Feykir - 17.08.2005, Blaðsíða 7
30/2005 Feykir 7
Guðmundur Valtýsson skrifar_
Vísnaþáttur 411
Heilir og sælir lesendur góðir.
Smá leiðrétting vegna síðasta þát-
tar. Tvær af vísum Jónasar frá Va-
ladal til Árna Rögg settar saman
og mynda þá átta hendingar svo á
alls ekki að vera, heldur hver vísa
sjálfstæð.
I>á kemur fyrsta vísan að þessu
sinni. Höfundur hennar Aðal-
steinn Ölafsson, kenndur við
Melgerði í Eyjafirði.
Hratt mig ennþá hugur bar
heim að dyrum þínum.
Enda skrölta skeifurnar
skáldfák undir mínum.
Önnur ágæt vísa kernur hér eftir
Aðalstein.
Víst eru sveinum vífin kœr
víða leynist eldur,
það setn einum yndi Ijær
attnars meini veldur.
Sá snjalli hagyrðingur Jóhannes
Benjamínsson var eitt sinn senr
oftar staddur á Iðunnarfundi.
Mun hann hafa verið þar ansi
harðorður. Sigurður frá Haukagili
var nærstaddur og orti svo til eins
af fundargestunum sem ég veit því
miður ekki hver var.
öllum draugum œtti að lóga
einkum þeirn ersýna hrekki.
Stökktu vígðu vatni á Jóa
vittu hvort hattn sekkur ekki.
Næsta vísa er,ef mig misminnir
ekki því meir, eftir Asgrírn Kris-
tinnsson frá Ásbrekku.
Freistingarnar fundu mig
ífögrum rómi vífsins.
Eg var barn ogþekkti ei þig
þungi dóitmr lífsins.
Þá langar mig að biðja lesendur
unr upplýsingar vegna höfundar
næstu vísu ef þið kannist við hana.
Lifði ég við lífskjör hörð
lœrði í skóla ströngum,
þó að grænki gróin jörð
grána hár í vöngum.
Alltaf er gaman að rifja upp vísur
eftir Sveinbjörn alsherjargoða.
Einhverju sinni er hann kont á
verkstæði og sá þar dagatal varð
þessi til.
Þó ég löngum þrái synd,
þó ég löstumfagni.
Aldrei hefur alsber mynd
orðið mér að gagni.
Önnur vísa kernur hér eftir Svein-
björn.
Einni reyndist örðug bið
augun sjá það glöggu,
ennþá stendur stiginn við
stafngluggann hjá Möggu.
Eftir að hafa hlustað á útvarpsþátt
yrkir Sveinbjörn.
Veina hundar, vœlafress,
vondir bola öskra.
Svo er líka Svavar Gests
sumumfer að blöskra.
Erlingur Jóhannesson frá
Hallkelsstöðunr í Hvítársíðu orti
svo er hann heyrði Sverrir Her-
mannsson taka þannig til orða að
ónafngreindur aðili hefði etið óðs
ntanns skít.
Sverrirgegnunt gleiðan hvoft
gusar frekjuorðum.
Virðist hafa alltof oft
óðs manns skít á borðum.
Þá er hin kunna Viðeyjarstjórn sat
að völdum orti Erlingur.
Nú er váleg veðurspá
von á nýrri hrinu,
kominn stólpa stormurá
stjórnarheimilinu.
Á efri árunt yrkir Erlingur þessa.
Elli tökum á mér nær
allt úr skorðum gengur,
svo að varla vísufœr
verð ég talinn lengur.
Þar sem verið er að fjalla um vís-
nagerð Borgfirðinga er ganian að
rifja næst upp vísu sem ég held að
sé eftir Þorstein á Skálpastöðum.
Ekki veit ég til hvers hann er að
tala þar.
Þú villt brúka þras og hrekki
það ersumum mikils virði.
Lofséguði að ertu ekki
œttaður úr Borgarftrði.
1 síðasta þætti birtist ágæt vísa eftir
Jón Þorsteinsson skáld á Arnar-
vatni. Alltaf gantan að rifja upp
vísur eftir Jón og minnir mig að
þessi sé ein af þeim. Mun hún vera
gerð á efri árum hanns.
Flestu eraðförlast Jón
fækka korn í blóði,
efþú hittirengan tón
eða stef úr Ijóði.
Ósjálfrátt leitar hugur undirritaðs
oft í vísnagerð Höskuldar Ein-
arssonar frá Vatnshorni. Þrátt fyrir
að vel rættist úr heyskap í júlí, á
þeiin sólskinsdögum sem þá skör-
tuðu sínu fegursta, eru nokkrir
bændur enn að glíma við heyskap
í þessari súldardrullu sem nú ríkir
flesta daga. Um svo þrálátt veður
yrkir Höskuldur.
Lán er aðfá að lifa og njóta
lífsins hér í votrigröf.
Dýrlegt er af drottni að hljóta
drullu strax í vöggugjöf.
Gæti þá endirinn, sem best átt
við okkar hugsun, sem einstaka
sinnum leitum eftir gistingu í an-
nari sókn. Alsherjargoðinn yrkir til
vinkonu.
Sortnarflest því siginn er
sól á vesturfjöllum,
ég á mest að þakka þér
Þú ert best af ölum.
