Feykir


Feykir - 28.12.2005, Blaðsíða 3

Feykir - 28.12.2005, Blaðsíða 3
48/2005 Feykir 3 Hilmir Jóhannesson skrifar um fyrstu skrefFeykis Ýmsir voru ungir þá Ritstjórn Feykis á tröppum Gamla barnaskólans, aðsetri Feykis til margra ára. Frá vinstri: Sigurður Ágústsson, séra Hjálmar Jónsson, Hilmir Jóhannesson, Jón F. Hjartarson, Sæmundur Hermannsson og Haukur Hafstað. í trausti þess að sagnfræðingar framtíðar skrifi sögu Feikis á aldarafmælinu, set ég á blað sundurlausar minningar úr frumbernskunni. Ég neita og harðneita að frásögnin sé kórrétt, svona man ég þetta og öllum sem lesa er heimilt að efast og leiðrétta. Sannleikurinn er sá aðfróður hef ég aldrei verið en ævinlega kjaftfor. Hins vegarfinnur engin þessi söguglimt, hversu smásmugulega sem leitað væri í upphafsblöðunum. Því flýg ég af stað líkt og hrafn, senr flöktir af kletta á staur og haug og lýsi því sem í hugann kemur, laus við tíma, staðsetningar, eða nákvæmni og málalengingar. Feykir var fæddur undir heillastjörnu, Baldur Hafstað fyrsti ritstjóri er einstakur, ekki aðeins afburða íslensku og smekkmaður.heldur ekki síður merkilegur eldhugi og svo mikill ljúflingur að þessi sundurleita ritnefnd sem fyrst réði, náði aldrei að koma meiningarmun á það stig að honum tækist ekki að draga okkur aftur að því marki að Blaðið væri merkilegra en einkaskoðanir okkar hvers fýrir sig. Á tímabili höfðum við þá reglu að borða saman í há- deginu eftir hvern útgáfudag og skipuleggja næsta blað. Einhverju sinni var Jón Ásbergsson kornin á undan okkur og með honum danskur viðskiptavinur, sem Jón lagði þá gestaþraut fyrir að þekkja sundur ritnefndina er hún kæmi á staðinn. Jón gaf upp starfsheitin á okkur - prestur, skólameistari, arkitekt og - byens klovn — þorpsfíflið — . Daninn réði rétt í Hjálmar Jónsson og Jón Hjartarson, þeir höfðu hálstau, en hélt að ég væri arkitektinn: „Han har træská pá,” sagði danskurinn. Þetta þótti okkur þremur skemmtilegt en Árni Ragnars- son hló ekki eins mikið. Sammála var ritnefndin um að nauðsyn bæri til að dreifa Feiki og menningu um Húna- vatnssýslur og því lögðum við í vesturveg bjartan sunnudags- morgun á nýlegum Volvó sem Jón Hjartarson átti og var ekki óánægður með. Nú skyldi stofna ritnefndir og finna dre)'fmgarfulltrúa eins víða og mögulegt væri, villtustu draumar náðu jafnvel )'(ir Siglufjörð líka. Við svifum af stað í fölbláa færleiknum uppfullir af menningaráform- um, framtíðin var sannarlega björt. Við vorum komnir fram að V ík þegar það rann upp fyrir okkur að öll framtíðarumræða væri óþörf. Miðað við hraðann á farartækinu virtist öl! okkat tilvera geta orðið nokkuð endaslepp. Bílstjórinn svaraði gagnrýni og aðfinnslum fullum hálsi og sagðist keyra svona hratt til að þagga niður kjaftaganginní okkur hinum, svo einhver tæki eftir því sem hann hefði til málanna að leggja. Kennarar eru vanir að fá að tala einir og mótmælalaust. Orðljótur farþegi bennti á að farsælast væri fyrir alla að hann héldi kjafti og hugsaði um aksturinn á 160 km. hraða. Til fróðleiks má rifja upp að þetta var um áratug fyrir malbik og bílbelti. Hjálmar Jónsson kom úr Reykjavík og vélaði mig til að sitja í hjá sér heinr á Krók, það væri skemmtilegra fýrir sig að hafa einhvern að kjafta við. Ekki man ég til að hafa sagt margt af viti á þeirri leið, enda tæpur tími, því hann var fljótari til baka en Jón Hjartarson vestur um morguninn. Öðruvísi mér áður brá, engiti tími að slóra, ýmsir voru ungir þá, óku á viðfjóra. Störfum við útgáfuna var skipt niður eftir hentugleikum, á tímabili sennilega eftir að Baldur hætti, sátum við ritstjórastólinn til skiftis, en ég held að Jón Ásbergsson - og Loðskinn - hafi annast áskrifendaskrá og innheimtu þó aldrei hafi verið hagnaður af