Feykir - 28.12.2005, Page 10
lO Feykir 48/2005
Jóhannes S. Kjarval. Málaói altaristöfluna sem þótti vera sögufölsun.
Sauðárkrókur
Stvttist í þrítugustu
íbuðina hjá Búnöldum
Enn er byggt af fullum krafti
á vegum Byggingafélagsins
Búhölda á Sauðárkróki og
styttist nú í að þrítugasta
íbúðin á vegum félagsins
verði afhent.
Eins og áður hefur komið
fram í Feyki hafa Búhöldar
byggt við göturnar Forsæti og
Hásæti sem eru skammt ofanvið
Sjúkrahúsið Króknum. Nú er
svo komið að ekki eru tiltækar
lóðir sem má byggja á við þær
götur og því eru nú tvö hús í
bygginguviðgötuna Laugartún
sem er í ffamhaldi af Hásætinu.
Að sögn Þórðar Eyjólfssonar
formanns Búhölda er stöðug
eftirspurn eftir að komast inní
félagið og eignast íbúðir í
hverfinu. Ibúðirnar sem
Búhöldar byggja eru 101 ferm.
að stærð ásamt 28 ferm. bílskúr
og kosta fúllfrágengnar um 15
miljónir króna. Þetta eru
timburhús tvær íbúðir eru í
hverju húsi og bílskúrarnir á
milli íbúðanna og er því nánast
eins og um einbýlishús að
ræða.
Nú er unnið að krafti við
íbúðir 29 og 30 og sagðist
Þórður vonast til að þær verði
aíhentar í mars á næsta ári. Þá
bíður tilbúin gólfþlata fyrir
næstu tvær íbúðir, en þetta
nægir enganveginn til að anna
eftirspurninni að sögn Þórðar.
Það er Trésmiðjan Björk sem
byggir fyrir Búhölda og hefur
gert nánast ffá því félagið byrjaði
starfsemi áárinu2000. ÖÞ:
Afmæliskveðja til Alþýðulistar___________________
Handverk er ekki
bara handverk
Kveðja til Alþýðulistar, félags handverksfólks í Skagafirði, á 10
ára afmæli félagsins
Þið sem þekkið svo vel hvernig hugmyndir mótnst
þróast í hljóði, i höföitm velkjnst og brjótast.
Tilraun á tilraun ofan unsfarvegþœrfmna
taka á sig mynd sem lýsir svo til okkar hinna.
Okkur þið eruð svo miklu meira en þið haldið.
Sem orkuver landsins, þið straumhvörfum stöðugt valdið;
Því handverk er hugverk ogþetta er hlutverk þess mœtast:
það hvíslarsvo Ijúft: “Láttu draumana þína rœtast!"
Því andann nœrir annarra sköpun að skoða.
öllum erhvatningsá kraftur sem framkvœmdir boða.
Hendursem vinna úr hugans leiftrandi myndum
hinafœrirað lífsins flœðandi lindum.
Aldrei látið því af að skapa og móta!
Áfram loftð okkur að neyta og njóta!
Með kærri kveðju og framtíðaróskum, desember 2005,
Anna Margrét Stefánsdóttir
Undir Borginni - Rúnar Kristjánsson skrifar
Hofdala-Jónas
Þegar ég á leið yfir
Héraðsvatnabrúna fremri,
er það vani minn að hugsa
hlýtt til Hofdala-Jónasar.
En af hverju sérstaklega
þar?
Jú, vegna þess að Jónas
dvaldi í skúr þarna við brúna,
Blönduhlíðar megin, í hátt í
tvo áratugi. Þar sinnti hann
hliðvörslu sem starfsmaður
mæðiveikisvarna og gladdi
mann og annan með líflegum
kveðskap og héraðsvænum
mannkostum. Það þótti
mörgum gott að koma að
Brúarvöllum í þá tíð, eins og
skúrinn hans Jónasar var
nefndur, og ekki vantaði að
vísur færu á flug, þarna við
brúarsporðinn. Það sem gerir
þennan stað enn gróskumeiri
í mínu hugartúni, er að þarna
mun Jónas hafa ritað að
mestu endurminningar sínar
og þær eru mikils virði og
segja margt urn mannlíf fyrri
daga. Ekki get ég annað
fundið en Jónas greini vel frá
mönnum og málefhum og
vænt þykir mér um þessa bók
hans sem þeir kapparnir
Kristmundur á Sjávarborg og
Hannes Pétursson sáu um
útgáfu á. En sem sagt, þegar
ég á leið þarna um, hugsa ég
hlýtt til höfðingjans sem
dvaldi þarna í skúrnum,
sennilega í fýrsta sinn nreð
aðstæður til að sinna
hugðarefnum í brag og bögu
- og sögu.
