Feykir - 18.05.2005, Blaðsíða 7
19/2005 Feykir 7
Rabb-a-babb
íþróttafréttir
Tindastóll - Selfoss 0-1
Nafn: Kathryn Ty Henecke
Argangur: 1988.
Fjölskylduhagir: Einhleyp.
Starf/nám: fíotary skiptiemi við FNV.
Hvaðan ertu: lowa, Colarado, USA.
Bifreið: Crysler le barron.
Hestöfl: 5
Hvað er í deiglunni: Ég er í námi i USA
en kom til íslands sem sklptinemi til að
prófa eitthvað nýtt. Eftir að ég útskri-
fast ætla ég að ferðast um Evrópu.
Hvernig hefurðu það?
Ansi góð en er þó með blöðru á ökkla
;)
Hvernig nemandi ertu?
Frábær að sjálfsögðu, nema I ísl-
ensku.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðirstór?
Ég ætlaði að verða kafari.
Hvað hræðistu mest?
Lukkudýr.
Hver var fyrsta platan sem þú keypt-ir
(eða besta)?
The Lion King.
Hvaða lag ertu líklegust til að syngja
í Kareókí?
Hvað sem er með Alicia Keys.
Hverju missirðu helst ekki af í sjón-
varpinu (fyrir utan fréttir)?
Malcom In The Middle.
Besta biómyndin?
What Dreams May Come.
Bruce Williseða George Clooney/An-
gelina Jolie eða Gwyneth Paltrow?
Clooney / Angelina.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem
ekki erskrifað á tossamiðann?
M&M súkkulaði.
Hvað er ímorgunmatinn?
Hunangs Cherios.
Uppálialds málsháttur?.
Live your life, it's the only one you
havei
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mesttil þín?
Lisa Simpson.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldlnis-
inu?
Bökuð samloka.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Aborat Civle Barker.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
Til Brasilíu, það er alltafpartíþar;o)
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
þínu?
Mig vantar allt kepnisskap.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra?
Endurtekningar á sama hlutnum aftur
og aftur og aftir.
Enski boltinn - hvaða lið og af hver-
ju?
New England Patriots þeir eru bestir
[innsk. eru reyndar í ameríska fót-
boltanumj.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar
mæturá?
Mia Hemm, hún spilar fótbolta.
Afhverju ísland?
Það er umkringt sjó og ég hafði aldrei
séð sjó áður á æfinni.
Hvað er öðruvísi og skemmtilegt/
furðulegt við ísland?
Það treysta allir öllum hérna - það
er eitthvað sem þú sérð ekki í USA.
Fólk finnur sér leið til þess að skem-
mta sér um helgar og íslendingar eru
alltafað halda upp á eitthvað; eins og
t.d. að prófin eru búin - "Höldum partí
- förum á barinn!"
Hvað kom mest á óvart á íslandi?
Fólk ber traust til hvors annars t.d.
nemendur skilja skóna sína eftir én
þess að læsa þá inni og svo eru húsin
á íslandi alltaf opin og bílarnir líka og
krakkar eru að leika sér úti án þess
að foreldranirséu að fylgjastmeð.
Hverju saknaru mest að heiman?
Fast food og hundanna minna.
Sástu American Idol?
Já, það var gaman en skrítið að geta
ekki kosið. í fyrra kaus ég Fantasya
fimm sinnum.
Randy, Simon eða Paula?
Simon, hann segir það sem hann era
að hugsa og meina.
Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Hillary Clinton.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á
eyðieyju, hvaða þrjá liluti tækirðu
með þér?
Málningargræjur, hundana mína og
strák.
Selfyssingar höfðu betur
gegn Tindastólspiltum
Lið Selfoss hafði betur
gegn Tindastólsmönn-
um í fyrstu umferð 2.
deildar íslandsmótsins í
knattspyrnu, en leikið
var á Sauðárkróki á
mánudag.
