Feykir - 18.05.2005, Page 5
19/2005 Feytdr 5
síst minni veiði. Og einu
Islendingarnir senr hafa efni
á þessum veiðile>fum eru
sterkefnaðir menn og eða þeir
sem hafa aðstöðu til að stunda
“fyrirtækjaveiðar” og oftast eru
þetta nú sömu mennirnir. Það
er verið að dæma almenning úr
leik með þessum samningum,
því auðvitað ætla menn sér svo
að græða á öllu saman.”
-En óttast Eggert að þessi staða
geti leitt til fákeppni?
“Fákeppni er ekki það sem ég
óttast, rniklu frernur að menn
séu að axla svo þungar byrðar
að þeir standi ekki undir þessu,”
segir hann. “Það má lítið fara
úrskeiðis þegar boginn er svo
hátt spenntur og hvað gerist þá?
Eftir standa þessir samningar
með óraunhæfu verðlagi og
hvernig ætla menn sér að vinda
ofan af því? Það þótti mikið að
borga hátt í 30 milljónir fyrir
Víðidalsá á sínunt tírna en að
borga yfir 50 milljónir það er
því rniður bara hrein \ritleysa
og ég óttast að þetta sér upphaf
að hrunadansi á þessu sviði”
segir Eggert að lokum.
Skagafjörður með bás á Norðurland 2005
Norðlendingar boðnir
velkomnir í Skagafjörð
Norðlendingar fengu sér bita úr matarkistu Skagafjarðar og fræddust í
leiðinni um ferðaþjónustu i héraðinu.
Um síðustu helgi var
atvinnu-, þjónustu- og
mannslífssýning á
Akureyri. Sýningin var
kölluð Norðurland 2005
og fór fram í íþróttahöl-
linni á Akureyri.
Sveitarfélagið Skaga-
íjörður var með bás á sýning-
unni undir yfirskriftinni
Skagafjörður - Ævintýrin
bíða þín. Ferðaþjónusta
og mannlíf í Skagafírði var
kynnt með sérstakri áhersla
á Matarkistuna Skagafjörð.
Matarkistan Skagafjörður er
verkefni á vegum Hólaskóla
um mat og ferðaþjónustu
með þátttöku matvælafram-
leiðenda, veitingastaða
og ferðaþjónustuaðila í
Skagafirði.
Á sýningunni voru kynntir
ostar frá Mjólkursamlagi
Skagfirðinga, reykt rúllu-
pylsa frá Kjötkrók og grafinn
skarfur frá Kaffi Krók. Ma-
turinn fékk lofsanrlegar mót-
tökur og skapaðist mjög góð
stemming í básnum þegar
verið var að kynna hann.
Matvælaframleiðendur í
héraðinu geta veið stoltir
af þessuin gæða vörum og
niikill áhugi var hjá þeirn
fjölmörgu gestum sent komu
í básinn á að kaupa þessar
vorur.
Það má því segja að leiðin
að hjarta Norðlendinga hafa
verið í gegnum magann þessa
helgi. Svo er bara að vona að
nágrannar okkar á Norður-
landi láti verkin tala í sumar
og sæki Skagafjörð heirn. Þar
gefst þeim m.a. kostur á að
fá sér fleiri bita úr matarkis-
tu Skagafjarðar eða halda á
vit ævintýranna hjá kröftu-
gum ferðaþjónustuaðilum í
héraðinu.
Nýr upplýsingavefur
um Norðurland
Á sýningunni var opnaður
nýr upplýsingavefur um fer-
ðaþjónustu á öllu Norður-
landi en þar verður að finna
allar helstu upplýsingar um
landsfjórðunginn.
Vefurinn er unnin í vef-
umsjónarkerfmu Vefþór frá
Betri lausnum í samstarfi
við vefdeild Ferðamálaráðs
Islands. Upplýsingar úr
gagnagrunni Ferðantálaráðs
um íslenska ferðaþjónustu
eru birtar nteð leyfi Fer-
ðamálaráðs. Það voru Hinir
sörnu sf á Sauðárkróki, Áskell
Heiðar Ásgeirsson og Rósa
Aðalsteinsdóttir sem sáu um
hönnun vefsins.
Jón Bjarnason þingmaður skrifar_
Um Hitaveitu Blöndu
óss og sóknarfæri
sveitarfélaga
Hart er þrengt að sveit-
arfélögunum í landinu
sérstaklega á lands-
byggðinni. Hin ranga
tekjuskipting ríkis og
sveitarfélaga er þeim
þung í skauti.
Æ fleiri verkefni hafa verið
flutt til sveitarfélaganna án þess
að tekjustofnar hafi fýlgt með.
Stefna ríkisstjórnarinnar í efna-
hags og atvinnumálum hefur
verið andsnúin öllum srnærri
atvinnurekstri. Risavaxnar
framkvæmdir á afmörkuðum
stöðunr á landinu hafa tröll-
riðið þjóðinni, keyrt upp
gengi krónunnar og skert sam-
keppnisstöðu annarra atvinnu-
greina.
