Feykir - 28.12.2005, Síða 8
8 Feykir 48/2005
Jón F. Hjartarson, Hjálmar Jónsson og Stefán Árnason með glóðvolgan Feyki i Prentsmiðju Odds Björnssonar á Akureyri.
Björn Björnsson stiklar á stóru í 25 ára sögu Feykis
Feykir á
tímamótum
Þau tímamót urðu í menningarlífi Skagfirðinga föstudaginn
10. apríl 1981, að fréttablaðið Feykir kom út í hið fyrsta sinn.
Efst á forsíðu, framan við nafn
blaðsins er á áberandi hátt bent
á að hér er á ferð “Frjálst og
óháð fréttablað” og að skag-
firskum sið er þetta sjónarmið
áréttað frekar með hringhendu,
aftan við nafn blaðsins, þar sem
nafnið og ritstjórnarstefnan
birtist í hnotskurn:
Menning eykur eflaust hér,
er það veikutn styrkur.
Blaðið Feykir fréttir ber,
forðast reyk og myrkur.
Ekki er getið höfundar, en hér
fer ekki á milli mála að stefnan
er sett á að halda uppi
menningarlegri umræðu, flytja
fréttir, vera málsvari þeirra sem
eiga undir högg að sækja og
síðast en ekki síst, að skoða
hlutina í réttu og björtu ljósi.
Þá er á forsíðu boðað til
stofnfundar hlutafélags um
útgáfu blaðsins, og til þess að
væntanlegir hluthafar fari ekki í
grafgötur um markmið fél-
agsins, eru birt drög að
stofnskrá. Stórhugur aðstand-
enda leynir sér ekki því í 2. gr.
draganna kemur fram að:
„Tilgangur félagsins er að gefa
út óháð fréttablað á Norður-
landi vestra”
1 næstu greinum koma fram
tillögur um kosningu ritnefndar
og ráðningu ritstjóra að blaðinu,
og einnig að ritnefndin beri
ábyrgð á að útgáfa blaðsins sé
óháð, vönduð og opin fyrir
ólíkum viðhorfum til bæjar-
sveitar- og landsmála.
Svo sem ráð var fyrir gert fór
stofnfundurinn fram, og gerð er
grein fyrir því í 2. tbl. frá 22.
maí, stjórn kjörin, en hana
skipuðu Hilmir Jóhannesson
mjólkurfræðingur, sr. Hjálmar
Jónsson sóknarprestur og Jón
Fr. Hjartarson skólameistari,
enda þessir að öðrum
ólöstuðum aðalhvatamenn að
stofnun blaðsins.
Fór Jón skólameistari fyrir
stjórninni.
Ljóst var að ráða þurfti þegar
ritstjóra að blaðinu, en þar til að
slíkur starfsmaður fengist, kall-
aði útgáfustjórnin til samstarfs
þá Árna Ragnarsson arkitekt og
Jón Ásbergsson framkvæmda-
stjóra, en þeir ásamt stjóminni
mynduðu svokallaða Forstöðu-
nefnd, sem sá um alla efhisöfl-
un og skrif í blaðið að sinni.
Að sögn eins úr hópnum
hittist Forstöðunefndin öll, eða
að liluta nánast daglega þessar
fyrstu vikur, en því miður mun
fátt vera til bókfært varðandi
umræður eða ákvarðanir sem
teknar voru á fundum þessum.
Þó er tiLbókað að á fundi þann
25. maí er samþykkt að ráða
Baldur Hafstað kennara sem
ritstjóra Feykis, og þegar 3. tbl.
kemur út þann 24. júlí er
ráðning ritstjórans kynnt og
það með að hann muni hefja
störf í september. Frá þeim tíma
muni blaðið einnig koma út
hálfsmánaðarlega.
Gera má ráð fyrir að
stjórnarformaður hafi haft
hönd í bagga varðandi ráðn-
inguna, enda um starfsmann
hans við Fjölbrautaskólann að
ræða, svo að heimatökin hafa
verið hægari.
Sjálfsagt verður seint metið
til fulls hversu vel tókst til með
ráðningu ritstjóra, til þess að
leiða þennan unga og óreynda
fjölmiðil fyrstu skrefin í átt til
áhrifa og vinsælda.
Ljóst var að aðstandendur
Feykis ætluðu þegar í stað að
láta til sín taka, því að í 1. tbl. er
viðtal við formann Útvarpsráðs,
Vilhjálm Hjálmarsson, sem
einmitt var þá gestur á Sæluviku,
ræðumaður á kirkjukvc'ildi, og
ijallar Vilhjálmur m.a. um gildi
landsbyggðarblaða og talar þar
af áratugareynslu af útgáfu-
málum á Austurlandi.