Veðrið hafði nokkur áhrif
á leikinn. Ekki skorti sólina
en napur norðanvindur var
frekar leiðinlegur. Lið Selfoss
spilaði undan vindi í fyrri
hálfleik en gekk illa að skapa
sér færi. Síðasta stundar-
tjórðung fyrri hálfleiks jókst
pressan að marki Tindastóls
og Stólarnir neyddust til að
verjast aftar á vellinum. Gísli
Sveins markvörður greip
nokkrum sinnum vel inní
leikinn en á 41. mínútu
stangaði Ómar Valdimarsson
boltann í markið. 0-1 í
hálfleik.
Tindastóll hóf síðari
hálfleik á stórsókn og
Selfyssingar áttu í mesta basli
með að koma boltanum fram
fyrir miðju. Hvað eftir annað
skall hurð nærri hælum við
mark gestanna og á 52.
mínútu héldu leikmenn
Tindastóls að þeir hefðu
skorað en dómarinn mat það
svo að markvörður Selfyss-
inga hefði náð boltanum á
línu og eftir það náðu
Selfyssingar að létta nokkuð
pressunni og höfðu að lokum
sigur, 0-1.
Snorri Geir við það að stinga sér inn fyrir vörn Selfyssinga en þvi miður fór færið
forgörðum.
Frá vinstri: Órn fíagnarsson doktor, Guðjón Jóhannsson þjálfari og Sveinbjörn
Ásgrimsson þjálfari fylgjast spenntirmeð leiknum.
Lið Tindastóls lék
ágætlega rniðað við
aðstæður. Vörnin stóð sig
vel og miðjan varðist vel en
nokkuð vantaði upp á spilið
fram völlinn og átti
vindurinn sennilega nokk-
urn þátt í því. Leikurinn var
í heildina jafn og jafntefli
sennilega verið sanngjörn
úrslit. Tindastólsliðið er
nær eingöngu skipað heima-
strákum og sumum ansi
hreint ungum. Þannigkomu
tveir piltar inná í síðari
hálfleik, Pálmi Valgeirsson
16 ára og Rúnar Sigurjóns-
son en hann er 15 ára. Báðir
stóðu sig með prýði.
3. deildin bráttafstað
Hvöt og Neisti í riðli
með sunnanliðum
Meistaraflokkur Hvatar
í knattspyrnu karla
tekur á móti Magna frá
Grenivík í VISA-
bikarkeppni KSÍ á
Blönduósvelli þann 19.
maí kl. 20:00.
Sama kvöld fær lið Neista
á Hofsósi Reyni frá Árskógs-
strönd í heimsókn.
Síðan hefst keppni í C-
riðli 3ju deildar en bæði
Hvöt og Neisti leika í þeim
riðli. Nú kveður við nýjan
nýjan tón í hópi mótherja
iiðanna því nú verður að
mestu leikið sunnan heiða.
Liðin sem Hvöt og Neisti
etja kappi við eru
Skallagrímur, Augnablik,
Hvíti riddarinn, Afríka og
ÍH. Þetta ætti að gleðja
burtflutta stuðningsmenn
Norðanliðanna, því nú þurfa
þeir ekki að gera sér ferð
norður í land til að sjá lið sín
spila. Heimavellir þessara
liða eru í Borgarnesi,
Hafnarfirði, Reykjavík og
Mosfellsbæ.
Baráttan byrjar sunnu-
daginn 20. maí en þá tekur
Hvöt á móti Skallagrími en
Neisti fær Hvíta riddarann í
heimsókn oggætu mögulega
spilað Sikileyjarvörn. Á
Blönduósi er leikið kl. 14:00
en kl. 16:00 á Hofsósi.
smáauglýsingar Sendið smaauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Volvo til sölu Volvo 240GL, árg 1988 ekinn i40þ. Mjög gott eintak, verð kr. 250þ. Upplýsingar í sima 8961390 Til sölu Til sölu 5 ára gömul Brio kerra (kr. 15.000) og kerrupoki (kr. 2.000) frá Tjaldberg. Getsent myndir í tölvupósti til þeirra sem þess óska. Stína, s: 8673817, email: anja_isis@hotmail.com Heilsársdekk til sölu Mánaðargömul heilsárdekk. Michelin 4X4 ALPIN, 195/80 R15. Uppl. í sima 898 7836