Stórfelldur innflutningur
á erlendu vinnuafli keyrir
niður launin og starfskjörin
sem alntenningur á íslandi
hefur náð með áratuga barát-
tu. Óhugnanlegur hagnaður
banka, tjármálastofnana og
einstakra manna í viðskipta-
heiminunt segir sína sögu um
það hvert eignir almennings og
þjóðarauðurinn fer.
Héraðsveitur eru afl til
framkvæmda
Staðreyndin er sú að þau byg-
gðarlög, sem eiga hitaveitur
eða rafveitur hafa getað be-
itt þeim til framkvæmda og
nýsköpunar og hafa skorið
sig úr. Fjárhagsstaða veitun-
nar sjálfrar er því oft enginn
raunhæfúr mælikvarði á stöðu
rnála. Fólk skyldi vera minnugt
þess, að það munu engir borga
kaupverð Hitaveitunnar aðrir
en íbúarnir sjálfir. Héraðsveit-
ur eru ómetanlegur styrkur
hverrar byggðar.
Stefna núverandi ríkisstjór-
nar er að svelta sveitarfélögin
og knýja þau til að einkavæða
og selja grunnstoðir samfélag-
sins.
Á einurn stað eru þau pínd
til að selja skólann sinn og
íþróttahúsið, á öðrum stað
rafveituna sína, hitaveituna eða
kaldavatnið. Skólpið er svo
næst. Því meðan nokkur byg-
gð er, þá eru veiturnar örugg
tekjulind eiganda sínum. Allir
þurfa vatn, rafmagn, hita og
frárennsli.
Ríkisstjórnin lækkar skatta á
hátekjufólki og gurnar af góðri
stöðu ríkssjóðs en veltir byrðu-
num yfir á sveitarfélögin.
Framsókn vill einka-
væða og selja orku-
fyrirtæki landsins
I orkumálum er það stefnan
að komast yfir allar hinar litlu
veitur á landsbyggðinni eða
leggja þær undir einhverja af
hinum stóru orkufyrirtækjum,
Landsvirkjun, Rarik eða
Orkubú Vestfjarða. Skemmst
er að minnast þegar Rafvei-
ta Sauðárkróks var seld úr
héraðinu til Rarik þvert gegn
vilja megin þorra heimamanna
og rafmagnið hækkað á eftir.
Reynsla heimamanna af þeirn
sölugjörningi er ekki góð og
vilja þeir fá að leysa Rafveituna
aftur til sín.
í vetur lýsti iðnaðarráðherra
Framsóknarflokksins þeirri
stefnu að sameina ætti Rarik,
Landsvirkjun og Orkubú
Vestfjarða. Að því búnu á að
einkavæða og selja fyrirtækin
á almennum markaði. Eignar-
haldið gæti þá lent hvar sem
væri, hérlendis eða erlendis.
Eitt er víst að kaupandinn mun
alfarið hugsa unr eigin fjárhag-
slegan hagnað. Finnst einhver-
jum líklegt að fjarlægur eigandi
geti rekið Hitaveituna betur í
þágu íbúanna en þeir sjálfir?
Hér á ekki aðeins að selja vei-
tuna sjálfa heldur einnig hi-
taréttindin, orkuauðlindina.
Vert er að hafa í huga að
Rarik á enga eigin peninga til
að kaupa fyrir heldur verða
þeir fjármunir að korna með
ábyrgðum frá ríkisvaldinu. Er
þá ekki eðlilegra að ríkið leggi
fjármagnið beint til Bæjarins
í stað þess að veita þeim til
Rarik.
Hugsumokkur
tvisvarum
Mér kom fréttin unt fyrir-
hugaða sölu Hitaveitunnar á
óvart. Ég hefði talið eðlilegt að
sveitarstjórnin hefði óskað eftir
fundi með öllum þingntön-
num kjördæmisins og kynnt
þeim stöðu mála áður en til
kæmi svo afdrifarík ákvörðun
og sala Hitaveitunnar er. Það
er Alþingi sem verður að
samþykkja þennan gjörning ef
af verður, fyrr fær hann ekki
gildi sitt.
Þingmenn Vinstri - grænna
hafa barist fyrir því á Alþingi að
ríkið færði fjármagn og tekjus-
tofna til sveitarfélaganna. Þau
verða ekki rekin árum saman
á sölu eigna. Það veit enginn
hvað átt hefur fyrr en misst
hefur. Ein besta mjólkurkýrin
verður ekki seld nema einu
sinni og við þurfum mjólkina
áfram.
Jón Bjarnason,
alþingismaður
[ Beiðni um áskrift [
Ég undirritaður/uð óska eftir því að gerast áskrifandi að Feyki
Nafn
Feykir
AÐALGÖTU 21
550 SAUÐÁRKRÓKUR
L
Heimilisfang
Póstnúmer og staður
Kennitala
Eg oska eftir að greiða með
Gíroseðli
man/ár
Kreditkorti