Feykir - 04.01.2006, Síða 2
2 Feykir 01/2006
Flugeldalaust fyrir þrettándann ?_
Þurftu að sækja
flugelda til Akureyrar
Metsala var á flugeldum í
Skagafirði fyrir þessi ára-
mót. Flugeldar hjá björg-
unarsveitunum og skátun-
um seldust upp og þurfti að
sækja viðbóttil Akureyrar.
„Salan var vægast sagt mjög
góð hjá öllum þeim aðilum sem
voru að selja flugelda hér í
Skagafirði,” segir Kristján
Jónsson hjá Skátafélaginu
Eilífsbúum en skátarnir og
Skagfirðingasveit á Sauðárkróki
voru í samstarfi um flug-
eldasölu.
„Við seldum íyrir um
rúmlega 3 milljónir króna og ég
geri ráð fyrir að Flugbjörg-
unarsveitin í Varmahlíð hafi
ekki selt fyrir mikið minna,”
segir Kristján.
„Við fórum til Akureyrar til
að ná í meira flugeldum og á
gamlársdag yfir í Hofsós og
sóttumþaðsembjörgunarsveitin
Grettir átti. Ég held að
Flugbjörgunarsveitin í Varma-
hlíð hafi einnig þurft að sækja
meira af flugeldum út fyrir
héraðið,” sagði Kristján
Gamlársdagshlaupið á Sauðárkróki
Frábær þátttaka
Gamlársdagshlaupið fór
fram á laugardaginn í blíð-
skaparveðri enda
fjölmenntu hlaupagikkir til
leiks.
Að sögn Árna Stefánssonar
voru þátttakendur um 185
talsins, sem er 62 fleiri en mest
hefur áður verið. Hlauparar
fóru reyndar mishratt yfir -
enda var aðalmálið að vera með
að þessu sinni.
Leiðari
Verð á matvöru
Uimœða um hátt matvœlaverð er tekin tipp í fjölmiðlum á ís-
landi með 2-3 ára millibili. Igamla daga yfirleitt að frumkvœði
Alþýðuflokksins eða DV en nú hefur hin nýja Samkeppnis-
stofnun blandað sér í slaginn og boðar lœkkun matvœlaverðs.
Sro vill til að innlend matvœli eru orðin lítill liluti afútgjöldum
heimila. Því verðtir að segja Samkeppnisstofnun og öðrum
vinum okkar neytenda til.
Reiknistofa bankana er einokunarfjrirtœki í eigu banka. Þarer
ein gjaldskrá og bankamir skipta á milli sín milljarða hagnaði.
Barflugur vita að verð á drykkjum ersamrœmt milli öldurhúsa.
Flöskubjór kostar 3 kr. íframleiðslu en 700 kr. á bar. Engin
sýnileg samkeppni er í fargjöldum innanlands. Gjaldskrá
rikiseinokunarfyrirtœkja á sviði eftirlitsiðnaðar iýtur engum
samkeppnislögmálum. Matvöruverslun er á fákeppnismarkaði.
Hvað mcð olíufélögin?
En auðvitað erþœgilegast að berja á þeim sem bcrja ekki til
baka.
Árni Gunnarsson
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi:
Feykir hf
Skrifstofa:
Aðalgötu21,
Sauðárkróki
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson, Áskell
Heiðar Ásgeirsson,
Guðbrandur Þorkell
Guðbrandsson, Herdis
Sæmundardóttir og Jón
Hjartarson.
Ritstjóri&
ábyrgðarmaður:
Árni Gunnarsson
arnigtSkrokur.is
Sími 455 7100
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
Pétur Ingi Björnsson
feykir@krokur.is
Sími 455 7175
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Áskriftarverð:
210 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
250krónurmeð vsk.
Setning og umbrot:
Nýprent ehf.
Prentun:
Nýprent ehf.
