Feykir - 14.09.2005, Blaðsíða 2
2 Feykir 34/2005
Fyrr má nú aldeilis fyrr vera
Óvænt uppákoma í
Miðgarði
Hljómsveitin Á móti sól hélt á dögunum vel heppnað
ball í félagsheimiliu Miðgarði í Skagafirði. Söngvari
sveitarinnar, Magni Ásgeirsson, er Skagfirðingum
ekki með öllu ókunnur en bróðir hans er Áskell Heiðar,
sviðsstjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.
Heiðar er liðtækur bassa- U2 (Þú líka) slagaranum I Still
leikari þegar hann vill það við
hafa.
Tíðindamaður Feykis náði
þessari mynd af honum
einbeittum að plokka bassann í
Havn't Found What I'm
Looking For.
Magni snýr baki í salinn
enda á bróðir hans mómentið.
Leiðari
Nýr sjávarútvegsráðherra
EinarKr. Guðfinnsson, alþingismaður úr Bolungan'ík, tókí
liðinni viku við lyklavöldum í sjávarútvegsráðuneytinu afÁrna
Matthíssen, sem að mörgu leyti hefur reynst farsœll.
Breytingarnar eru hluti af athurðarrás er verður í kjölfarþess að
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins htettir í stjórn-
málum. Davíð er eftirminnilegur stjórnmálamaður. Hann
hefur mcðal annars staðið vörð um sjálfstœði þjóðarinnar í
utanríkismálum og hafnað aðild að Evrópusambandinu.
Feykir óskar nýjum ráðherra í Norðvesturkjördœmi til ham-
ingju. Einar hefur sýnt og sannað að hann er ötull talsmaður
hinna dreifðu byggða. Honum ber að vinna áfram að því að
skapa sem víðtœkasta sátt um sjávarútveginn ogstarfa með
hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.
Árni Gunnarsson
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Útgefandi:
Feykir ht
Skrifstofa:
Aöalgötu 21,
Sauðárkróki
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson, Áskell
Heiðar Ásgeirsson,
Guðbrandur Þorkell
Guöbrandsson, Herdís
Sæmundardóttir og Jón
Hjartarson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Árni Gunnarsson
arnig@krokur.is
Simi 455 7100
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
Pétur Ingi Björnsson
feykir@krokur.is
Simi 453 6001
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauöárkrókur
Askriftarvcrð:
210 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
250 krónur með vsk.
Sctning og umbrot:
Hinir sömu sf.
Prentun:
Nýprent ehf.
kennir söng og á píanó hjá
Tónlistarskóla Skagafjarðar.
Alexandra hefur haldið tíu
einsöngstónleika frá því að
hún kom til íslands fyrir
tveimur árum, í vor hélt fjóra
einsöngstónleika á Norður-
og Norðausturlandi, þá í
samvinnu við Zbigniew
Zuchowicz píanóleikar og
skólastjóra Tónlistarskólans á
Vopnafirði.
Síðustu tónleikar Alex-
öndru voru á Ljósanótt í
Reykjanesbæ núna í byrjun
september, undirleikari þar
var Gróa Hreinsdóttir.
Á efnisskrá er m.a.
kirkjutónlist frá 20. öldinni
og þekkt verk úr óperum og
óperettum, m.a. eftir Lehár -
Vilja Leid (Káta ekkjan),
Rachmaninov - Vocalise og
Bellini - Malinconia, Ninfa
gentile. Aðgangseyrir er kr.
1000, kr. 500 fyrir 16 ára og
yngri og eldri borgara.
Tónleikarnir hefjast kl.
16:00.
Malbikað á Skagaströnd
Framkvæmdir
á lokastigi
Framkvæmdum við mal-
bikun og viðhald gatna á
Skagaströnd er senn lokið
en undanfarið hefur verið
unnið að malbikun á plani
verslunar Samkaupa og
Olís.
Þá hefur einnig verið unn-
ið við malbikunarffamkvæm-
dir við höfnina og er þeim
nú lokið. Framundan eru
viðgerðir á götum á Skaga-
strönd en samtals er ráðgert að
15. september verða
tónleikar í Sauðárkróks-
kirkju sem bera heitið
„Perlur Ellýjar og Villa".
Á efnisskránni eru marg-
ar af þekktustu dægurlag-
aperlum þessara ástsælustu
söngvara þjóðarinnar í
flutningi Guðrúnar Gunnars-
dóttur og Friðriks Ómars við
undirleik Valgeirs Skagfjörð.
Tónleikarnir hefjast kl.
21:00 og er aðgangseyrir 1500
krónur.
Tonleikar
Perlur Ellýjar
og Villa
Hólar í Hjaltadal
Prestvígsla að Hólum
Sunnudaginn 18.sept-
ember kl.14 verður
vígsluathöfn í Hóla-
dómkirkju. Þá mun Jón
Aðalsteinn Baldvins-
son vígslubiskup vígja
Sólveigu Höllu Kristjáns-
dóttur guðfræðing til
prestsþjónustu við
Akureyrarkirkju.
Sr. Svavar A. Jónsson lýs-
ir víglsu. Vígsluvottar verða
sr. Gunnar Jóhannesson, sr.
Hannes Örn Blandon pró-
fastur, sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir og I3étur Björgvin
Þorsteinsson djákni. Kór
Akureyrarkirkju leiðir söng,
organisti Björn Steinar Sól-
bergsson. Meðhjálpari verður
Sigríður Gunnarsdóttir.
Sólveig Halla er frá Löngu-
hlíð í Hörgárdal, fædd árið
1977. Hún lauk embættisprófi
í guðffæði ffá Háskóla Islands
í febrúar 2004. Sólveig Halfa
hefur starfað s.l. misseri sem
æskulýðsfulltrúi við Akureyr-
arkirkju. Hún verður fjórði
prestur við kirkjuna en þetta
nýja embætti var auglýst með
sérstaka áherslu á barna- og
unglingastarf.
Síðast var prestsvígsla að
Hólunt íyrir fimm árum síðan
en eins og kunnugt er tára
flestar djákna- og prestsvígslur
fram í Dómkirkjunni í Reykja-
vík.
www. kirkjart. is/holar
Höfðahreppur verji um 20 framkvæmda. Myndina tók
milljónum króna til þessara Ágúst Þór Bragason.
Sauðárkrókskirkja á sunnudag___________
Alexandra Chernyshova
heldur tónleika
Alexandra Chernyshova, sópran og Gróa Hreinsdóttir,
píanóleikari, halda tónleika í Sauðárkrókskirkju næst-
komandi sunnudag.
Hilmar Jónsson, rithöf- milli söngatriða. Alexandra
undur kynnir og les eigin ljóð er búsett á Hofsósi. Hún