Feykir - 28.12.2005, Síða 7
48/2005 Feykir 7
og það kom á daginn. Borgin
kom virkilega á óvart enda af
ýmsum talin ein fegursta borg
Evrópu. Þarna er þrifalegt og
sífellt verið að lagfæra og
endurbyggja. Ef nýtt hús er
byggt inni í miðborginni er
framhlið þess jafnan í stíl við
aðrar byggingar svo að borgin
hefur ótrúlega vel samræmdan
heildarsvip. Fólk upp til hópa
kemur þannig fyrir í klæðaburði
og útliti, að hittum við það á
götu í Reykjavík myndum við
ekki sjá annað en það væru
íslendingar. En til að gera
ferðina jafn eftirminnilega og
raun bar vitni varþó mikilvægust
framúrskarandi leiðsögn og
skipulagningu Péturs Óla. Enda
kysstu hann allar konur að
skilnaði. Sjálfum finnst mér
þetta besta ferð sem ég hef farið
jafnlanga.
Péturhefurbúið í Pétursborg
í áratug eða svo, höndlar með
timbur og tekur á móti
ferðamönnum. Hann er mjög
vel að sér í sögu borgarinnar og
keisaraættarinnar og nefnir
sjálfan sig stundum í gamni
Pétur fjórða. Romanoffkeisar-
arnir urðu þrír með Pétursnafhi
og Pétur okkar því réttilega hinn
fjórði í röðinni.
Á flugvellinum í Pétursborg
stóð upp Þórarinn í Vogum,
Skagafjarðarmágur, áður við
yfirgáfúm rútuna og þakkaði
Pétri fýrir hönd ferðahópsins.
María kona hans, sem er frá
Hofi í Hjaltadal, kvaddi hann
svo að lokurn með vísu:
Hér í borg er Pétur mikli mestur
og merkja hans sér œrið víða stað.
En Péturjjórði okkar er þó bestur
eitda markið stíft oggagnbitað.
Hjalti Pálssonfrá Hofi
Glaðbeittir Skagtirðingar a kvöldbarnum é Hotel Moskva. F.v. Maria Pálsdóttir frá Hofi iHjaltadal, Erla Dviðsdóttir, Jónssonar frá
Ljótsstöðum, Jóhann Guðmundsson frá Hlið, Guðrún Rafnsdóttir á Sauðárkróki, Ragnar Björnsson frá Hólum.
Hitler gaf samt út þá skipun
haustið 1941 að borgin skyldi
brennd og um hana setið þar til
íbúarnir væru annað hvort
dauðir eða farnir á brott og
borgin hreinsuð út af landa-
kortinu. Upp úr miðju torginu
rís gríðarhá ferstrend súla með
ártölunum 1941-1943 en til
hliðar stórar bronsstyttur af
hópum fólks sitt hvoru megin.
Hinn 9. maí 1945 reistu
Rússar fána sinn á Reichstag,
þinghúsið í Berlín, og það er
dagurinn sem þeir telja endalok
stríðsins. En við teljum 8. maí
lokadag stríðsins. Nákvæmlega
30 árum síðar, 9. maí 1975 var
vígt minnismerkið um 900 daga
umsátrið. Þetta er frábærlega
vel gert minnismerki og
áhrifamikið. Hér logar alltaf
eldur, eilífðareldurinn.
Síðasti liður dagskrárinnar
var ferð á veitingastaðinn
Podvorja sem er margbrotið
bjálkahús eins og maður væri
korninn til Skandinavíu. Þar
beið okkar 5 rétta málsverður
þar sem við sátum í tvo og
hálfan tíma og vodki og rauðvín
eins og hver vildi. En það varð
hver að passa sig. Heimferðin á
hótelið tók talsverðan tíma
vegna þungrar umferðar,
„skálað og sungið” að hætti
Skagfirðinga á leiðinni og sagðar
sögur í hljóðnemann.
Til heiðurs Pétri leiðsögu-
manni okkar ffá Vindheimum
var borin fram sagan af
Markaleifa og fjármarkinu á
Vindheimum. Þaðerstífthægra
og gagnbitað vinstra og hefur
orðið ffægt vegna setningar sem
flaut af vörum Marka-Leifa.
Hann mætti eitt sinn Elínu
Sigmundsdóttur, þá ungri
stúlku, á hestbaki á förnum vegi
og spurði hvaðan hún væri.
Hún kvaðst vera ffá
Vindheimum. Hjörleifúr svar-
aði ekki strax en horfði á markið
á hesti heilnar og mælti svo:
„Stendur heima, stíft og
gagnbitað.“
Þriðjudagur 11. október
Nú var runninn upp
brottfarardagur. Veðrið hafði
leikið við okkur alla dagana, hiti
um 8-12 gráður og oftast
sólskin, en á þessum tíma er oft
slydda eða jafúvel farið að snjóa
í Pétursborg. Pétur skrapp með
þá sem fara vildu kl. 10 í
gönguferðyfiríþjóðargraffeitinn
sem er örskammt frá hótelinu.
K1 hálftólf stigum við í rútuna
og héldum áleiðis út á flugvöll.
Pétur vildi hafa tímann fyrir sér
ef umferðartafir yrðu á leiðinni
en svo reyndist ekki og vorum
við í góðum tíma á vellinum.
Flugstöðin í Pétursborg er
fi'n en fámennt þótti okkur þar.
En þrjú öryggishlið þurftum við
að ganga í gegnum með pípi og
rneira að segja fara úr skónum.
Flogið var af stað rúmlega
tvö að staðartíma og kornið til
Kaupmannahafúar fyrir tvö að
staðartíma. Fórum við svo
nokkur með lestinni inn í
borgina og þrömmuðum í
tilgangsleysi um Strikið en
fengum okkur þó að borða.
Margir þekkja Strikið, þessa
aðalgöngu- og verslunargötu
Kaupmannahafnar. En fyrir þá
sem ekki hafa komið þangð má
lýsa henni þannig: Hún er ekki
lengri en svo að venjulegur
karlmaður gengur hana á 15-20
mínútum en ef konur leggja þar
leið sína rná reikna með 4-6
klukkutímum.
Á tíunda tímanum lentum
við í Keflavík og kuldasveljan
tók á móti okkur, fr ost og smáél.
Þá var ekki annað eftir en
kveðjast og hver hélt heirn til
sín. Þessi litli hópur hafði
blandast vel og allir ákaflega
ánægðir með ferðina. Pétur
nefndi það í upphafi ferðar að
e.t.v. myndi hún breyta áliti
okkar og viðhorfi til Rússlands
SAMVINNUBOKIN og KS-BOKIN
Tveir ffóðir kostir
til ad ávaxta
spariféð þitt
KS-bókin cr með 3,7H/o vexti,
bundin í 3 ár og verðtryggð
ScUTivinnubókin cr með lausri bindingu,
nafnvextir 8.5%, ársávöxtun 8.68%
Hafið þið séð betri vexti?
Innlánsdeild KS
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR Sérfræðikomur í janúar
VIKA 2 Haraldur Hauksson, æðaskurðlæknir
VIKA 3 Bjarki Karlsson, bæklunarskurðlæknir VIKA 4 Edward Kiernan, kvensjúkdómalæknir VIKA 5 Sigurður Albertsson, skurðlæknir Tímapantanir í síma 455 4022
. ? Llatflll- I SSd,Sfof""m"