Feykir


Feykir - 28.12.2005, Blaðsíða 11

Feykir - 28.12.2005, Blaðsíða 11
48/2005 Feykir 11 Guðmundur Valtýsson skrifar_ Vísnaþáttur 420 Heilir og sælir lesendur góðir. Fyrst er til þess að taka að ekki var rétt númer á síðasta þætti. Átti hann að vera núnter 419 og bið ég þá sem halda þessunt pistlum saman að leiðrétta það. I þætti númer 417 spurði ég um höfund að eftirfarandi vísu. Skrattinn geldur skeiðið hans skuldar lield égfáum. Logar eldur andskotans undirfeldi gráum. Taldi ég að vísan væri kannski ættuð úr Skagafirði. Hef nú fengið þær upplýsingar að höf- undur hennar ntuni vera Baldur Eyjólfsson. Mun hann hafa verið bróðir þeirra kunnu systkina úr skáldastétt Höllu á Laugarbóli, Önnu á Steðja og Stefáns á Kleifum, þó að þau séu þar með ekki öll talin upp. Finnst eins og mig ntinni að Baldur hafi dvalið hér fyrir norðan og væri garnan að heyra frá lesendum ef þeir vita urn það. Er þessi þáttur er í smíðunt liggur fyrir að blað af Feyki mun konta út á ntilli jóla og nýárs. Er það hugsað sem afntælisblað vegna 25 ára útgáfu Feykis nú í vetur. Minnir mig að það hafi verið í mars 1981 sem fýrsta blaðið leit dagsins ljós. Ljóst er nú að vel var ráðið nteð þetta framtak. Værurn við hér á svæðinu fátækari í dag ef þess nyti ekki við. Svo til frá fýrstu tíð var vilji til að birta vísur í blaðinu. Var það reyndar dálítið laust í reipunum og kornu nokkrir aðilar þar að án þess að staldra lengi við. Laugardaginn 21. ntars 1987 var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að mér var boðið á árshátíð skagfirsku hestamannafélaganna sem þá var haldin í Miðgarði. Hitti ég þar rneðal annarra þáverandi ritstjóra Feykis, Ara Sigurðsson fá Holtsmúla. Deildi ég nokkuð harkalega á hann fyrir að setja ekki rnarkið hátt og koma á reglu með að hafa hafa fastan vísnaþátt í blaðinu. Sagðist Ari sammála mér í þessu en engan vissi hann urn sent vildi taka það verk að sér. Þar sem ég væri að gapa unt þessa hluti væri best að ég sýndi frarn á að það væri hægt. Neitaði ég því alfarið enda hafði mér ekki dottið í hug að taka að mér slíkt starf. Nokkrum dögum síðar töluðum við saman í síma og voru þá örlög mín og þáttarins ráðin. Og eins og áður hefur komið frarn birtist fyrsti þáttur minn í blaðinu 1. apríl 1987. Á þessari ljómandi góðu sam- kontu hjá hestamönnum í Skagafirði var meðal annarra dagskráratriða hag)Tðingaþáttur. Þeir sem tóku þátt í honurn voru Árni Gunnarsson, Flatatungu, Hjörleifur Kristinsson, Gils- bakka, Kristján Stefánsson, Gilhaga og Sverrir Magnússon, Efra Ási. Fékk ég leifi þessara ágætu hagyrðinga til að birta glefsur frá þessu kvöldi í mínum fyrsta hagyrðingaþætti. Ein af spurningum sem hagyrðingar fengu þetta kvöld var svohljóðandi: Ef þú ættir þess kost að vera önnur persóna í viku tíma eða svo, hvað kysir þú þér helst að vera? Kristján frá Gilhaga svaraði þannig. Sem lindin tœr er teigar sólar Ijós og tifar létt við sutnarfugla kliðitm. Hjalar við blómin, kyssir hverja rós, kemst niður að ánni, þá er vikan liðin. Árni í Flatatungu svaraði á þessa leið. Líftð rnyndi ég líta þá í Ijósi alveg nýju, sem graðhestur í hólfi hjá hryssum áttatíu. önnur spurningin var á þessa leið. Ef þú værir hestur nteð þá eðlislægu kosti sem ilestir leita að, í hvers klofi kysir þú helst að sýna þá? Sverrir í Ási svaraði með tveimur vísum. Á knapa hópi kann ei skil þó komist til að dœma. Upp þargera ekki vil og ekki tel það sœma. Ýmsir halda að sinnið sofi samt mun ekkifatast traust. 1 munaðarfullu meyjarklofi mundi ég skeiða endalaust. Er þátttakendur voru beðnir um að gefa einfalda lýsingu á samfundum hestamanna orti Kristján. 