Feykir - 14.12.2005, Side 20
20 Feykir 47/2005
Unnið við sjóvarnargarð í Fljótum
Margra ára baráttu við
náttúruöflin að Ijúka
Viðar á Hraunum, Fannar Viggós, Stebbi i Brautarholti og Feykir á Viðimel. Mynd ÖÞ:
Sauðárkrókur
Dregið í jólagetraun
Landsbankans
Undanfarnar vikur hefur
verið unnið að gerð sjó-
varnargarðs í landi jarðar-
innar Hrauna í Fljótum.
Markmiðið með fram-
kvæmdinni er að verja
svokallaðan Stakkarðs-
hólma fyrir ágangi sjávar.
Hólminn er á svokallaðri
Hraunamöl og í honum er
mikið æðarvarp árlega og hann
þarafleiðandigrýðarverðmætur.
Þarna var byggður tæplega 160
metra langur garður sem í fór
liðlega 2000 rúmetrar af grjóti,
en framkvæmdinni er ætlað að
(yrirbyggja að þarna verði land-
brot áfram. Það var verktaka-
fyrirtæki Fjörður sf. í Skagafirði
sem vann verkið sem er í
rauninni það fyrsta af þremur
álika þar sem síðar í vetur á
fyrirtækiðaðgerasjóvamargarða
við Haganesvík og Blönduós,
en þessi verk eru öll undir forsjá
Siglingamálastofnunar.
Viðar Pétursson bóndi á
Hraunum sagði að með þessu
væri margra ára baráttu hans
við landbrot vonandi að ljúka.
Það væri langt síðan sjógangur
hefði farið að vinna á hólmanum
og hann væri búinn að minka
mikið frá því hann var að alast
uppá Hraunum. Einna verst
hefði hann þó farið í ofsabrimi
2f september 2003 þá fóru hátt
í hundrað fermetra af
hólmanum. I janúar á þessu ári
gerði líka stórbrim og þá munað
sáralitlu að sjórinn græfi sér
nýjan fanæg inní Miklavatn við
hólmann að vestanverðu.
„Ég er búinn að láta keyra þarna
miklu efni á undanförnum
árum til að verja hólmann en
það hefur bara ekki dugað til. í
vetur varð ég að fá jarðýtu til að
loka rás sem brimið gróf þarna
og náði að loka henni áður en
vatnið sprendi sig fram í þessum
nýja fan’egi. Þetta er búið að
vera dýrt í gengum tíðina, en
landið þarna er líka dýrmætt.
Það hafa verið þarna að jafnaði
hátt í tvöþúsund æðarhreiður á
ári. Ég vona svo sannarlega að
þessi framkvæmd dugi til að
verja hólmann í framtíðinni“
sagði Viðar Pétursson. ÖÞ:
Þegar kveikt var á jólatréinu
við Kirkjutorgið 3.des sl. var
opið hús hjá Landsbanka
íslands. Eitt af því sem
gestum var boðið upp á var
að taka þátt í getraun.
Getraunin var þannig að sett
var ákveðin peningaupphæð í
krukku og síðan átti að giska
hversu mikið væri í krukkunni.
Enginn reyndist með alveg rétta
tölu upp á krónu en sá sem
komst næst því og er jafnframt
vinningshafi er Elín Árdís
Björnsdóttir nemandi í Árskóla.
1 krukkunni voru 31.205 eða
3.12.05 sem var dagsetning
þessadags. Elín giskaði á 31.250
og skeikaði aðeins 45kr hjá
henni. Á myndinni má sjá Ástu
Pálmadóttur útibússtjóra af-
henda Elínu Árdísi verðlaun, en
hún fékk 10 þúsund inn á
Framtíðargrunn hjá Lands-
bankanum og blómvönd.
Um leið og Landsbankinn
óskar Elínu hjartanlega til
hamingju þakkar bankinn
öllum þeim fjölmörgu sem
heimsóttu okkur þennan dag.
MYNDGATA
Mörgum þykja gátur al ýmsu tagi Hér er ein mögnuð myndgáta eftir grönnum og breiðum sérhljóða og Feykis, Aðalgötu 21, 550 Sauðár-
alveg bráðnauðsynlegar til að glíma Björn Björnsson. Taka skal fram einföldu og tvöföldu i-i. króki.
við yfir jól og áramót. að ekki er gerður greinamunur á Lausnir skal senda á póstfang Gangi ykkur vell