Feykir - 14.09.2005, Side 1
S
Ibúðalánasjóður
www.ibudalan.is
Álft og gæsir skemma kornakra í Vallhólma
Ökumenn grandalausir á Þverárfjallsvegi
22 teknir fyrir of
hraðan akstur
Tuttugu og tveir öku-
menn voru teknir fyrir of
hraðan akstur á Þverár-
fjallsvegi um helgina. Sá
sem hraðast ók var á 130
kílómetra hraða. Meiri-
hluti ökumanna var á
110-120 kílómetra hraða
á klukkustund.
Ekkert GSM samband er á
Þverártjallsvegi og hefur það
dregið úr möguleikum á um-
ferðareftirliti lögreglu og reik-
na því ökumenn almennt ekki
með að verið sé að hraðamæla
á þessum slóðum. Þó er á köfi-
um hægt að ná NMT sam-
bandi og einnig getur lögregla
haft talstöðvarsamband vegna
nýs endurvarpa á skíðasvæðinu
í Tindastóli, sem gerir lögreglu
kley'ft að sinna umferðareftirliti
án þess að öryggi annars staðar
í lögsagnarumdæminu sé telft í
voða.
Lögreglan á Blönduósi tók
samtals um 60 manns fýrir of
hraðan akstur um síðustu helgi
en það er rninna en búast mátti
við á þessum árstíma.
Sparisjóður Skagafjarðar___
Stofnfé eftirsótt
Útboði á nýju stofnfé
fyrir Sparisjóð Skaga-
fjarðar lýkur á föstudag
16. september. Líkur eru
til að færri fái stofnbréf
en vilja.
Að sögn Kristjáns B.
Snorrasonar,sparisjóðsstjóra
Sparisjóðs Skagafjarðar, hafa
Skagfirðingar sýnt útboðinu
mikinn áhuga og á það
reyndar bæði við um íbúa
í Skagafirði og burtflutta
Skagfirðinga. Að þessu sinni
voru boðnar út 26,5 mill-
jónir króna og verður eigið
fé sjóðsins eftir útboð um 44
milljónir króna. Heimild er
frá stjórn til aukningar upp
í 88 milljónir króna.
Að sögn Kristjáns eru
líkur á að færri fái stofnfé
en vilja en núverandi stofn-
fjáreigendur hafa forkaups-
rétt að nýjum stofnbréfum í
sparisjóðnum.
Smábátaeigendurá Norðurlandi vestra
Vilja ekki loðnuveiði
Skalli, félag smábátaeig-
enda á Norðurlandi vestra
samþykkti á aðalfundi sín-
um að skora á stjórnvöld
að banna sumarloðnu-
veiðar næstu 5 árin.
Það var Sævar Einarsson
smábátasjómaður á Sauð-
árkróki sem tók málið upp
á aðalfundinum. Smábáta-
sjómenn segja síli algjörlega
horfin úr sjónum norður og
austur um land. Afleiðingin
sé skortur á æti fyrir fisk og
mikill fugladauði sem vart
hefur orðið undanfarin ár.
Líkur á að uppskeran
verði í meðallagi
Kornskurður er hafinn í Skagafirði og að sögn Eiríks
Loftssonar, ráðunauts hjá Leiðbeiningamiðstöðinni,
eru líkur að uppskeran verði í melallagi í ár. Tíðin hefur
verið fremuróhagstæð fyrir kornið að undanförnu og
gæsir og álftir hafa skemmt korn í Vallhólma.
„Það vantar meira sólskin til korninu.
að fýlla kornið betur, uppskeran
lítur út fyrir að verða í meðallagi
en þetta kemur betur í Ijós
þegar kornið verður skorðið,”
segir Eiríkur.
Kvartað hefur verið undan
ágangi gæsfugla í kornökrum
og á einum akri í Vallhólma
hafa álftir troðið niður
uppskeruna á nokkru svæði.
Hætta er á að þetta gerist þegar
akranri liggja að túnum sem
eru slegin og hrit en þá eiga
álftirnar greiðari aðgang að
Þegar ljósmyndara bar að
garði í Vallhólma í gærdag
voru um 200álftir í umræddum
kornakri og töluverður fjöldi af
grágæsum einnig. Reynt hefúr
verið að fæla fuglana frá
korninu en þeir koma jafn-
harðan aftur enda freistingin
mikil og ekki heimilt að skjóta
álftina undir neinum kring-
umstæðum.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
’enftll ehj3—
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
mi
bílaverkstæði
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141