1 dýrðarljóma kveldsins er öll á burtu eymd og enginn milli vina ríkir þykkja. Þá dagur rís að nýju erugœðin óðargleymd og glcesihrossið aftur orðið bikkja. Ein af spurningum sem þessir ágætu hagyrðingar fengu þetta kvöld hljóðaið svo: Hvort telur þú vænlegra til landkynningar erlendis að flytja út íslenskan gæðing eða íslenskan reiðmann? Árni orðaði svo snjallt. Riddarar á roknaferð ríða nú um hreppinn Akra. Fyrir tnargfalt tnerarverð mœttiflytja út Jóa Vakra. Að lokum voru skáldin spurð um hvaða Skagfirðing þau mundu helst velja til að leika í kúrekamynd ef slíkt væri í boði? Sverrir Magnússon svarar því svo. Ingimars mun hœkka hróður hann nœr langt íþeirri grein. ívestrinu mun hann verðagóður villtur eins ogMorgan Kane. Eftir því sem mig minnir voru veislugestir nokkuð sammála um að þar var átt við hinn snjalla hestamann Ingintar Ingimarsson frá Flugumýri. Það síðasta úr þessari spyrpu er svar Hjörleifs á Gilsbakka. Kannski eru nokkrir setn koma hér til greina kunnugleika brestur mig, því er ekki að leytta. Efcetti ég að velja úr hestamönnumfyrírframan Akra mérfyndist engin spurning að velja Jóa Vakra. Gaman er af þessu tilefni að rifja upp þennan fyrsta þátt, sem undirritaður setti sainan. Ótrúlegt að svo lengi hafi lifað sá neisti er þá var kveiktur. Vona ég að blaðið haldi áfram að eiga sitt blómaskeið og haldi áfram að gleðja okkur Norðlendinga með, helst góðum, fréttum úr okkar byggðarlagi. Vona ég að við getum átt samleið enn um sinn. Óska ykkur velfarnaðar á nýju ári og bið ykkur að vera sæl að sinni. Guðtnundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi. S: 452-7154. Austur Húnavatnssýsla__ Verður tilbúið í maí 2006 Veiðifélag Blöndu og Svartár hefur óskað eftir tilboðum í smíði nýs veiðihúss (hótels) en eins og Feykir hefur greint frá annaðist Trésmiðjan Stígandi á Blönduósi vinnu við grunn og plötu. Húsið á að vera fullbúið 20. maí 2006. Ekki var rétt eftir haft þegar sagt var að veiðihúsið væri byggt í landi Hólabæjar. Það rís í landi eiðibýlisins Gunnsteinsstaða. Húsið verður timburhús, 703 fin á einni hæð. Verktaki skal skila húsinu fullbúnu og utan sem innan. Útboðsgögn eru seld á kr. 5.000 hjá Stoð ehfi, á Sauðárkróki. Tilboð verða opnuð 29. desember 2005. íþróttafréttir íþróttamaður Skagafjarðar Valinn í kvöld Kjöri Ungmennasam- bands Skagafjarðar á íþróttamanni Skagafjarð- ar árið 2005 verður lýst í Ljósheimum í kvöld, mið- vikudaginn 28. desember kl 20:00, en tíu íþrótta- menn hafa verið til- nefndir. Á sama tíma og sarna stað verður íþróttamanni Tinda- stóls árið 2005 veitt viður- kenning en eins og áður hefúr verið sagt ffá í Feyki þá er það körfúboltamaðurinn Svavar Birgisson sem hlýtur þá nafnbót í ár. Þá verður sú nýbreytni tekin upp í kvöld að öllum er velkomið að mæta og fylgjast með valinu. Eftirtaldir eru tilnefndir til íþróttamanns Skagafjarðar árið 2005 (í stafrófsröð): Bjarki MárÁrnason, Umf. Tindastóli, knattspyrna, Knattspyrnumaður UMFT árið 2005 EinarHelgi Guðlaugsson, Umf. Tindastóli, sund Sundmaður Tindastóls árið2005 Katrín Sveina Björnsdóttir, Golfklúbbi Sauðárkróks, golf íþróttamaður Golklúbbs Sauðárkróks árið 2005 Kári Steinn Karlsson, Umf. Tindastóli, frjálsar íþróttir Frjálsiþróttamaður UMFT árið 2005 Mette Mannseth, Hestamannafélaginu Léttfeta, hestaíþróttir íþróttamaður Léttfeta árið 2005 Oddný Ragna Pálmadóttir, Umf. Hjalta, frjálsar íþróttir íþróttamaður Hjalta árið 2005 Sunna Dís Bjarnadóttir, Umf. Neista, frjálsar íþróttir íþróttamaður Neista árið 2005 Sva var A tli Birgisson, Umf. Tindastóli, körfubolti Körfuknattleiksm. UMFT árið 2005 íþróttamaður Tindastóls árið 2005 Sævar Birgisson, Umf Tindastóli, skíði Skíðamaður Tindastóls árið 2005 Þórarinn Eymundsson, Hestamannafélaginu Stiganda, hestaíþróttir íþróttamaður Stíganda árið 2005 Hestaiþróttamaður Skagafjarðar árið 2005 smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar TAXI Ragnar Guðmundsson Gilstún 24 Heimasími 453 5785 Gsm 8976085 Hvert á land sem er! Hestamenn - hestamenn Nokkrir básar til leigu. Sé um fóður og hirðingu. Upplýsingar í síma 453 5558.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.