Feykir - 08.03.2006, Side 1
Rögnvaldur Olafsson, Hl, Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla, Sjöfn Sigurgisladóttir, forstjóri RFog
Jón £ Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK - Seafood.
Skrifað undir tímamótasamning á Sauðárkróki
Ný próteinverksmiðja
skapar allt að 10 storf
Starfssemi fyrirtækisins lceprotein ehf. verður á næstu
vikum flutt frá Akranesi til Sauðárkróks. Fyrirtækið sem er
í eigu Rannsóknarstofnunnarfiskiðnaðarins gæti skapað
allt að 10 ný störf á Sauðárkróki.
Um er að ræða þróun,
framleiðslu og sölu á blaut-
próteini íyrir fiskiðnað á íslandi
og þurkuð prótein fyrir heilsu-
og fæðubótamarkað. Gert er
ráð fyrir að fyrsta árið starfi einn
starfsmaður við fyrirtækið á
Sauðárkróki ásamt nemendum
í framhaldsverkefnum og
samstarfsmönnum frá FISK-
Seafood. Að loknum árs
aðlögunartíma má gera ráð
fyrir að 5-10 starfsmenn geti
unnið við verksmiðjuna.
Skrifað var undir samning
þessa efnis við hátíðlega athöfn
í Verinu, húsnæði Háskólans á
Hólum á Sauðárkróki í gær. Það
voru Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
og Einar Kr. Guðfinnsson,
sjávarútvegsráðherra, sem
undirrituðu samkomulagið.
Iceprotein var áður í samstarfi
við HB-Granda en fyrirtækið
dró sig út úr stamstarfinu.
16 milljón króna verkefni
Iceprotein ehf. er annað tveggja
verkefna sem ráðuneytins
og fleiri aðila. Hitt verkefnið
er samningur milli Hóla-
skóla, Rannsóknarstofhunar
fiskiðnaðarins, Stofhun
ffæðasetra Háskóla íslands
og Háskólans á Akureyri um
að efla rannsóknir, þróun og
menntun á sviði raunvísinda,
náttúruvisinda, fiskeldis, fiska,
sjávar-, og vatnalíffræði og
matvælavinnslu.
Þessi verkefni fá tæplega
16 milljónir króna á þessu
ári og þar af renna tæplega
7 milljónir af fjárveitingu
iðnaðarráðuneytis vegna
byggðaáætlunar.
í þróunarsetri Hólaskóla
á Sauðárkróki er nú góð
aðstaða til kennslu og
rannsókna í fiskeldi en þar
fer ffam nær öll kennsla við
Fiskeldis- og fiskalífffæðideild
skólans. Rannsókna- og
kennsluhús Hólaskóla sem
hýsir Þróunarsetrið er um
1.525 fermetar og er það boðið
leigulaust af FISK - Seafood.
Bæjarstjórinn á Blönduósi segir upp
Hefur ekki rétt til
biðlauna
Jóna Fanney Friðriksdóttir,
bæjarstjóri á Blönduósi,
hefur sagt upp störfum hjá
Blönduóssbæ frá og með
febrúarlokum.
Jóna Fanney hefur átt
farsæltsamstarfviðbæjarstjórn
og starfsmenn sveitarfélagsins.
Ástæða þess að hún segir upp
nú er að þegar gerður var
ráðningarsamningur var ekki
samið við hana um biðlaun
þrátt fyrir óskir þar um. Ég
hef rætt við kollega mína víða
um landið og ekki hitt á neinn
sem hefur ekki biðlaunarétt”,
sagði Jóna Fanney í samtali
við Feyki í gær.
Samkvæmt ráðningar-
samningi Jónu Fanneyjar er
þriggja mánaða gagnkvæmur
uppsagnarfrestur en venja
er að bæjarstjórar hafi 3-6
mánaða biðlaunarétt.
Góð þjónusta á Glaðheimum
Landsliðskokkur
á leikskólanum
Jón Daníel Jónsson,
veitingamaður á Kaffi Krók
á Sauðárkróki, tók að sér í
byrjun ársins að elda mat
fyrir leikskólan Glaðheima
á Sauðárkróki.
Jón er matreiðslumeistari
og var um skeið í íslenska
landsliðinu í matreiðslu.
Unt er að ræða tilrauna-
verkefiii er stendur ffant á
sumar og verður síðan metið í
ljósi reynslunnar. Jón Daníel
eldar matinn á Kaffi Krók og er
honum síðan ekið á leik-
skólann. Að sögn Jóns hafa
krakkarnir tekið þessari
nýbreytni vel.
Innheimtumiðstöð sekta á Blönduósi
Fjölmargir sóttu um
Þrjátíu og þrír sóttu um
fjögur skrifstofustörf sem
sýslumaðurinn á Blönduósi
auglýsti vegna stofnunar
Innheimtumiðstöðvar
sekta.
Miðstöðin sekta tekur
til starfa í byrjun apríl með
fimm starfsmönnum. Mun
hún taka við innheimtu
sekta og sakarkostnaðar á
öllu landinu, í áföngum.
Haft er eftir sýslumanni á
huna.is að allir umsækjend-
ur séu heimamenn eða fólk
sem hefur áhuga á að flytja
aftur heim.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—IClénflill ehjj]|—
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
mi
bílaverkstæöi
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141