þessum fjölmiðli. Á ýmsan máta vorum við samt á undan okkar samtíð, til dæmis man ég eftir ritnefhdarfundi sem haldinn var úti á lóð á Víðigrund 3, þar sem ákveðið var að reka ritstjórann, það var sannarlega eftir Baldurstíma. Við Hulda sáum urn dreifinguna hér í bæ, ásamt Baldri meðan hann var, en það er ágætis dæmi um ffamsýni og léttleika hans að oft var hann búinn með mest af blaðburðinum þegar við komum. „Ég skokkaði í þessar götur,” sagði hann og vissulega var það fyrsti skokkhópur hér, þó lítill væri, því hann hafði gjarnan aðra dóttir sína með í barnavagni á skokkinu og engan nútíma skokkara hef ég séð þannig hlaupandi. Auðvitað var þetta sjálf- boðastarf, en ritstjóranum var stundum borgað og alls ekki nema stundum og alltaf eins lítið og hægt var. Hitt er skyldugt að taka fram að sveitarfélagið og fyrirtæki gerðu fyrir okkur flest sem við báðurn um og hefur víst betl aldrei fengið eins hlýlegar undirtektir. Á þessum árum var ekki tölva á hverju borði en Kaupfélagið átti slíkt undra- tæki og þar var prentaður út nafnalisti, heimilisfang og póstnúmer á límmiða - alltaf frítt. Einnig bjuggum við árum saman við mjög vinveitta húsaleigu í garnla Bæjarþing- salnum. Pósturinn var okkur hag- felldur og Kári Jónsson var snillingur að finna billegustu lausn hverju sinni og væri þetta eJcki næstum söguleg upp- rifjun mundi ég halda því ffam að reikningarnir hefðu auð- veldlega getað verið feitari. Á þessum árum var Magnús Svavarsson ekki búinn að kaupa flutningadeild K.S. Hann annaðist flutninga til og ffá Akureyri, alltaf flutti hann Feyki frítt, fór með frumritið austur og kom með blaðið um kvöldið og þurfti aldrei að borga nema með brosi. Feykir eignaðist aldrei rit- vél, Sjúkrasamlag Sauðárkróks lánaði rafmagnsritvél þar til Guðbrandur Magnússon gerð- ist ritstjóri, hann var prent- lærður og átti tölvu þar sem hægt var að setja og brjóta blaðið svo prentunin var það eina sem gert var á Akureyri. Seinna tók Sást við prent- uninni og Guðbrandur tók við Mogganum - nei ég segi nú svona - en þetta er ekki vit- lausara en sumt hér ffaman við. Snemma á ferlinum tókum við upp "Oddvitann” sem var spekingur á baksíðunni. Hann lagði til gáfulegar setningar sem aðeins var hægt að mis- skilja, eins og flest spekimál í pólitíkinni. Misjafnlega gekk að leggja "Oddvitanum" orð í munn enda snilli rtinefndar oft niður undir frostmarki - vorum samt stundum heppnir, alveg óvart. Núna man ég tvo Oddvita sem komu gjörsam- lega áreynslulaust hjá rit- nefndarmönnum þegar þeir ætluðu hvorki að vera frumlegir eða skemmtilegir, enda til- efnin grafalvarleg. Vissulega tóku hlutaðeigendur ekki eftir þessu sjálfir, til að heyra Oddvitann í máli þeirra þurfti aðra úr ritnefndinni sem voru illkvittnari og námu spekina. Núna á tuttugu og fimm ára afmæli Feykis sé ég hvað þessar setningar lýsa vel frumbýlingsárunum og alveg laus við kerskni má nota sem einkunnarorð fyrir fyrstu ritnefndina, Sá fyrri er: - “Vandamálin stækka bara við að velta sér upp úr þeim”, - sá síðari: “Hlutirnir hafa tilhneygingu til að fara vel”. Hér get ég svo sett amen eftir efninu Hilmir Jóhannesson P.S. 1 síðasta blaði Feykis rangfeðrar séra Hjálmar vísuna: Sutnar og vetur saman frjósa... Þessi vísa er eftir Halldór Hafstað. LEIÐRÉTTING Mér urðu á þau leiðu mistök að fara rangt með fæðingardag afa míns í grein minni Minningarorð. Helgi Gunnarsson varfæddur 19. apríl 1908. Helgi Dagur Meðlagsgreiðendur Meðlagsgreiðendur, vinsamlegast gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað. INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA Lagmula 9 • 108 Reyk|avik • Kt. 530372-0229 • www.medlag.ls Simi 590 7100 • Fax 590 7101

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.