Verið þið svo sæl að sinni
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
Golf_________________________
Kvennasveit GSS í 1. deild
Þann 10. - 12. ágúst
fór fram sveitakeppni
kvenna í golfi á Urr-
iðadalsvelli við Hafn-
arfjörð.
1. eikið var í l. og 2. de-
ild og spilaði kvennasveit
Golfklúbbs Sauðárkróks í
2. deild að þessu sinni. Þær
gerðu sér hinsvegar lítið
fyrir og höfnuðu í öðru sæti
og spila því í 1. deild að ári
sem er frábær árangur hjá
ekki stærri klúbbi. Aðeins 8
lið eru í efstu deild.
Dömurnar sem skipa
lið GSS eru: Margrét Ste-
fánsdóttir (liðsstjóri), Sig-
ríður Elín Þórðardóttir,
Svanborg Guðjónsdóttir,
Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Málfríður Haraldsdóttir,
Katrín Sveina Björnsdóttir
og þá var Hallfríður Hafs-
teinsdóttir sérstök hjálpar-
hella liðsins.
Knattspyrna 3. deild_____
Hvöt í góðum séns
Hvöt stöðvaði sigur-
göngu Neista frá Hofs-
ósi full harkalega á
Blönduósi í síðustu
viku. Blönduósingar
sigruðu af öryggi, 6-1.
Eftir finnn mínútna leik
var staðan orðin 2-0 fyrir
Hvöt, Árni Adolfsson kom
Hvötyfir á 2. mínútu, Gissur
Jónasson bætti við marki á
5. mínútu. Guðnrundur
Vilbergsson gerði þriðja
markið á 14. nrínútu og
Róbert Haraldsson gerði
síðasta rnark Hvatar í fyrri
hálfleik á 34. mínútu. Hann
bætti síðan við nrarki á 64.
mínútu og síðan gerði Frosti
Bjarnason síðasta mark
leiksins á 82. mínútu.
Með sigrinum skutust
Blönduósingar í annað sæti
riðilsins þar sem Hvíti
riddarinn náði aðeins
jafntefli gegn toppliði ÍH.
Hvöt mætirbotnliði Afríku í
síðustu umferð og er því í
fínum séns að komast í
úrslitakeppni 3. deildar.
13 bílar mættu í Kleifargrúsina_
Blönduóstorfæran
Blönduóstorfæran fór
fram laugardaginn 6.
ágúst í Kleifargrúsinni
við Blönduós.
13 bílar mættu til leiks
sem flestir kláruðu sig af
þrautunum átta, retmdar
rnisvel en þó var einn
sérstaklega óheppinn eða
sérlega illa undirbúinn en
hann átti í erfiðleikum með
að halda bílnum í gangi.
Þrautirnar 8 reyndust
miserfiðar en þó var
lokaþrautin erfiðust að
vanda og tókst einungis
einum bíl að komast alla
leið upp á toppinn.
Sigurvegari varð Gunnar
Gunnarsson í sérútbúna-
flokknum en hann keppti í
götubílaflokki í fyrra.
Heimild og mynd: huni.is
Eitt og annað
W
Osigur í
Njarðvík
Lið Tindastóls lék við
Njarðvíkinga í 2.
deildinni í knattspyrnu
um helgina.
Stefán Arnar Ómarsson
kom Stólunum yfir eftir
stundarfjórðung en
Njarðvíkingar gerðu tvö
inörk upp úr miðjum síðari
hálfleik og sigruðu 2-1 á
heimavelli sínum.
Önnur úrslit í deildinni
reyndust Stólununr hagstæð
þar sem botnslagur Leifturs/
Dalvíkur og ÍR endaði með
jafntefli og Afturelding
tapaði fyrir Fjarðabyggð.
Tindastóll er því enn í
áttunda sæti þegar (jórar
unrferðir eru eftir.
Frábærthjá Lindu Björk
Linda Björk Valbjörnsdóttir
(13) varð íslandsmeistari í
lOOm hlaupi á Meistaramóti
Islands, fyrir 12-14 ára, sem
frain fór í Hafnarfirði um
helgina. Linda Björk hljóp á
13,81sek. Þá varð Linda
Björk í 2. sæti í 80m
grindahlaupi (14,04sek) og í
3. sæti í hástökki (1.40m).
Glæsilegur dagur hjá þessari
efnilegu íþróttastúlku.
smáauglýsmgar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Folöld týnd
Folöld hurfu úr hrossahóp við
Heiði og gætu verið á svæðinu
norðan við Heiði. Efeinhver
kynni að verða þeirra var - eða
veit um þau - þá vinsamlegast
hafið samband í sima 453 6511.
Til sölu
Til sölu vegna flutninga: Nýlegur
Gorenje kæliskápur. Hæð 142 sm,
breidd 60 sm. Verð kr. 35 þúsund.
Einnig rúm sem er 135 sm breitt.
Verðkr. Wþúsund.
Upplýsingar i sima 895 0733.
Ýmislegt
Notuð Ftafha eldavél fæst gefins.
Upplýsingar í sima 453 8056.
Höfðingi til sölu!
Gamli fjallagarpurinnn
gerirsina skyldu.
Hann er til sölu höfðinginn,
hreppa færrien vildu.
Um erað ræða nýskoðaðan
Nlssan Patrol '87. Áhugasamir
hafi samband við manninn á
myndinni i síma: 453-8283.