Þrátt fyrir mynd inni í
blaðinu, sem sýnir landfastan
hafís við fjöruna framundan
húsunum við Sæmundargötu,
er enginn sífreri í menningar-
málaumræðunni og Jón Ás-
bergsson ritar hugleiðingu þar
sem m.a. er drepið á varðveislu
gamalla húsa, og segir þar:
„Menning og minjar eiga ekki
einungis að vera inni á söfnum
—“ þannig segir Jón að garnla
sýsluhesthúsið niegi aldrei
hverfa og telur að hvorki gestir
Búnaðarbankans eða Safiia-
hússins muni setja ofan þó að
þeir endum og sinnum reki
tærnar í hrossatað. Þá er
opnuviðtal við Árna Ragnars-
son um skipulagsmál á Sauð-
árkróki og í Skagafirði.
Þegar í næstu blöðum er sótt
efni til nágrannabyggðanna, þ\n
að frétt er um að: „Skriður er að
komast á hafnargerð á Blöndu-
ósi, en lítið hefur miðað í
áratugi”, og tíðindamaður
blaðsins á Siglufirði kveður fast
að orði í rammafrétt á baksíðu
sem ber yfirskriftina: „Göturnar
á Siglufirði,- engin hliðstæða í
samanlagðri kristni”.
f september tekur svo Baldur
Hafstað til starfa og um leið
kemst betri regla á útgáfu-
dagana, sem verða hálfsmán-
aðarlega svo sem ætlað var.
Pálína á Melana
Ritstjórinn er vel vakandi
varðandi allt sem fféttnæmt er
úr kjördæminu, og fljótlega
birtist opna þar sem fjallað er
um atvinnumálin og rætt við
marga tíðindamenn. Eyjólf
Konráð Jónsson alþingismann,
Lárus Ægi Óskarsson á
Skagaströnd, Garðar Svein
Árnason á Hofsósi, Þórð
Skúlason á Hvammstanga,
Stefán Guðmundsson á Sauðár-
króki, Ingimund Einarsson á
Siglufirði og Hilmar Kristjáns-
son á Blönduósi. Verður viðlíka
úirferð um þennan málaflokk
nánast að föstum lið í blaðinu
með mjög reglubundnu niilli-
bili.
í jólablaðinu eru viðtöl við
Jón Björnsson tónskáld og
söngstjóra, séra Pétur Ingjalds-
son og Jóhann Má Jóhannsson
bónda og sldpasmið og í
örstuttu spjalli með mynd inni í
blaðinu segir Pálína á Skarðsá:
„Ég ætla á Melana næsta
sumar”.
Annað starfsár sitt hefur
blaðið á þeim sömu nótum sem
lagt var upp með í byrjun,
gamni og alvöru í bland, því í
opnuviðtali er spjall við Elías B.
Halldórsson, einn örfárra og ef
til vill eina starfandi alvöru
listamálarann utan höfuð-
borgarsvæðisins, og ljallar Elías
þar um lif sitt og list og drepur á
það hvernig til takist að lifa af
listinni á landsbyggðinni. Aftar í
blaðinu er svo heilsíðuviðtal við
Árna Gunnarsson frá Reykjum,
sem ber yfirskriftina: „Kerlingin
er tafsöm og torsótt til uppá-
ferða” og má Árni þar tala af
reynslu, eftir margar ferðir til
Drangeyjar, og uppgöngu á
dranginn Kerlingu við eyna. í
byrjun febrúar ber einna hæst
að knattspyrnudeild Tindastóls
ætlar sér að gera góða hluti á
næsta sumri, því liðinu er nú
að berast verulegur liðsauki og
eru þar nefndir til sögu
Hermann Þórisson, Fljótamað-
urinn Gústaf Bjömsson, sem
gerði garðinn frægan með
meistarflokld Fram, og síðast
en ekki síst Akureyringurinn
Árni Stefánsson, fyrn'erandi
landsliðsmarkvörður og Fram-
ari, sem er að flytjast heim eftir
atv'innumennsku hjá sænskum.
Ekki virðast sem önnur lið í
kjördæminu séu farin að huga
verulega að keppnistímabili
komandi sumars.
Þann 26. febrúar slær blaðið
upp forsíðuffétt: „Hagkaup
fékk grænt ljós bæjarráðs til
verslunarreksturs á Sauðár-
króki”, boðuð er bygging nýrrar
og glæsilegrar sundlaugar á
Hvammstanga og tíðinda-
maður blaðsins á Blönduósi er
undir verulegu álagi, jafnvel
þjakaður af skemmtanahaldi:
„- og dynja nú árshátíðirnar yfir
og hvert þorrablótið rekur
annað.”
Stefán Árnason og Þuriður Harpa Sigurðardóttir við uppsetningu á Feyki á Sást.