Feykir - 14.12.2005, Side 2
2 Feykir 47/2005
Magnús Magnússon fráfarandi sóknarprestur á Skagaströnd
Jólahugvekja
Mig langar að taka ykkur
með í smá hugleiðingu.
Hugleiðingu um þann
sjarma sem desember-
skammdegið hefur upp á
bjóða þrátt fyrir allt. Og
hvaða hugrenningatengsl
við trúna þessi skamm-
degissjarmi geturskapað.
Ég er að tala um þann
sjarma þegar sólin er sest og
kuldalegt kvöldið tekið við
völdum. Ský skyggir á stjörnur
og tungl. Dimma og drungi
leggjast yfir láð og lög. Jörðin
er auð. Hún kyndir þannig
undir dekkra kvöldi og nærir
nóttina á rneira myrkri. Það er
skammdegi og augsýnilegt að
skammdegið er skuggalegt í
öllu sínu veldi þegar allt er autt,
dimmt og kalt.
Skyndilega fellur snjór á
fold. Skýið léttir á byrði sinni.
Logndrífan svífur til jarðar eins
og fiður og gefur sér nægan
tíma til að íhuga hvar skuli lent
að þessu sinni. Á örfáum
augnablikum hefúr ásýnd
jarðar breyst að miklum mun.
Hin auða jörð sem endur-
speglaði dökka liti er ekki
lengur fýrir hendi. Landið er
nú litað hvítum, skærunt og
björtum litum. Almálaða
landið kastar skærri birtu sinni
tilmótsviðmyrkurnæturinnar.
Lengi vel má vart á milli sjá
hvort hefur betur, Ijósið eða
myrkrið. Þá gerist atburður
sem ríður baggamuninn.
Skýið, sem hafði málað
marauða jörðina, klofiiar í
tvennt. Fullur máni brýst fram
í allri sinni dýrð nteð óteljandi
stjörnur sér til fulltingis.
Tunglið varpar ljósi sínu yfir
fannhvíta jörðina, sem endur-
kastar henni til hintinsins. Það
myndast tengsl milli himins og
jarðar. Allt lýsist upp og verður
sent nýr og heiður dagur.
Skaparinn er í góðu skapi.
Hann er í sannkölluðu jóla-
skapi. Á einu augabragði hefur
hann breytt dintmri og
drungafúllri nótt vonleysis í
skýlausa birtustund vonar og
eftirvæntingar. Þannig vinnur
Drottinn Guð, skapari hintins
og jarðar.
Urn langan aldur hafði legið
myrkuryfir mannkyni, myrkur
sem einkenndist í raun og veru
af tilgangsleysi og vonleysi. Líf
mannkyns var autt, dimmt og
kalt. En ntitt í öllu vonleysinu,
eða fyrir 2000 árurn, sáu
vitringar í Austurlöndum
skæra og skínandi stjörnu
renna upp á himininn. Hennar
vegna varð dagljóst og ratljóst
til Betlehem, og það nýttu þeir
sér. Þar fundu þeir frelsarann
fæddan, Jesú Krist, ljós
heimsins. Guð hafði vitjað lýðs
síns í syni sínunt. Guði var svo
annt um sköpun sína og börn
sín að hann gaf son sinn
eingetinn, til þess að hver sá
ntaður sem á hann trúir myndi
ekki glatast heldur hafa eilíft líf.
Hann sendi ljósið til lýsa
myrkvuðu mannkyni og gefa
því von og tilgang nteð lífi sínu.
En myrkrið var ntikið, magn-
þrungið og áþreifanlegt. Það
vildi ekki taka á móti ljósinu en
reyndi í staðinn að fýrirkoma
því. Það voru tvísýnir tímar.
Ljós og ntyrkur mættust og
áttust við. Ljósið var fest á
kross og birtan fór dvínandi,
allt leit út fý’t'ir svanasöng þess.
Á þriðja degi þaðan í frá gerðust
undur og stórmerki. Ljósið
lýsti að nýju og af enn meiri
krafti en fýrr. Það lýsti af
sannkölluðum dýrðarljóma
eilífs lífs. Þannig gaf það
mönnunum von og trú á eilíft
líf og frelsi ffá synd og dauða.
Þannig vinnur Drottinn Guð í
syni sínurn, frelsaranum Jesú
Kristi.
Jólin eru að ganga í garð.
Kristnir menn búa sig undir að
taka á móti frelsara sínum.
