Feykir - 14.09.2005, Blaðsíða 3
34/2005 Feykir 3
Aftur í liðna tíð I
Hörður Ingimarsson skrifar
Stafnsrétt i Svartárdal Austur-Húnavatnssýslu. Myndin tekin á fjórða áratug siðustu aldar og ekki siðar en haustið 1937.
Mynd i eigu Hing.
Eyvindarstaðaheiði er gríðarlegt landflæmi milli Blöndu
að vestan og Jökulsár vestari í Skagafirði. Nær svæðið
allt fram að Hofsjökli. Eyvindarstaðaheiðinni er skipt í
þrjá meginhluta. Guðlaugstungur, frægt grasatekjuland
er grös voru nýtt til manneldis, Ásgeirstungur og
Útheiðina.Vesturheiðarmenn (Bólhlíðingar) hafa þetta
svæði til smölunar en Skagfirðingar, aðallega Lýtingar,
hafa með höndum Haukagilsheiðina og nærliggjandi
lönd.
Heimaafréttarlönd Lýtinga
liggja ntjög að Eyvindarstaða-
heiði að austan verðu. Fram-
Seylhreppingar hafa urn aldir
átt upprekstur á “Heiðina” og
Eyhiltingar fremst í Hegranesi,
þó það liggi nú ekki beint í
augum uppi hvernig jörð í
miðjurn Skagafirði eigi upp-
rekstrarrétt á Eyvindarstaða-
heiði.
Löng hefð var fyrir því að
aðalgöngur á Eyvindarstaða-
heiði hæfust laugardaginn í
22. viku sumars (í ár væri það
17. september) og stóðið rétt-
að á miðvikudeginum næstum
á eftir. Fjárréttin síðan á
fimmtudeginum í 23. viku
sumars er Haustmánuður
byrjar. Nú er þetta allt breytt
en réttað var á laugardaginn
þann 10. september s.l. og
engin er stóðréttin.
Upprunalega var rétt á
Háutungusporðinum milli
Svartár og Fossár, sem nefndist
Ranarétt. Hún var forveri
Stafnsréttar. Stafnsrétt varð
aðalskilarétt snemma á nítj-
ándu öld og tók við af
Eyvindarstaðarétt, sem var illa
staðsett og ekki nægilega
miðsvæðis.
Um og fyrir miðja síðustu
öld var Stafnsrétt ein mesta
fjár- og stóðrétt á íslandi.
Henni er svo lýst (sjá mynd)
að almenningur var 68m
langur og 10,5m á breidd.
Dilkarnir 22 talsins um 20m
langir hver til beggja hliða við
alntenningin og samanlögð
lengd allra veggja um 850m að
lengd af torfi og grjóti.
Stafnsrétt var valin staður á
Löngueyri sunnan Stafnsklifs í
Svartárdal. Þetta er veðursæll
og fagur staður fyrir réttar-
stæði. Þar er nú risin ný rétt á
rústum þeirrar gömlu. Byggð
1978 og vígð 14. september
það ár. Framkvæmdastjóri
verksins var Sigurjón Guð-
mundsson bóndi á Fossum,
nú búsettur á Blönduósi.
Þekktastur gangnaforingi á
Eyvindarstaðaheiði er Guð-
mundur Sigurðsson bóndi á
Fossum í Svartárdal (afi
Sigurjóns áðurnefnds). Hann
rækti þetta starf frá 1883 til
1926 eða í 44 haust. Guð-
rnundur sonur hans tók við af
föðursínumsemgangnaforingi
og var frægur fyrir ratvísi.
Fossar eru enn byggðir af
sonum Guðmundur Guð-
mundssonar.
Réttardagur við Stafnsrétt
var ógleymanlegur þeim er
upplifðu að sjá fé renna
sunnan þúsundum saman úr
Háutungusporðinum um
Lækjahlíðina yfir Svartá og til
réttar og í Vökuhvamminn.
Jarmið, hundgáin, hróp og
köll síaðist inn í sálartetrið og
hlaut að kalla til sín að ári
liðnu. Hér var mannlífsdeigla
Húnvetninga og Skagfirðinga.
Stökur flugu, kveðið, lyft
gangnapela og litið til kvon-
fangs við ljúft harmonikuspil
Benna á Vatnsskarði og fleiri
snjallra nikkara.
Hörður Ingitnarsson
gomsæ
^ hjá/Jóní/Vcuv
Nú þegar laxveiðimenn hafa
fyllt allar ffystikistur sínar af
laxi og silungi er rétt að gefa
uppskrift af góðum laxarétti
fyrir fjórar persónur.
Ofnbakaður lax
í soja-marineringu
Ikg lax - roð- og beinlaus, skorinn I
ca. 10 cm sneiðar, sneiðarnar
lagðar I smurt eldfast form
Marinering;
2 msk. sojasósa
2 msk. sweet chili sósa
2 msk. sykur
2 msk. sherrí
2 hvítlauksrif (söxuð)
1 msk. rifinn ferskur engifer
2 stk. gulrætur skornar I strimla
1 stk. blaðlaukurskorinn I strimla
I stk. sellerístöngull skorinn I strimla
Sósunt, sykri, hvítlauk, sherrí
og engifer er blandað saman í
skál, hrært vel í eða þar til
sykurinn er uppleystur. Marin-
eringunni er síðan hellt yfir
fiskinn og látið marinerast í
um það bil eina klukkustund.