Mikið var gott að hann
skyldi geta notið sín þarna og
skilað ffá sér þessari ágætu
lífssögu. Og sem fýrr segir,
enginn var svikinn af því að
hitta Jónas þarna á sínu
andans óðali:
Létt við alla er litu inn
lét hann gjalla strenginn sinn,
bögusnjallan bragleikinn,
Brúarvalla höföinginn.
Einhver skagfirskur mynd-
höggvari hlýtur að vera til
sem getur höggvið til stein í
minningu Jónasar. Þeim
steini rnætti koma fýrir sem
næst þeim stað þar sem skúr
hans stóð. Það væri notalegt
að geta staldrað þar við, hjá
slíkum minningarsteini, og
hugleitt líf sem var og líf sem er.
Ekki væri verra, að höggvin
yrði í þann stein hin
skemmtilega vísa Jónasar:
“Bregst ei þjóð á Brúarvöllum
Braga-glóð - sem aldrei dvín,
en skagfrskt blóð er í þeim öllum
sem ehkafljóð ogdrekka vín."
Hofdala-Jónas lagði sitt-
hvað inn í mannlífið á sinni tíð.
Hann var maður sem kunni
bæði að skemmta sjálfum sér
og öðrum.
Erþeysa tnennfagnandi
um grundirnar grænu
oggrípa upp fleygana
léttir á brá,
Hofdala - Jónasar
vísurnar vœnu
verð alltafkveðnar
af syngjandi þrá.
Hann orti bögur
með braglétta tóna,
bögur sem alls staðar
gleðinni þjóna!
********
Rúnar Kristjánsson
gómsætt gott
^ hjá/Jóní/Vouv ^
Nú verða gefhar uppskriffir
að tilvöldum smáréttum til
að hafa í áramótateiti.
Fylltar tortillur
1 pk mexíkanskar hveitikökur
Itortillur)
1 bakki klettasalat Iruccola)
200 g reyktur lax
1 krukka guacamole
1 krukka ostasósa (mexíkósk)
Þá eru tortilla-kökurnar hitað-
ar á þurri pönnu, reykti laxinn
skorinn í sneiðar. Síðan er
sósunum smurt á kökurnar,
reykti laxinn lagður þar ofan á
og klettasalatið ofan á laxinn
og vafið þétt upp í lengjur.
Skorið í hæfilega bita og sett á
fat. Athugið að hver biti á vera
um það bil góður munnbiti.
Melónupinnar
1/2 cantalopumelónur
1 -2 bréfþurrkað hangikjöt frá
Kjötkróki
1-2 bréfhrá skinka frá Kjötkróki
Melónan er skorin í litla bita
eða kúlur. Hangikjötið og
skinkan er vafið utan urn
melónubitana og tannstöngli
eða pinna stungið í gegn.
Mozzarella snittur
1 stk Snittubrauð
4 stk tómatar
2 stk Mozarella-kúlur
1 bakki klettasalat
1 krukka pestó Itegund eftirsmekk)
4 msk smjör
Snittubrauðið er skáskorið og
ristað á heitri pönnu upp úr
smjörinu. Tómatarnir og
mozzarellan skorið í sneiðar
og síðan er klettasalatið,
tómatarnir og osturinn raðað
á brauðsneiðarnar í þessari
röð. Hálf til ein matskeið af
pestói sett á toppinn! Vola!
Ostasalat
1 stk mexikó-ostur
1 stk pipar-ostur
1 stk brie-ostur(t.d. Bóndabríe)
1 stk blaðlaukur Ihvíti hlutinn)
1/2 rauð paprika
1/2 gul paprika
20-30 stkblá vínber
20-30 stkgræn vínber
1 lítil dós mayones
1 dós sýrður rjómi
Ostarnir skornir í litla bita,
paprikan og blaðlaukurinn
eru einnig skorin í svipaða
stærð og osturinn, vínber
skorin í tvennt og steinar
teknir. Öllu blandað saman í
skál, mayonesið og sýrði
rjóminn hrært útí. Látið
standa í kæli í a.m.k. sex tíma.
Gott að bera ffam með til
dæmis snyttubrauði eða kexi.
Heit ídýfa
1 dóssalsasósa
1 dós rjómaostur (hreinn)
1/2 poki rifinn ostur
Salsasósan og rjómaosturinn
er hrært saman og sett í eldfast
form. Ostinum stráð yfir og
bakað í oíhi. Borið ffam heitt
með til dæmis tortilla flögum.
Gleðilegt dr
og takkfyrir það gamla,
Jón Daníel
reyni sig við uppskriftir Jóns. Hrá-
efhið sem Jón Dan notar er hægt að
nálgast í Skagfirðingabúð.