Fyrsta starfsár ístex á Blönduósi
Þvotturinn hefur gengið vel
Nú fyrir jólin var rétt ár
síðan ullarþvottastöð ístex
varformlega opnuð á
Blönduósi. Af því tilefni var
Ragnar Heiðar Sigtryggs-
son vaktstjóri í verks-
miðjunni spurður hvernig
hefði gengið þetta fyrst
starfsár á Blönduósi.
„Ég tel að þetta hafi bara
gengið mjög vel og engar
verulegar bilanir komið upp.
Við erum búin að vinna upp
ullina sem safnaðist fyrir þetta
eina og hálfa ár sem enginn
þvottur var. Það getur að vísu
leynst einhversstaðar eitthvert
smáræði sem kemur þá í
vetur með nýju ullinni. Við
stoppuðum stöðina í mánuð í
byrjun vetrar. Þá var búið að
þvo fjórtánhundruð tonn síðan
Vaktstjórarnir hjá ístex við ullarstæðuna
Guðmundur Svavarsson i Öxl I tv/. og
Ragnar Heiðar Sigtryggsson i Bakkakoti.
Þeir eru báðir sauðfjárbændur. mynd ÖÞ:
stöðin opnaði. Á meðan stöðin
var stopp fórum við í viðhald
á tækjum og búnaði, það er
óhjákvæmilegt annað en dytta
að áðuren næsta töm byrjar“
Ragnar segir að eftir ára-
mót fari aftur í gang vaktakerfi
við þvottinn og þá verður
þvegið á tveimur 10 tíma
vöktum á sólarhring, fimm
daga í viku. Áætlað er að þetta
fyrirkomulag verði til apríl
loka. Þá verði farið aftur á eina
vakt og svo verði væntanlega
lokað í einn mánuð næsta
sumar vegna sumarleyfa. Þegar
vaktafyrirkomulagi er starfa
tíu manns í þvottastöðinni en
annars 6-7.
I samtali við Guðjón Krist-
insson ffamkvæmdastjóra Istex
kom ffam að hann var mjög
ánægður með þann mannskap
sem starfar á Blönduósi og
hvernig stöðin hefur gengið
þetta fyrsta starfsár þar. Hann
sagði að flutningurinn hefði
orðið kostnaðarsamur en það
hefði líka verið lagað ýmislegt
jafnhliða flutningnum og sjálf-
virkni aukin í stöðinni. ÖÞ:
wSkrilsloliisljóri
Sparisjóðs
Skagafjai*ðar
Sparisjóðirnir eru þekktir fyrir persónulega
þjónustu sem byggist á þörfum heimamanna
og næmum skilningi á því umhverfi sem
þeir starfa f, enda eign heimamanna og
ákvarðanavaldið í Héraði.
Til að fylgja þjónustumarkmiðum sínum enn
frekar eftir auglýsir Sparisjóður Skagafjarðar
nú eftir skrifstofustjóra.
Sparisjóður Skagafjarðar
er franisækinn banki
í heimabyggð
sem stefnir að
framúrskarandi l>jónustu
við viðskiptavini sína
í béraði
okkur Skagíirðingum
til liagsbóta og velsældar.
Helstu verkefni:
• Umsjón með sölu og markaðsmálum
Sparisjóðsins og Sjóvá
• Samskipti og sala
til viðskiptavina Sparisjóðsins og Sjóvá
• Umsjón skýrslugerða til opinberra aðila.
• Viðskiptagreiningar og ýmiss verkefni í
samráði við Sparisjóðsstjóra
Hæfniskröfur:
• Staðbundin þekking á viðskiptalífinu og
metnaður fyrir liönd Héraðsins
• Áliugi og þekking á sölu
og markaðsmálum
• Viðskipta og eða
rekstrarfræðimenntun
• Reynsla af bankastörfum
• Framúrskarandi frumkvæði
og samskiplahæfni
• Geta til að selja
Nánari upplýsingar gefur Kristján B. Snorrason
Sparisjóðsstjóri í síma 8939230 eða veffangið
kristjan@spar.is
Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2006
Sp SPARISJÓÐUR SKAGAFJARÐAR
SJÓVÁ
SKAGFIR0INGABRAUT 9a 550 SAUÐARKR0KUR