Grænmetisstrimlunum er
dreift yfir fiskinn, álpappír
settur formið og bakað í ofhi í
15 mínútur á 100-120 gráður.
Berið frarn í eldfasta forminu.
Eggjasósa
2 stk. eggjarauður
safi úr einni sítrónu
250g smjör (brætt)
salt og pipar
Eggjarauður settar f stál- eða
glerskál ásamt sítrónusafanum,
síðan er smjörið sett yfir til
bræðslu. Vatn er sett í pott sem
skálin nteð eggjarauðunum
passar ofan á. Síðan er vatnið
sett yfir til suðu og þeytt stöðugt
í eggjarauðunum þar til þær eru
orðnar þykkar. Skálin tekin af
pottinum og bræddu smjörinu
bætt smátt og smátt út í eggin
og stöðugt hrært í. Smakkað til,
salt og pipar.
Eggjasósan er borin fram með
laxaréttinum. Berið einnig fram
með hrísgrjónum og salati.
Silungur með
garðgrœnmeti
4 flök silungur
7 stk. rauðlaukur
7 stk. litil rófa
2 stk. gulrætur
6 stk. radísur
4-6 stk. kartöflur (fer eftir stærð)
2 msk. smjör
2 msk. mysa
2 msk. púðursykur
4 msk. rjómi
7 tsk. estragon
Saltog pipar
Grænmetið skorið í fína
strimla og lagt í smurt eldfast
form. Mysu og rjóma blandað
saman og hellt yfir grænmetið,
kryddað yfir með salti og
pipar. Bakað í heitum ofni í 7
mínútur. Silungsflökin bein-
hreinsuð og snyrt, kr)'dduð
með salti og pipar, lögð í fatið
með grænmetinu, smjör sett
yfir. Að síðustu er púðursykur
og estragoni stráð yfir og
bakað í ofni í aðrar 7 mínútur.
Slökt á ofninum og látið
standa í 7 mínútur. Borið
fram í forminu ásamt meðlæti
eins og til dæmi salati.
Kveðja, Jón Daníel
moli
Skógrækt í Skagafirði
Gríðarlega stórt og metnaðar-
fullt skógræktarverkefni í
Skagafirði er hafið á Brimnesi
þar sem ætlunin er að endur-
heimta hina fornu Brim-
nesskóga við Kolkuós.
Síðastliðinn föstudag lögðu
120 nemendur í grunnskólum
Skagafjarðar sitt af mörkum
með útplöntun á skagfirsku
birki.
Ætlunin er að planta út trjám
í 200 hektara svæði á næstu
árum, um 10 þúsund plöntum
á ári i 10-15 ár, og hefur verið
stofnað sérstakt félag í kringum
átakið, Brimnesskógar. Steinn
Kárason er framkvæmdastjóri
félagsins og segir hugmynda-
fræði á bak við verkefnið meðal
annars felast í því að skila nátt-
úrunni því sem tekið var frá
henni í öndverðu.
15. september
> Guörún Gunnarsdóttir og Friðrik
Ómar flytja perlur Ellýjarog Villa í
Sauöárkrókskirkju kl. 21.
17. september
> Staðarrétt í Skagafirði, stóðrétt hefst
um kl. 16.
> Skarðsrétt í Skagafirði, stóðrétt
hefst um kl 12.
> Gestum boðið I smalamennsku á
Laxárdal i Austur Húnavatnssýslu.
Grillveisla i reiðhöllinni Blönduósi og
réttardansleikur á Blönduósi.
17. -18. september
> Göngur og stóðréttir I Skrapatungu-
rétt.
> Snærisleikur (golf) á Hlíðarendavelli
við Sauðárkrók.
> Hörður G Ólafsson spilar á hínum
árlega stóðréttardansleik í Melsgili
þann 17. sept,
18. september
> Mælifellsrétt í Skagafirði, fjárrétt
hefst um kl. 13.
> Markaðsdagur I Varmahlíð i
Skagafirði.
> Bólstaðarhliðarrétt hjá Húnaveri,
stóðréttin er á milli kl. 13-17
> Skrapatungurétt I Laxárdal í Austur
Húnavatnssýsllu, stóðréttin hefst kl. 11
> Auðkúlurétt í Svínavatnshreppi í
Austur Húnavatnssýslu, stóðréttin
hefst um kl. 16
> Alexandra Chernyshova, sópran og
Gróa Hreinsdóttir, pianóleikari, halda
tónleika i Sauðárkrókskirkju kl. 16.
19. september
> Hliðarrétt i Vesturdal í Skagafirði,
fjárrétt sem hefst um kl. 9-11.
> Silfrastaðarétt í Blönduhlíð í
Skagafirði, stóðrétt hefst á milli kl.
8-10aðmorgni.