
Þverpólitískur
fundur um stofnun
atvinnumálafélags
A þriðja tug manna
kom saman á fundi á
Kaffi Krók á Sauðárkróki
í gærkvöldi til undir-
búnings stofnunar
félags um atvinnumál
í Skagafirði, þar með
talið virkjun fallvatna
í Skagafirði. Fundinn
sóttu aðilar út flestum
greinum atvinnulífsins í
Skagafirði.
Fundurinn var að frum-
kvæði Viggó Jónssonar og
Gísla Sigurðssonar, rafvirk-
jameistara á Sauðárkróki. Að
sögn þeirra verður stofnfun-
dur þverpólitísks félags um
atvinnumál í Skagafirði hal-
dinn á Kaffi Krók fimmtudag-
skvöldið 26. maí kl: 20:30.
Á undirbúningsfundi-
num kom fram að eitt af
meginverkefnum hins nýja
félags verður að tryggja, að
ef til virkjana fallvatna Skaga-
íjarðar kemur, verði orkan
nýtt til að byggja upp atvinnu
í Skagafirði. Fundarmenn
telja að meginforsenda þess
sé að rétturinn til að virkja sé
í höndum heimaaðila.
Eins og kunnugt er hafa
tjárfestar lýst yfir áhuga á að
reisa nýtt álver hér á landi og
meðal annars lýst Alcoa því
yfir í gær að félagið hyggðist
kanna möguleika á þess að
byggja nýtt álver á Norður-
landi. Fyrirætlnari þess efnis
voru meðal annars kynntar á
ríkisstjórnarfundi í gær. Það
er ljóst í þessu sambandi ren-
na menn hýru auga til orkunar
frá fallvötnum Skagaljarðar.
Á fundinn mættu meðal
annarra: Jóhann Ingólfsson,
Guðmundur Guðmundsson,
Þórólfur Gíslason, Halldór
Halldórsson, Jón Daníel Jóns-
son, Vilhjálmur Baldursson,
Jón E. Friðriksson, Ingi Friðb-
jörnsson, Kristbjörn Bjarna-
son, Ómar Kjartansson, Páli
Dagbjartsson, Knútur Aadne-
gard, Sveinn Árnason, Svala
Jónsdóttir, Ásta l^álmadóttir,
Friðrik Ólafsson og Ólafur
Friðriksson.
Útafkeyrsla í Blönduhlíð
Kona slapp ómeidd
Bíll ók út af veginum og
inn fyrir túngirðingu fyrir
neðan bæinn Sólheima í
Blönduhlíð síðastliðinn
sunnudag.
Ung kona var I bílnum og
eftir því sem best er vitað var
hún ein og sakaði hana ekki.
Málið var eklci tilkynnt til
lögreglu en að sögn sjónarvotta
er komu að slysinu virðist sem
bílinn hafi farið út af veginum
og endastungist yfir girðingu án
þess að skemma hana og endað
á hjólunum hinum megin
girðingarinnar.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—CTehgÍII chj3—
Bílaviðgerðir
hj ólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
X rbílaverkstæði
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu 1 b 550 Sauöárkrókur Simi 453 5141