Hátíðin, nú sem endra nær,
sækir misjafhlega að fólki. Það
er misvel búið undir að fagna
fæðingu frelsarans. Sumir eru
staddir á upplýstum hátindi
hamingju og gleði. Aðrir í
dimmum dal sorgar og þján-
ingar. Sumar fjölskyldur eru að
halda sín fýrstu jól eftir
nýstofitað samband eða
hjónavígslu eða eftir að nýr
einstaklingur fæddist inn í
fjölskylduna. Aðrar fjölskyldur
eru hins vegar að syrgja látinn
ástvin og halda sína fýrstu
jólahátíð án návistar hans. En
hvort sem menn eru staddir á
hamingjutindi, í hryggðar-
myrkri, eða mitt á milli, þá á
fagnaðarerindið unt fæðingu
frelsarans erindi til þeirra allra.
Það erindi gerir góða hamingju
að sannri hamingju og breytir
sárri sorg í huggunarríka gleði.
Það kveikir hjá okkur efhr-
væntingu, von og tilhlökkun
um það sem vændum er. Það
vekur þrá til þess hugsa hlýtt til
bræðra okkar og systra með
Irögglum eða bréfúrn. Fagnað-
arerindið gleður og huggar,
kveikir von og vekur þrá. Þannig
vinnur Drottínn Guð í huggar-
anum, hinum heilaga anda.
Megi Drottinn Guð gefa
okkur gæfúríka aðventu og
gleðilegjól.
Magnús Magnússon
Skagaströnd
Fyrsta skóflustunga
ao nýrri heilsugæslu
Jón Kristjánsson, heil-
brigðis- og trygginga-
málaráðherra, tók fyrstu
skóflustunguna að
byggingu fyrir nýja
Heilsugæslustöð á
Skagaströnd í gær.
Við sarna tækifæri undirrit-
aði ráherra verksantning um
hið nýja hús en það verður
reist austan við hús dvalar-
heimilisins Sæborgar og tengist
því með tengigangi. Húsið
verður 267 m2 timburhús,
byggt á steyptri grunnplötu
með sökkulbitum. Byggingin
hýsir skrifstofú læknis og
hjúkrunarfræðings ásamt til-
heyrandi aðgerða- og rann-
sóknarstofú, en þar er einnig
gert ráð fyrir sjúkraþjálfun, auk
móttökuog biðstofu.
Samkvæmt verksamningi á
húsið að rísa fyrir f. ágúst á
næsta ári. Nánar má lesa um
framkvæmdina á heimasíðu
Höfðahrepps skagastrond.is
Tignarlegur ránfugl
Fálki á förnum
vegi
íslenski fálkínn er
tignarlegurfugl. Þessi fálki
stillti sér á dögunum upp á
rafmangsstaur skammt frá
Efri Laxá í Svínavatns-
hreppi.
Ljósmyndari Feykis náði
að smella einni ntynd af
fálkanum rétt áður en hann
hóf sig til flugs eins og sjá má á
myndinni.
Mynd: ÁG
Blönduós__________________
Byggt upp eftir
brunann
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Áskell HeiðarAsgeirs- arnigtSkrokur.is Póstfang Feykis: Lausasöluverð:
Feykirhf son, Guðbrandur Simi4S57IOO Box4,550 250krónurmeð vsk.
Porkell Guðbrandsson, Sauðárkrókur
Skrifstofa: Herdís Sæmundardót- Blaðamenn: Setning og umbrot:
AðalgötuH, tir og Jón Hjartarson. Óli Arnar Brynjarsson Áskriftarverð: Nýprentehf.
Sauðárkróki Pétur Ingi Björnsson 210 krónur hvert
Ritstjóri& feykir@krokur.is tölublað með vsk. Prentun:
Blaðstjórn: ábyrgðarmaður: Sími 455 7175 Nýprentehf.
Árni Gunnarsson, Árni Gunnarsson
Stækkun er í undirbúningi á
húsnæðinu Votmúla á
Blönduósi. Byggt verður á
grunni þess hluta hússins
sem brann fyrr á árin.
Byggð verður 1.320 fer-
metra skemma á grunninum
sunnan við núverandi
byggingu. Þeir aðilar sem
munu nýta hið nýja húsnæði
eru LéttitæJcni sem er fýrir
með starfssemi í húsinu,
Vélsmiðja AUa á Blönduósi
og Blönduósbær en bæinn
vantar aðstöðuhúsnæði eftir
að RARIK keypti húsnæði
hitaveitunnar.
Byggingaraðili Votmúla
er Ámundakinn ehf, sem
einnig byggði viðbyggingu
fýrir ullarþvottastöð norðan
við Votmúla húsið.